Fréttablaðið - 05.01.2010, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 05.01.2010, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2010 7heilsa ● fréttablaðið ● ● TANNHIRÐA Þegar tenn- urnar eru burstaðar er mikil- vægt að bursta ekki of fast. Með stífum tannbursta og of mikl- um þrýstingi á tennurnar getur glerungurinn auðveldlega eyðilagst sem gerir tennurn- ar viðkvæmari og valdið tann- holdsbólgum. Betra er að nota mjúkan tannbursta og bursta tennurnar mjúklega með hring- laga hreyfingum í tvær mínútur tvisvar á dag. Ef tannholdsbólga er vandamál gæti verið snið- ugt að nota rafmagnsbursta, en rannsóknir sýna að þeir vinna betur gegn tannholdsbólgu en hefðbundnir tann- burstar. Það er líka nauðsynlegt að nota tannþráð einu sinni á sólar- hring til að koma í veg fyrir bólgur. ● RÓLEG LÍKAMSRÆKTARSTÖÐ Í GARÐABÆ Jafnvægi er ný líkamsræktarstöð í Garðabænum sem legg- ur áherslu á líkamsrækt á rólegu nótunum, þjálfun djúpvöðva og innri styrk. Þar er kennt Stott Pilates, hatha-jóga og TRX-æfingar með teygjum sem er nýjung í líkamsrækt. Meðal annarra nýjunga sem eru í boði hjá Jafnvægi er stöðvaþjálfun í Pilates -bekkjum undir leiðsögn kennara, en til þessa hafa hérlendis aðeins stað- ið til boða einkatímar í Pilates-bekkjum. Hrafnhildur Sigurðardóttir er eigandi Jafnvægis, en fyrir nokkrum árum byrjaði hún að bjóða upp á tónlistarnám fyrir ungbörn og foreldra þeirra í bílskúrnum heima hjá sér sem var upphafið að Jafnvægi. Hún var þá jafnframt lærður Stott Pilates-kennari en hefur síðan þá bætt við sig réttindum til jógakennslu og TRX-þjálfunar. Frekari upplýsingar má nálgast á heimasíðunni www.jafnvaegi. is og næstkomandi laugardag er Jafnvægi með opið hús milli klukkan 12 og 14 að Kirkjulundi 19, Garðabæ. Með því að ganga í 30 mínút- úr á dag er hægt að draga úr skapsveiflum, auk þess sem það brennir hitaeiningum og styrkir líkamann. Með reglulegri hreyf- ingu framleiðir líkaminn endorf- ín og eykur serótónín sem heldur skapinu góðu. Rannsóknir sýna að bæði þolfimi og styrktaræfingar geta komið í veg fyrir þunglyndi og draga úr áhrifum fyrirtíðar- spennu. Í dag mæla sérfræðingar með 30 mínútna hæfilegri hreyf- ingu flesta daga vikunnar. - keþ Hreyfing dregur úr skapsveiflum Regluleg hreyfing eykur serótónínfram- leiðslu líkamans. ● GOTT GEGN SÝKING- UM D-vítamín gegnir hugsan- lega lykilhlutverki gegn sýking- um samkvæmt nýrri skýrslu sem unnin var við Oregon-háskóla í Bandaríkjunum. Skýrslan legg- ur áherslu á hlutverk D-vítam- íns í að auka magn kadelíkídíns, efnis í ónæmiskerfinu sem berst gegn sárum, veirum og bakt- eríum. Einnig er lögð áhersla í skýrslunni á hvernig D-vít- amín getur dregið verulega úr hættu á krabbameini, ms-sjúk- dómi, liðagigt, sóríasis og inflú- ensu. Helst er hætta á D-vítamínskorti yfir vetrarmánuðina vegna skorts á sól- skini sem hægir á hæfileika lík- amans á upp- töku D-vítam- íns.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.