Fréttablaðið - 05.01.2010, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 05.01.2010, Blaðsíða 30
 5. JANÚAR 2010 ÞRIÐJUDAGUR12 ● fréttablaðið ● heilsa ● FITNESS FYRIR GOLF- ÁHUGAMENN Golffitness er líkamsrækt sem Nordica Spa býður upp á, og er ætlað að gera líkamann sveigjanlegri og auka jafnvægi sem er nauðsyn- legt til að ná góðri golfsveiflu og árangri í golfi. Golf-fitness er hannað fyrir alla golfara, bæði byrjendur og lengra komna. Á námskeiðinu eru gerðar líkams- æfingar, boðið upp á fyrirlestra um mataræði og farið í sérstaka hugarþjálfun og fleira. Einnig býður Nordica Spa upp á golf- fitness og golfkennslu í einu og sama námskeiðinu. Frekari upp- lýsingar á nordicaspa.is. ● FLEIRI HÓPTÍMAR Sporthúsið hefur tekið miklum breyting- um á síðasta ári og lagt aukna áherslu á hóptíma. Sex nýir salir hafa verið teknir í notkun þar sem kenndir verða hóptímar og eru nú samtals tíu hóptímasalir í Sporthúsinu. Eru margir hverjir sérhannaðir til dæmis fyrir Hot Yoga, CrossFit og ketilbjöllu leik- fimi og fleira. Þar að auki er búið að sérhanna nýjan spinning sal. Í kjölfarið hefur hóptímataflan tekið breytingum. „Hóptímatafl- an okkar hefur aldrei verið stærri en núna og við erum til dæmis að byrja aftur með Les Milles-líkamsræktarkerfin. Auk þess erum við með mæðraleikfimi frá Fullfrísk og námskeið frá Dansskóla Birnu Björnsdóttur,“ segir Unnur Pálmadótt- ir, kynningarstjóri Sporthússins. Hún segir jafnframt að fleiri nýjungar séu á döfinni sem kynntar verði fljótlega. „Við byrjum árið með krafti og reynum að bjóða eitthvað við allra hæfi.“ Unnur Pálmarsdóttir. Obama hefur aflétt banni á komu HIV- smit- aðra til Bandaríkjanna. Barack Obama Bandaríkjafor- seti aflétti nýlega 22 ára banni við komu HIV-smitaðra til Bandaríkj- anna. Forsetinn sagði í tilkynningu að ef Bandaríkin ætluðu sér að vera leiðandi í baráttunni gegn sjúk- dómnum væri þeim ekki stætt á að halda banninu til streitu. Hinar nýju reglur hafa þegar tekið gildi en Bandaríkin áætla að halda al- þjóðlega ráðstefnu um HIV/eyðni árið 2012 og er ætlunin að hún verði haldin annað hvert ár. Bann við ferðum HIV-smitaðra til Bandaríkjanna var sett í lok níunda áratugarins þegar óttinn við sjúkdóminn var sem mestur. Alls voru tólf lönd sem bönnuðu komu HIV- smitaðra en þeirra á meðal voru Líbía og Sádi-Arabía. - sg HIV smitaðir mega ferðast til Bandaríkjanna Bann við ferðum HIV-smitaðra til Banda- ríkjanna var sett í lok níunda áratugarins.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.