Fréttablaðið - 05.01.2010, Qupperneq 2
2 5. janúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Ágúst, heldur þú að hann sé
með lausa skrúfu?
„Mjög líklega – nema þær séu allar
forskrúfaðar.“
Ráðist var á Ágúst Fylkisson bílstjóra á
nýársnótt og honum veitt stungusár með
ydduðu skrúfjárni. Árásarmaðurinn var
fluttur brott af lögreglu.
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Hrogn
og Lifur
Glæný Línuýsa
úr Jökuldýpi
HROGN
OG LIFUR
Glæný Línuýsa
úr Jökuldýpi
LÖGREGLUMÁL Innbrotsþjófar létu
greipar sópa á höfuðborgarsvæð-
inu að meðaltali átta sinnum á dag
allt síðasta ár.
Hegningarlagabrotum fjölg-
aði um átta prósent milli áranna
2008 og 2009. Þar vógu þjófnaðir
þungt því þeim fjölgaði um sautján
prósent milli ára. Þá náðist mikið
magn af fíkniefnum á árinu.
Þetta kemur fram í bráða-
birgðatölum lögreglustjórans á
höfuðborgarsvæðinu um afbrot í
umdæminu árið 2009.
„Við hefðum viljað sjá fækkun
í hegningarlagabrotunum í heild
sinni,“ segir Stefán Eiríksson lög-
reglustjóri höfuðborgarsvæðisins.
„Það gekk ekki eftir og ástæðan
liggur mjög skýr fyrir í tölunum,
sem er fjölgun auðgunarbrota.“
Stefán segir lögregluna hafa
náð betri tökum á þessum vanda
miðað við tölur þar yfir á síðari
hluta ársins. Viðbrögðin hafi fal-
ist í því að hafa betra eftirlit með
virkum brotamönnum og setja
niður áætlun um að koma þeim úr
umferð eins fljótt og auðið væri.
Þá hafi erlend þjófagengi verið
upprætt, sem hafi strax haft áhrif
á þessu sviði. Loks hafi efling lög-
reglustöðvanna, fjölgun lögreglu-
manna og rannsakenda á þeim
haft sitt að segja til að ná tölun-
um niður.
„Við ætlum að halda áfram á
þessari leið, alveg einbeittir,“
segir Stefán .
Í bráðabirgðatölunum kemur
enn fremur fram, að gríðarlegt
magn fíkniefna var tekið á árinu
eða hátt á fjórða tug kílóa.
„Menn hafa sett sér mjög skýr
og afgerandi markmið og vinna
einbeittir að því að upplýsa sem
flest mál. Það skiptir mjög miklu
máli að lögreglan geri allt hvað
hún getur til þess að halda fram-
boði af fíkniefnum í lágmarki, því
það hefur mikil áhrif til að draga
úr nýliðun í hópi fíkniefnaneyt-
enda.“
Ofbeldisbrotum fækkaði um
fjórtán prósent á milli ára. Kyn-
ferðisbrotum fækkaði verulega
eða um fjórðung. Þar má nefna
mikla fækkun í brotum er varða
vörslu barnakláms.
„Lögreglan er mjög öflug í
rannsóknum þessara mála,“ segir
Stefán. „Menn skilja alltaf eftir
sig einhverja slóð í tölvubúnaði
sem kemur lögreglu á sporið.“
Umferðarslysum fækkaði mikið
milli ára eða um rúm þrjátíu pró-
sent.
„Við erum mjög stoltir af þessu,
það er mjög góður árangur,“ bend-
ir Stefán á. „Eftirlit lögreglu,
sýnileiki hennar á lykilstöðum á
lykiltímum á þarna sinn þátt, auk
góðrar samvinnu við sveitarfélög
og aðra sem um umferðaröryggi
fjalla.“ jss@frettabladid.is
SÝNISHORN Þýfi sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók á síðasta ári, eftir að
erlend þjófagengi höfðu verið upprætt.
Átta innbrot hvern
einasta dag í fyrra
Að meðaltali var brotist inn átta sinnum á dag á höfuðborgarsvæðinu árið 2009.
Ofbeldisbrotum fækkaði um fjórtán prósent á milli ára og kynferðisbrotum
fækkaði um fjórðung. Þá náði lögregla miklu magni fíkniefna á nýliðnu ári.
JEMEN, AP Tveir grunaðir hryðju-
verkamenn féllu í átökum við
öryggissveitir í Jemen í gær, dag-
inn eftir að Bandaríkin og Bret-
land lokuðu sendiráðum sínum
í landinu vegna hættu á hryðju-
verkum.
Í gær var einnig tilkynnt að
sendiráð Frakklands í landinu
verði lokað um óákveðinn tíma.
Bandaríkin telja sig hafa vís-
bendingar um að hryðjuverka-
menn tengdir Al Kaída ætli að
gera árás í höfuðborginni Sana,
hugsanlega á sendiráð Bandaríkj-
anna. - gb
Hryðjuverkamenn í Jemen:
Tveir herskáir
féllu í átökum
FORSETAMYNDIR Myndir af Ali Abdulla,
forseta Jemens, eru til sölu á götum
höfuðborgarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Vitnum í mansalsmálinu á Suðurnesj-
um er talin stafa veruleg hætta af fimm karlmönn-
um sem sitja inni vegna málsins, að því er fram
kemur í kröfu ríkissaksóknara yfir framlengingu
á gæsluvarðhaldi yfir þeim. Ríkissaksóknari vísar
til hættumats greiningadeildar Ríkislögreglustjóra
hvað þetta varðar.
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms
Reykjaness þess efnis að mennirnir fimm, allir lit-
háískir, skuli sæta gæsluvarðhaldi til 26. janúar.
Þeir hafa verið ákærðir fyrir mansal gagnvart nítj-
án ára litháískri stúlku. Þá eru sumir úr hópnum
ákærðir fyrir hylmingu, líkamsárásir, hótanir og
kynferðisbrot.
Mennirnir hafa allir setið í gæsluvarðhaldi vegna
rannsóknar málsins frá 14. október. Málið sé mjög
umfangsmikið og hafi rannsókn þess teygt anga
sína víða. Fyrir liggi rökstuddur grunur um að þeir
tengist allir glæpasamtökum í Litháen, en þeir séu
ríkisborgarar þar í landi.
Þá sé vísað til þess að mennirnir séu erlendir rík-
isborgarar og hætta þyki vera á því að þeir muni
reyna að komast úr landi eða leynast eða koma sér
með öðrum hætti undan málssókn. - jss
HÆSTIRÉTTUR Mennirnir skulu sæta áfram gæsluvarðhaldi til
26. janúar.
Hæstiréttur framlengir gæsluvarðhald yfir fimm litháískum karlmönnum:
Vitnum talin stafa veruleg
hætta af mansalsmönnum
LÖGREGLUMÁL Karlmaður á fimm-
tugsaldri og kona á þrítugsaldri
hafa verið úrskurðuð í gæslu-
varðhald til 8. janúar að kröfu
lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu.
Fólkið er grunað um aðild
að innflutningi á rúmlega 800
grömmum af kókaíni til landsins
frá Bandaríkjunum. Maðurinn er
erlendur ríkisborgari en konan er
íslensk. Þau hafa ekki áður komið
við sögu hjá lögreglu. - jss
Maður og kona handtekin:
Kókaínpar í
gæsluvarðhaldi
Gefur kost á sér í prófkjöri
Hjálmar Sveinsson, útvarpsmaður á
RÚV, ætlar að gefa kost á sér í þriðja
sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í
Reykjavík. Hann telur þörf á endur-
nýjun og ein forsenda þess sé að
fleiri gefi sig fram til pólitískra starfa.
Prófkjörið fer fram 30. janúar.
SVEITASTJÓRNARMÁL
HEILSA Allt að tuttugu manna
hópur hundaeigenda geng-
ur vikulega á fjöll í nágrenni
Reykjavíkur eða fer aðrar
skemmtilegar gönguleiðir nálægt
höfuðborginni. Með í för eru
hundar af öllum stærðum og
gerðum, allt frá chihuahua til
rottweiler sem hlaupa frjálsir
með og njóta samvista við aðra
hunda.
„Við tökum þó tillit til annars
útivistarfólks, víkjum úr vegi
með hundana og leyfum fólki að
labba fram hjá,“ segir Hallgerð-
ur Kata Óðinsdóttir sem fer fyrir
hópnum. Annars segir hún fólk
almennt hafa gaman af þessum
fríða hópi hunda og fólks.
- sg / sjá Heilsu í miðju blaðsins
Útivist hundaeigenda:
Hundar og fólk
í gönguferðum
Á GÖNGU Í hundahópnum eru fjöl-
breyttar hundategundir. MYND/GKJ
VIÐSKIPTI Viðskiptavinir Lands-
bankans sem eru með húsnæðis-
lán hjá bankanum geta sótt um að
fá felldar niður skuldir umfram
110 prósent af markaðsvirði eigna
sinna með nýjum úrræðum fyrir
skuldara sem kynnt voru í gær.
Bankinn mun fá fasteignasala
til að meta markaðsvirði húsnæðis
þeirra viðskiptavina sem óska eftir
niðurfellingu. Skuldir umfram 110
prósent af verði eignanna verða
felldar niður.
Í tilkynningu frá Landsbankan-
um segir að þessi leið henti þeim
sem séu með hátt veðhlutfall á eign
sinni og þurfi að lækka greiðslu-
byrði lánsins.
Þeir viðskiptavinir sem eru
með lán í erlendri mynt geta ein-
ungis nýtt sér þetta úrræði ef þeir
samþykkja að breyta lánunum í
verðtryggð eða óverðtryggð lán í
íslenskum krónum.
Kjörin á lánunum verða sam-
bærileg þeim sem bjóðast á hefð-
bundnum íbúðarlánum bankans.
Vextir verðtryggðra húsnæðislána
hjá bankanum eru nú 1,8 prósent,
en óverðtryggð lán í íslenskum
krónum bera 8,5 prósenta vexti.
Í tilkynningu Landsbankans
segir að niðurfelling lána langt
yfir markaðsvirði íbúða bætist
við önnur úrræði sem skuldurum
standi til boða. Það sé mat bankans
að með þeim úrræðum sem í boði
séu geti þorri viðskiptavina lækk-
að greiðslubyrði lána sinna. - bj
Landsbankinn kynnir úrræði fyrir fólk með húsnæðislán hjá bankanum:
Lán færð í 110% af virði eigna
ÚRRÆÐI Stjórnendur Landsbankans
telja þau úrræði sem nú séu fram
komin duga fyrir þorra viðskiptavina.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÖGREGLUMÁL Átján ára piltur sem
situr í gæsluvarðhaldi á Spáni
eftir að hafa verið tekinn með um
fimmtán kíló af kókaíni, hefur
margoft komist í kast við lögin
hér á landi, að því er fram kom í
fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi.
Pilturinn, sem heitir Einar Örn
Arason, var handtekinn ásamt
kærustu sinni á Barajas-flugvell-
inum í Madríd 16. desember við
komuna frá Perú.
Fyrir skömmu var Einar
ákærður hér á landi fyrir 43
afbrot sem öll voru framin á
innan við einu ári. Hann er meðal
annars sakaður um þjófnað og
líkamsárás. - bl
Handtekin með fíkniefni:
Með fimmtán
kíló í Madríd
SPURNING DAGSINS