Fréttablaðið - 05.01.2010, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 05.01.2010, Blaðsíða 18
 5. janúar 2010 ÞRIÐJU- DAGUR 2 Hlaupanámskeið hlaup.is fara af stað á ný í byrjun febrúar. Mikilvægt er að þekkja grundvallaratriði þess hvernig standa á að betri hlaupaþjálfun til að hún verði ánægju- leg. www.hlaup.is Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is Nýtt námskeið hefst 14.janúar 2010 Skráning í síma 5813730 og á jsb@jsb.is Í boði er spennandi og krefjandi 10 vikna JAZZDANS og PÚL námskeið fyrir þá sem elska að dansa og hafa áhuga á að koma sér í form. • Kennt er í lokuðum hópum • Tímar fyrir byrjendur og lengra komna • Ýmsir dansstílar kynntir s.s. Musical – Lyrical - Modern. • Kennarar eru Irma Gunnarsdóttir og Þórdís Schram Námskeið hefst 14.janúar ! Skráning í síma 5813730 og á jsb@jsb.is Tímar eru 2 x í viku, frjáls aðgangur að tækjasal meðan á námskeiði stendur. Dansstudio 1: Byrjendur, mánudaga kl.19:45, sal 1 og fimmtudaga 19:30, sal 2. Dansstudio 2: Framhald, mánudaga kl. 20:45, sal 1 og fimmtudaga kl.20:30, sal 2. Verð: 24.900 kr. Danslistarskóli JSB er samstarfsaðili að Frístundakorti Reykjavíkurborgar. E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra f í s k h ö n n u n Nýtt! STUDIOKORT er árskort sem gildir á öll dansnámskeið í Dansstudioi JSB. Kortið veitir einnig frjálsan aðgang að tækjasal JSB. Verð: 56.900 kr. ¨ www.jsb.is Innritun hafin! Sími 581 3730 ansararD Þjálfari klappstýruhópsins í Vík er Harpa Jónsdóttir en hún segir að upphafið megi rekja til dótt- ur sinnar, Þórhildar Steinunnar. „Hún hefur haft áhuga á þessu frá því hún var pínulítil. Hún fékk klappstýrubúning frá Kans- as þegar hún var sjö ára, átti hann og elskaði þangað til hann nán- ast sprakk utan af henni,“ segir Harpa en telur þó hluta áhugans mega rekja til bandarískra bíó- mynda. Síðan var það á haust- markaði í tengslum við Regnboga- hátíðina í Vík síðastliðið haust að þær mæðgur rákust á dúska til sölu. „Við keyptum þá fimm pör af risastórum dúskum og ákváðum að taka næsta skref,“ segir hún en Harpa reyndi þá að fá íþrótta- kennara staðarins til að taka að sér klappstýruþjálfunina en þeir voru ekki spenntir fyrir verkefn- inu. „Þá var þetta bara spurning um að bjarga sér,“ segir Harpa glaðlega. Hún segist ekki mikil íþróttamanneskja þótt hún hafi í eina tíð stundað fimleika. Hún fékk því til liðs við sig Magdalenu Katrínu Sveinsdóttur, fimmtán ára frjálsíþróttastelpu. Þær Harpa og Magdalena þekktu lítið til klappstýruíþróttar- innar og hafa því verið duglegar að viða að sér þekkingu í gegnum Netið. „Þar er að finna upplýsing- ar, leiðbeiningar, myndbönd og texta. Svo er ég með bók í pönt- un sem heitir The Ultimate Cheer- leading Guide,“ segir Harpa og hlær. Síðan hafa þær til hliðsjón- ar bækur um teygjur og passa sig á því að gera ekkert hættulegt. Klappstýrurnar í Vík eru tíu talsins á aldrinum níu til þrett- án ára. Þær hafa aðstöðu í íþótta- húsi bæjarins tvisvar í viku enda æfa þær undir væng ungmenna- félagsins. Harpa segir stelpurnar standa sig ótrúlega vel miðað við að hafa einungis æft í tvo mánuði. Þá veit hún ekki betur en að liðið sé það eina á landinu. „Þeir hjá ÍSÍ vita allavega ekki um neinn annan,“ segir hún en vonar að fleiri muni taka við sér á næstunni. Og hvert er framhaldið? Við munum halda áfram að æfa, gera fleiri turna og læra fleiri rútínur. Það er nú þegar búið að panta þær á leik á Selfossi næsta sumar,“ segir Harpa glöð í bragði. Hún bætir við að ekkert lið æfi í Vík en upp hafi komið sú hugmynd að hóa saman körfuboltaliði svo að klappstýrurnar geti hvatt lið sitt í heimabyggð. - sg Einu klappstýrur landsins í Vík Klappstýruíþróttin hefur ekki notið mikilla vinsælda hér á landi og því merkilegt til þess að vita að jafn fámennur bær og Vík í Mýrdal hefur yfir að ráða tíu stúlkna klappstýruhópi sem æfir tvisvar í viku. Harpa Jónsdóttir klappar fyrir stelpunum sínum og meðþjálfara Magdalenu Katrínu Sveinsdóttur á jólasýningu hópsins í íþróttahúsinu í Vík. MYND/ÞÓRIR N. KARLSSON Klappstýrurnar héldu jólasýningu í íþróttahúsinu og gekk hún að sögn Hörpu mjög vel. MYND/ÞÓRIR N. KARLSSON HIV-SÝKINGUM meðal fíkniefnaneytenda hefur fjölgað samkvæmt Farsótt- arfréttum. Af þeim þrettán sem greindust með HIV-sýkingu 2009 eru fimm með sögu um fíkniefnaneyslu með sprautunotkun í æð eða tæp 40 prósent þeirra sem greinst hafa. Þetta er mun hærra hlutfall en verið hefur síðustu ár.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.