Fréttablaðið - 05.01.2010, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 05.01.2010, Blaðsíða 34
 5. janúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR Þennan dag fyrir 52 árum var Leikfé- lag Kópa- vogs stofn- að þegar 46 áhugamenn komu saman í barnaskól- anum Kópa- vogsskóla. Flestir stofnendurnir höfðu litla reynslu í leiklist, en fyrsti formað- ur félagsins var Erlendur Blandon. Fyrsta verkefni félagsins, Spanskflugan eftir Arnold og Bach, var sýnt í Kópavogsskóla. Starfsemin fluttist yfir í Félags- heimili Kópavogs árið 1959 og var það aðsetur félagsins allt til ársins 2007, þegar neðsta hæð Félags- heimilis- ins var tekin undir skrif- stofur bæj- arins. Í nóv- ember 2007 fékk félag- ið húsnæð- ið að Funalind 2 í Kópavogi til afnota. Í gegnum tíðina hefur leikfé- lagið sett upp vinsælar barna- sýningar, styttri verk, samsett- ar dagskrár, frumflutt verk, sýnt frumsamin verk eða leikgerðir fé- lagsmanna og ýmis höfuðverk leikbókmenntanna. ÞETTA GERÐIST: 5. JANÚAR 1957 Leikfélag Kópavogs stofnað SONNY BONO (1935-1998) LÉST ÞENNAN DAG „Ekki halda fast í frægðina. Hún er bara fengin að láni, eins og peningar. Þegar þú deyrð, þá tekur einhver annar við henni.“ Sonny Bono öðlaðist heimsfrægð með tónlistartvíeykinu Sonny & Cher, sem hann skipaði með þáverandi eiginkonu sinni, og hljóðrituðu þau meðal annars hið vinsæla lag I Got You Babe. Hann varð borgarstjóri í Palm Springs árið 1988 og þingmaður í fulltrúadeild Bandaríkjaþings árið 1994. Bono lést í skíðaslysi árið 1998. „Við erum mjög ánægð með árangur- inn á þessum áratug sem við höfum starfað,“ segir Ágústa Tryggvadóttir, verkefnisstjóri Reyksímans 8006030, símaþjónustu fyrir þá sem vilja hætta að reykja, notkun á öðru tóbaki eða nik- ótínlyfjum. Nú í janúar eru tíu ár síðan Reyksíminn hóf starfsemi, en þjónust- an er rekin af Heilbrigðisstofnun Þing- eyinga í samstarfi við Lýðheilsustöð og Heilbrigðisráðuneytið. Um þessar mundir starfa sjö hjúkr- unarfræðingar við Reyksímann, sem allir búa yfir sérþekkingu á tóbaks- meðferðum. Alla jafna er hægt að hringja í símann frá klukkan 17 til 20 alla virka daga, en fyrstu tvær vikurn- ar í janúar hefur sá tími verið lengdur svo síminn verður opinn frá klukkan 16 til 21. Reyksíminn hefur einnig um- sjón með gagnvirku vefsíðunni reyk- laus.is sem var opnuð árið 2007. Ágústa, sem hóf störf við Reyksím- ann árið 2002, segir starfið mikið til byggjast á eftirfylgni. „Dæmigert er að fólk hringi inn og segist hafa ákveðið að taka þetta stóra skref, að losa sig við tóbakið. Þá fær það einstaklingshæfða ráðgjöf, við sendum þeim fræðslu- efni og fleira, og hringjum svo aftur eftir viku. Eftir það erum við í stöð- ugu sambandi við fólkið og því mörg símtöl sem þarf að hringja á hverjum einasta degi.“ Síðastliðið vor unnu nemar við Há- skólann í Reykjavík árangursmat á starfsemi Reyksímans. Að sögn Ág- ústu kemur fram í því mati að erfitt sé að finna jafn kostnaðarhagkvæma þjónustu í íslenska heilbrigðiskerfinu. Í ljós hafi komið að 36,4 prósent skjól- stæðinga voru reyklaus við eins árs eftirfylgni. „Þessi rannsókn var mjög jákvæð fyrir okkur og gott að fá þess- ar niðurstöður,“ segir Ágústa. Reyksíminn er þátttakandi í keppn- inni European Smoke Free Awards 2009, og leita starfsmenn nú að bestu reykleysissögunni til að vera fulltrúi Íslands í lokakeppninni sem hald- in verður í Barcelona mánaðamótin febrúar/mars. Umsóknarfrestur er til 20. janúar næstkomandi. „Ætli aðalatriðið sé ekki að sagan komi einhverju sérstöku á framfæri,“ segir Ágústa. „Vinningssagan frá því í fyrra fjallaði að miklu leyti um ástina, og hvernig höfundurinn hætti að reykja út af ástinni sinni. Það er mjög gaman að lesa um þessar rosalegu breytingar sem þeir sem hætta að reykja ganga í gegnum og frelsið sem flestir finna fyrir.“ Nánari upplýsingar er að finna á vef- síðunni reyklaus.is. kjartan@frettabladid.is REYKSÍMINN 8006030: FAGNAR TÍU ÁRA AFMÆLI SÍNU Mjög ánægð með árangurinn Á VAKTINNI Guðrún Árný Guðmundsdóttir er meðal þeirra sem svara í Reyksímann. REYKLAUS Ágústa Tryggvadóttir hefur starfað við Reyksímann frá árinu 2002. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Jón Þórarinn Stefánsson bifvélavirki, Dofraborgum 42, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtudag- inn 24. desember. Útförin fer fram frá Langholtskirkju fimmtudaginn 7. janúar kl. 13.00. Jónína V. Sigurðardóttir börn og fjölskyldur. Elskuleg systir okkar og móðursystir, Halla Einarsdóttir frá Kárastöðum í Þingvallasveit, Barónsstíg 3, Reykjavík, andaðist á líknardeild Landakotsspítala 30. desember 2009. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fyrir hönd annarra vandamanna, Elísabet Einarsdóttir Stefán Bragi Einarsson Einar Jóhannesson Inga Hrefna Búadóttir hjúkrunarkona, Lynghaga 14, Reykjavík, lést 22. desember. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, þriðjudag 5. janúar, kl. 13.00. Hafsteinn Bjargmundsson Ingibjörg Eir Einarsdóttir, Björn Einarsson, Kjartan Einarsson, Hrefna Einarsdóttir og fjölskyldur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, María Ólína Kristinsdóttir frá Horni, Árskógum 6, Reykjavík. lést á jóladag á Landspítalanum í Fossvogi. Gunnlaugur K. Hreiðarsson Kolbrún Guðmundsdóttir Helgi Már Hreiðarsson Guðrún Ólöf Sigmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Okkar hjartkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Kjartan Guðfinnsson frá Vestmannaeyjum, Njarðarvöllum 6, Reykjanesbæ, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, miðvikudaginn 30. desember. Útför hans fer fram frá Keflavíkurkirkju, fimmtudaginn 7. janúar kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á MND félagið, rn: 1175 26 5445, kt. 630293 3089 Ásta Sigurðardóttir Freyja Kjartansdóttir Þorsteinn Christensen Guðfinnur Kjartansson Jóna Fanney Holm Sigurður Óli Kjartansson Anna Kristín Tómasdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, dóttir, systir, mágkona og amma, Sigurey Guðrún Lúðvíksdóttir Jörundarholti 4, Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness 26. desember. Útförin fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 7. janúar kl. 14.00. Þorsteinn Kristinn Jóhannesson Lúðvík Þorsteinsson Nanna Sigurðardóttir Jóhann Þorsteinsson Kristín Halla Stefánsdóttir Rúna Dís Þorsteinsdóttir Hilmar Smári Sigurðsson Lúðvík Björnsson Björn Lúðvíksson Þórunn Sveina Hreinsdóttir Fjóla Lúðvíksdóttir Jóhann Þór Sigurðsson og ömmubörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Ásdís Ragna Guðmannsdóttir Austurbergi 14, Reykjavík, sem lést á Landakotsspítala 1. janúar, verður jarðsung- in frá Garðakirkju fimmtudaginn 7. janúar kl. 13.00. Þórarinn Jónsson Sigríður Þórarinsdóttir Gunnar Ármann Þórarinsson Ásta M. Margrétardóttir Úlfhildur Jóna Þórarinsdóttir Jón Þórarinsson og barnabörn. timamot@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.