Fréttablaðið - 05.01.2010, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 05.01.2010, Blaðsíða 40
24 5. janúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR folk@frettabladid.is > Á SKÍÐUM Eiginkona Tigers Woods, Elin Nordegren, eyddi ára- mótunum í frönsku Ölp- unum ásamt tvíburasystur sinni og mági. Nord egren eyddi fríinu í að renna sér á skíðum og fagn- aði nýju ári ásamt fjöl- skyldu sinni á veit- ingastað í Chamonix, fjarri eiginmanninum. Þegar Fréttablaðið leitaði til valinna sérfræðinga til að velja bestu erlendu plöt- ur ársins 2009 kom í ljós að lítill samhljómur var meðal sérfræðinganna. Besta platan kom frá bandarísku borginni Baltimore. Nokkuð jafnt er á toppnum í ár, aðeins eitt stig skilur að tvær efstu plöturnar. Eins og oft áður er breiddin mikil á listanum og mjög margar plötur fá aðeins eina tilnefningu. Besta plata ársins er áttunda platan með Baltimore-sveitinni Animal Collective, Merriweather Post Pavilion. Platan hefur fengið gríðarlega góða dóma og er víða í efsta sætinu yfir bestu plötur árs- ins. Tónlistarlega er þetta poppað- asta plata þessarar tilraunaglöðu hljómsveitar, útkoman einhvers konar tuttugustu og fyrstu aldar samsuða úr barokk-poppi Beach Boys og sýrurokki Pink Floyd. Í öðru sæti er Lundúnabandið The XX með frumraun sína XX. Platan sækir áhrif í nýbylgjurokk 9. áratugarins og Bristol-senuna í kringum 1995, er full af draum- kenndri tónlist og var meðal annars valin besta plata ársins af gagnrýn- endum The Guardian. Í þriðja sæti er Bitte Orca með Dirty Project- ors frá Brooklyn. Dave Longstreth er forsprakki sveitarinnar og tón- listin mjög frumleg blanda framúr- stefnu, þjóðlaga- og heimstónlist- aráhrifa og rokks. Björk, sem er andlega skyld sveitinni, tróð upp með henni á síðasta ári. Annars virðist árið 2009 einna helst hafa einkennst af því að indí- bylgja síðustu ára er í algleymi og alltaf fleiri og fleiri nöfn að koma upp á yfirborðið. Og yfirburðir Breta og Bandaríkjamanna eru algerir. Af ellefu efstu plötunum eru sex bandarískar og fimm ensk- ar. gunnarh@frettabladid.is Besta erlenda platan 2009 SAMVINNUHÓPUR DÝRANNA Álitsgjöfum Fréttablaðsins finnst áttunda plata Animal Collective, Merriweather Post Pavilion, besta plata ársins. BESTU ERLENDU PLÖTUR ÁRSINS 1. Animal Collective - Merriweather Post Pavilion (19 stig) 2. The XX – XX (18 stig) 3. Dirty Projectors - Bitte Orca (16 stig) 4. Wilco – Wilco (The Album) (11 stig) 5. Grizzly Bear – Weckatimest (10 stig) 6. Bat For Lashes – Two Suns (9 stig) 7. – 8. Micachu and The Shapes – Jewellery (9 stig) 7. – 8. Muse – The Resistance (9 stig) 9. Mumford & Sons – Sigh No More (7 stig) 10. - 11. The Black Eyed Peas - The E.N.D. (7 stig) 10. - 11. Converge – Axe To Fall (7 stig) Sérfræðingarnir: Alexandra Kjeld – Rjóminn, Andrea Jónsdóttir – Rás 2, Anna Margrét Björnsson – Fréttablaðið, Árni Þór Jónsson – Zýrður rjómi, Bob Cluness – Grapevine, Bobby Breiðholt - breidholt.blogspot.com, Brynjar Már Valdimarsson – FM 957, Dr. Gunni – Fréttablaðið, Egill Harðar – Rjóminn, Einar Bárðarson - Kaninn, Freyr Bjarnason - Fréttablaðið, Frosti Logason – Xið 977, Haukur S. Magnússon - Grapevine, Heiða Ólafs- dóttir – RÚV/Poppland, Hildur Maral – Rjóminn, Höskuldur Daði Magnússon – Frétta- blaðið, Jens Kr. Guð, Kjartan Guðmundsson – Fréttablaðið, Ólafur Páll Gunnarsson – Rás 2 og Trausti Júlíusson – Fréttablaðið. 1 2 3 5 4 „Það er fyrst og fremst mikill heiður að fá að vinna með svona mönnum eins og Kristjáni Jóhannsyni,“ segir Geir Ólafs- son. Hann hyggst gefa út óperuplötu um næstu jól og upptökustjóri verður sjálf- ur Kristján Jóhannsson, einn fremsti tenór landsins og þótt víðar væri leitað. Þetta er heldur betur kúvending á ferli Geirs en hann hefur hingað til verið þekktastur sem Frank Sinatra Íslands og sá tónlistarstíll á fátt sameiginlegt með óperum úr hinum sígilda heimi. Óttar Felix gefur út plötuna og Geir segist vera tilbúinn með efni á hana, býst meðal annars við því að taka Ness- un Dorma og upplýsir að fullskipuð fíl- harmoníusveit muni leika undir á diskn- um. „Þetta er bara gaman fyrir mig, að gefa fólki smjörþefinn af því sem ég hef verið að gera undanfarin ár,“ segir Geir en hann hefur lagt stund á söngnám í Söngskólan- um undir styrkri stjórn Más Magnússonar. Þá hefur hann einnig verið í einkatímum hjá Kristjáni sjálfum að undan- förnu „Þetta er auðvitað algjör viðsnúningur hjá mér en engu að síður tel ég rétta tímann vera núna, að ég sé tilbú- inn.“ - fgg Geir Ólafs gefur út óperuplötu ÓLÍKLEGT PAR Þeir Geir Ólafs og Kristján Jóhannsson starfa saman á næstu plötu Geirs því Kristján mun stjórna upptökunum á fyrstu óperuplötu Franks Sinatra Íslands. FRÉTTBLAÐIÐ/VILHELM Frístundakor t S p i l a ð u e f t i r e y r a n u ! Markmið okkar er að gefa sem flestum tækifæri til að stunda tónlistarnám því tónlist er stór hluti af lífi okkar og veitir ómælda gleði og ánægju . Nú gefst þér tækifæri til þess að stunda skemmtilegt tónlistarnám - Allir eru velkomnir, byrjendur sem lengra komnir, ungir og aldnir.” Ástvaldur Traustason skólastjóri Tónheima Upplýsingar og skráning á tonheimar.is og í síma 846 8888 Slagverk Lagasmíðar Rafmagnsgítar Kassagítar Píanó Djasspíanó Vorönn hefst 12. janúar Tónheimar - Fákafeni 9 - tonheimar@tonheimar.is ” 50 ára og eldri Upprifj unarnámskeið! Reyndasti danskennari Íslandssögunnar kennir Hann er 73 ára, ekki gráhærður (aldrei litað á sér hárið). Ekki með hrukkur (aldrei farið í andlitslyftingu). Aldrei bakveikur og við hestaheilsu … allt dansinum að þakka því dansinn er allra meina bót. Kennarinn heitir Heiðar Ástvaldsson og hann hefur fundið tíma á þriðjudögum klukkan 20 til að hjálpa landsmönnum að rifja upp gömlu góðu sporin. Ath. Að sjálfsögðu höfum við einnig barna- og fullorðins- hópa í samkvæmisdönsum, auk okkar vinsæla Konusalsa. Innritun og upplýsingar dansskoliheidars.is heidarast@gmail.com og 896-0607 kl 16 -22.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.