Fréttablaðið - 05.01.2010, Blaðsíða 17
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Þetta er hugsað sem samfélags-
vefur fyrir kylfinga sem miðlar
ekki aðeins nýjustu fréttum úr
heimi golfsins heldur veitir skráð-
um notendum að auki aðgang að
alls kyns skemmtilegum viðburð-
um,“ segir Hans Guðmundsson,
sem opnaði um síðustu helgi nýja
vefsíðu, igolf.is, fyrir golfáhuga-
menn.
Á vefsíðunni er meðal annars
að finna golffréttir, ljósmyndir,
spjallsvæði, blogg og féskort sem
veitir upplýsingar um notend-
ur, en skráðum notendum gefst
að auki færi á að skiptast á skoð-
unum á spjallsvæðinu, blogga og
taka þátt í skipulögðum viðburð-
um á vegum þeirra sem að vef-
síðunni standa. „Við ætlum meðal
annars að standa fyrir mótaröðum
á árinu og hittast og horfa saman
á golf og borða góðan mat, en til-
gangurinn með igolf.is er meðal
annars að skapa samfélag golf-
áhugamanna,“ útskýrir Hans, sem
gekk með hugmyndina að vefsíð-
unni í maganum í tvö ár áður en
hann lét hana loks verða að veru-
leika.
Hans segir brýna þörf hafa
verið fyrir vefsíðu af þessari
gerð. „Í fyrsta lagi er ekki nema
ein síða sem færir landsmönn-
um fréttir af golfi og svo nýtur
golf ótrúlegra vinsælda, þetta er
næstvinsælasta íþróttin á landinu
á eftir knattspyrnu,“ segir hann
og bætir við að til marks um það
hafi rúmlega 15.200 kylfingar
verið skráðir í íslenska golfklúbba
á síðasta ári. „Hins vegar er talið
að um 30.000 manns spili árlega
golf,“ bætir hann við.
Inntur út í ástæðu þessara
miklu vinsælda segir Hans golf
einfaldlega vera ávanabindandi
íþrótt. „Sjálfur fór ég ekki að
spila golf fyrr en fyrir þremur
árum þegar Valur Jónatansson,
íþróttafréttamaður og fréttastjóri
igolf.is, dró mig út á völl. Við spil-
uðum níu holur og ég var fallinn
á annarri holu. Eftir það fór ég
beinustu leið út í næstu golfbúð
og keypti mér sett.“
Hans segir viðtökurnar sem
igolf.is hefur hlotið renna enn
frekari stoðum undir ofangreinda
fullyrðingu, þar sem fjöldi manns
hafi átt leið um síðuna auk þess
sem þrjátíu hafi verið búnir að
skrá sig á hana aðeins fáeinum
stundum eftir að hún var opnuð á
sunnudagskvöld.
roald@frettabladid.is
Netsamfélag kylfinga
Hans Guðmundsson hefur hleypt af stokkunum nýrri vefsíðu, igolf.is, sem helguð er einni vinsælustu
íþrótt á landinu. Þar má finna nýjustu fréttir úr heimi golfsins, ljósmyndir, spjallsvæði, blogg og fleira.
Hans Guðmundsson (til hægri), stendur á bak við vefsíðuna igolf.is, sem hefur að geyma nýjustu fréttir af golfi og veitir skráðum
notendum ýmis fríðindi. Hér er hann ásamt íþróttafréttamanninum góðkunna Vali Jónatanssyni sem er fréttastjóri vefsíðunnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BUGL Barna- og unglingageðdeild Landspítala heldur sína
árlegu ráðstefnu um geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn, unglinga
og fjölskyldur þeirra 15. janúar 2010. Tilgangur ráðstefnunnar er
að efla samfellu í þjónustu fyrir þennan hóp. www.lsh.is
Bonito ehf. Friendtex,
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 - www.friendtex.is
DÚNDUR
ÚTSALA
Opnunartími
Mán til fös 11-18 laug 11-16