Fréttablaðið - 05.01.2010, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 05.01.2010, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 5. janúar 2010 11 DÚBAÍ, AP Mikið var um dýrðir þegar hæsta bygging heims var vígð í Dúbaí í gær, á fjárhagsleg- um erfiðleikatímum sem eru þeir verstu í sögu furstadæmisins. Við vígsluathöfnina var skýrt frá því að hæð turnsins er 828 metrar, en henni hafði verið haldið leyndri fram á síðustu stundu. Jafnframt var skýrt frá því að turninn hefði fengið nafni Burj Khalifa til heið- urs forseta Sameinuðu arabísku furstadæmanna, Sheikh Khalifa bin Zayed Al Nahyan. Turninn, sem hefur verið í smíðum síðan 2004, státar af 206 hæðum, fjórum sundlaugum, nokkr- um verslunarmiðstöðvum og útsýn- ispalli á 124. hæð. Hann er ekki aðeins stór í sniðum heldur sann- kölluð glæsibygging þar sem hvergi er sparað. Sextán neðstu hæðirnar eru teknar undir hótel sem tísku- kóngurinn Giorgio Armani hefur hannað. Þar fyrir ofan eru íbúðir, skrifstofur og önnur aðstaða fyrir fyrirtæki af ýmsu tagi. Smíðin hefur kostað 500 millj- arða króna. Dúbaí er eitt hinna sjö borg- ríkja í Sameinuðu arabísku fursta- dæmunum. Fyrir mannsaldri var Dúbaí lítið meira en sjávarþorp en hefur bólgnað út á síðustu tveim- ur áratugum. Fyrir jólin riðaði hins vegar fjármálakerfi lands- ins til falls þegar stærsta fyrir- tæki þess, Dubai World, komst í greiðsluþrot. Þúsundir manna mættu til vígsluathafnarinnar í gær og fengu að skoða herlegheitin, sem Dúbaímenn hafa kallað „lóðrétta borg“. Dúbaímenn eiga einnig metið þegar spurt er um stærstu bygg- ingu heims að fermetratali, sem er flugstöðvarbygging 3 við alþjóða- flugvöllinn í Dúbaí. Stærsta bygging heims að rúm- máli er hins vegar Boeing-verk- smiðjan í Everett í Washington- ríki Bandaríkjanna. gudsteinn@frettabladid.is Hæsta bygging heims vígð Smíði Dúbaíturnsins, Burj Khalifa, hefur kostað 500 milljarða króna. Hann er 828 metra hár og þar með hæsta bygging heims. Turnspíra Sést úr 95 km fjarlægð Skrifstofur 700 íbúðir Armani hótel 124 hæð Útsýnispallur 54 lyftur á 10m/s hámarks- hraða Kælikerfið getur framleitt 12.750 tonn af ís daglega Byggingargerð Þverspennu- veggir Kjarni Klæðning: 24.348 plötur á 132.190 fm veggfleti, þar á meðal 103 þúsund fm af tvöföldu „njósnagleri“ og 15.500 fm af stáli. Rörhýsi: Risarör með 125 þús- und opum – stutt af ypsilonlaga þverspennustöplum sem vefjast í spíral upp eftir turninum. Byggingin er tengd saman með sexhyrndum kjarna, sem kemur í veg fyrir að snúist upp á hana í hvassviðri. Hæstu byggingar heims 442m 451,9m 509,2m 1973 Willis (Sears) Turninn Chicago 1998 Petronas-turnarnir Malasía 2004 Taípei 101 Taívan Undirstöður: 192 súlur ná 50 metra niður í jörðina og í 10.000 tonna grunnplötuna þurfti 45 þúsund rúmmetra af steinsteypu. Heimildir: Emaar Properties, Openshaw Properties, Skidmore, Owings og Merrill © Graphic news Bjartsýnisturn vígður í gær Hæsta bygging heims er risin í Dúbaí. Mikið var um dýrðir þegar nýi turninn var vígður í gær og virðast ráðamenn í Dúbaí vonast til þess að hann dragi athyglina frá fjárhagserfiðleikum furstadæmisins. Á ÚTSÝNISHÆÐINNI Þarna sést yfir Persa- flóann og borgríki Sameinuðu arabísku furstadæmanna á Arabíuskaga. N O R D IC PH O TO S/A FP VIÐSKIPTI Verð á sementi frá Sem- entsverksmiðjunni hækkaði í gær um átta prósent. Samkvæmt til- kynningu frá Sementsverksmiðj- unni má rekja ástæður hækk- unarinnar til skattahækkana og mikilla verðhækkana á erlendum aðföngum. Í tilkynningunni kemur fram að þrátt fyrir óhagstæða geng- isþróun og mikinn samdrátt á byggingamarkaði hafi tekist að halda sementsverði óbreyttu fram eftir nýliðnu ári, en það gangi ekki lengur. Þá hafi nýsam- þykktar auknar álögur ríkisins hækkað innlend aðföng um fimm prósentustig. - bj Verðhækkun á sementi: Hærri skattar hækka verðið STEYPA Átta prósenta verðhækkun á sementi var óumflýjanleg að mati for- svarsmanna Sementsverksmiðjunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR STJÓRNSÝSLA Hellen Magnea skipuð Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað Hellen Magneu Gunn- arsdóttur í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu vísinda og háskóla. Hún var áður settur skrifstofustjóri sömu skrifstofu. Tuttugu og sex sóttu um. 800 7000 • siminn.is Það er Sjónvarp Sex vinir alveg óháð kerfi Bestu vinir þínir eru bestu vinir þínir og Síminn elskar alla jafnt. Í Sex vinir óháð kerfi hjá Símanum velurðu þér sex vini hjá hvaða farsímafyrirtæki sem er og sendir þeim SMS eða hringir í þá fyrir núll krónur.* Skráðu þína sex vini á siminn.is, í næstu verslun Símans eða í síma 800 7000. Sími Internet * Mánaðarverð 1.990 kr. og upphafsgjald 5,90 kr. Þú hringir og sendir SMS á vini þína fyrir 0 kr., 1.000 mín. / 500 SMS á mánuði. Hengjum okkur ekki í smáatriði!Vinátta – alvegóháð kerfi.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.