Fréttablaðið - 05.01.2010, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 05.01.2010, Blaðsíða 28
 5. JANÚAR 2010 ÞRIÐJUDAGUR10 ● fréttablaðið ● heilsa Lýðheilsustöð rannsakar nú áhrif kreppunnar á heilsu og líðan Íslendinga. Þátttakan hefur gengið vonum framar en sömu þátttakendur voru með í sambærilegri heilsurannsókn árið 2007. Tækifærið til þess að bera saman þessar tvær rannsóknir er því einstakt. Lýðheilsustöð stendur ásamt sam- starfsaðilum um þessar mundir að rannsókninni Heilsa og líðan Íslendinga – framhaldsrannsókn 2009. Rannsóknin byggir á sam- bærilegri könnun frá 2007 þar sem um 6.000 fullorðnir Íslend- ingar svöruðu spurningalista um heilsu sína og líðan. Hún er unnin í samstarfi við Krabbameinsfélag Íslands, Landlæknisembættið, Landspítalann og Vinnueftirlitið, auk sérfræðinga hjá Háskóla Ís- lands, Háskólanum á Akureyri og Háskólanum í Reykjavík. Stefán Hrafn Jónsson, svið- stjóri rannsóknaþróunarsviðs Lýðheilsustöðvar, er stjórnandi rannsóknarinnar. Hann segir að upphaflega hafi verið fyrirhug- að að framhaldsrannsóknin færi fram árið 2011 eða 2012. „Eftir fall bankanna var mikið rætt um áhrif efnahagsþrenginga á líðan fólks en minna var til um áreið- anlegar mælingar til að styðjast við. Þess vegna þótti okkur ekki stætt á öðru en að flýta fram- haldsrannsókninni og afla þannig traustra gagna til að meta mögu- legar breytingar á heilsu og líðan Íslendinga í kjölfarið á fallinu,“ segir Stefán. Flestir þeirra sem tóku þátt í rannsókninni 2007 samþykktu að taka þátt í framhaldskönnun- inni. „Við sendum þeim sem sam- þykktu áframhaldandi þátttöku nýjan spurningalista í nóvember síðastliðnum. Þrátt fyrir að hafa bætt við fjölda nýrra spurninga hefur þátttakan verið gríðarlega góð og eru svör enn að berast.“ Stefán bætir við að ef fólk eigi enn eftir að senda inn svör þá sé um að gera að drífa það af svo úrvinnsla geti hafist og hægt verði að kynna niðurstöður fyrir stjórnvöldum og öðrum sem málefnið varðar. Rannsóknin hefur frá upphafi byggst á öflugu samstarfi ekki síst með háskólasamfélaginu. Fyrri rannsóknin hefur þegar nýst vel þeim sem að henni standa, meðal annars fólki í lýðheilsudeildum Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík auk þess sem kennarar og nemendur í félagsfræði og sál- fræði hafa nýtt gögnin. - uhj Stefán Hrafn Jónsson segir að nú sé einstakt tækifæri til þess að rannsaka áhrif kreppu á líf og heilsu fólks. Áhrif kreppunnar á heilsu og líðan landsmanna Heimapróf sem notað er til að mæla hlutfall ómega-3 og ómega- 6 fitusýra í frumum er nú komið á markað hérlendis. Prófið, sem heitir Test4Life, er einfalt í notk- un og eru niðurstöðurnar greind- ar á Háskólasjúkrahúsinu í Þránd- heimi í Noregi. Alþjóðlegar rannsóknir sýna að ójafnvægi ómega-3 og ómega-6 í frumunum skapar hættu á hjarta- og æðasjúkdómum og dregur úr vörnum ónæmiskerfisins. Mat- aræði Vesturlandabúa hefur komið ójafnvægi á hlutfallið milli ómega-6 og ómega-3 í frum- unum. Eðlilegt er að hlut- fall ómega-6 fitusýra sé ör- lítið hærra en ómega-3 fitu- sýra, en rannsóknir sýna að hlutfall ómega-6 fitu- sýra sé mun hærra en eðlilegt getur talist og má meðal annars rekja það til notkunar á plöntuolíum við mat- reiðslu. MeðTest4Life-próf- inu er hægt að mæla þetta hlutfall í frum- unum. Prófið er fram- kvæmt þannig að ör- lítilli nál er stungið í fingurgóminn til að draga út tvö blóðdropa. Prófið er þar næst sent á háskólasjúkra- húsið í Þrándheimi til rann- sókna og niðurstöður liggja fyrir nokkrum vikum seinna og eru aðgengilegar á Netinu með sérstökum kóða sem fylgir prófinu. Prófið fæst hjá Manni lifandi og í Laug- arnesapóteki. Frekari upplýsingar eru á vefsíðunni www.itogha. com. - keþ Heimapróf mælir fitusýrur „Ég mæli heils hugar með þessu fyrir alla og ekki síst þá sem vilja halda sér í formi. Dansinn er mjög krefjandi líkamlega og er líka góð heilaleikfimi. Í raun má segja að það sé nærandi fyrir líkama og sál að dansa,“ segir Guðrún Svava Kristinsdóttir, sem situr í stjórn Háskóladansins og kennir þar nú- tímadans. Eins og nafnið gefur til kynna er Háskóladansinn dansfélag fyrir alla háskólanema, en þó er ekki skilyrði að stunda nám í háskóla til að taka þátt í starfseminni. Áhugasamir borga 5.000 króna annargjald sem veitir þeim rétt til að sækja alla danstíma hjá Há- skóladansinum. Fyrir utan nútíma- dansinn sem Guðrún Svava sér um er einnig hægt að skrá sig í boogie woogie, hipp hopp, salsa- og swing- dans auk fleiri afbrigða. Í flestum tilfellum er boðið upp á byrjenda- og framhaldsnámskeið. Að sögn Guðrúnar Svövu hefur framtakið vakið mikla athygli og eru skráðir félagar um tvö hundr- uð talsins. Fyrstu tvær starfsvik- ur hverrar annar eru ókeypis til að gefa fólki færi á að prófa sig áfram og ákveða í kjölfarið hvort það hafi áhuga og þá á hvaða námskeiðum. Allt er gert til að halda inn- göngugjaldi í Háskóladansinn í lágmarki. Liður í þeirri viðleitni er að kennarar fá ekki greitt sérstak- lega fyrir störf sín í þágu félags- ins, heldur er allt fé sem safnast nýtt í þágu starfseminnar. „Þetta er gert að norskri fyrirmynd og hefur gefist mjög vel,“ segir Guð- rún Svava. „Inngöngugjaldið nýtist til að mynda í að borga gestakenn- urum sem koma á sumarnámskeið- in okkar, sem eru mjög vegleg. Þeir koma gjarnan frá Norður- löndunum og bjóða upp á einstakl- ingstíma og fleira. Dansinn er líka mjög góð leið til að kynnast fólki. Við höldum danskvöld einu sinni í viku og þar er kjörið að sýna það sem lærist í tímum,“ segir Guðrún Svava. Nánari upplýsingar um starf- semi og skráningu í Háskóladans- inn er að finna á heimasíðunni has- koladansinn.is. - kg Dansinn er góð leið til að kynnast fólki Guðrún Svava situr í stjórn Háskóladansins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Ójafnvægi á fitusýrum í frumum getur valdið hjarta- og æðasjúkdómum. Með einföldu heimaprófi er hægt að mæla hlutfall ómega-3 og ómega-6 í frumunum. Of hátt hlutfall ómega-3 í frumum má meðal annars rekja til notkunar á plöntuolíum við mat- reiðslu. Lífshlaupið er fræðslu- og hvatningar- verkefni ÍSÍ fyrir alla aldurshópa. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum Lýðheilsustöðvar um hreyfingu og gera hreyfingu að föstum lið í lífsstíl sínum. Samstarfsaðilar Ólympíufjölskyldan

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.