Fréttablaðið - 05.01.2010, Qupperneq 46
30 5. janúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
LÁRÉTT 2. löngun, 6. hola, 8. arinn, 9.
flan, 11. á fæti, 12. veiðarfæri, 14. ein-
kennis, 16. frá, 17. kjaftur, 18. festing,
20. guð, 21. gegna.
LÓÐRÉTT 1. grobb, 3. þys, 4. temprari,
5. tæki, 7. olíuvaxefni, 10. soðningur,
13. háttur, 15. sníkjur, 16. fæða, 19.
fyrirtæki.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lyst, 6. op, 8. stó, 9. ras,
11. il, 12. troll, 14. aðals, 16. af, 17.
gin, 18. lím, 20. ra, 21. ansa.
LÓÐRÉTT: 1. gort, 3. ys, 4. stillir, 5.
tól, 7. parafín, 10. soð, 13. lag, 15.
snap, 16. ala, 19. ms.
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Kurt Westergaard.
2 Drekasvæðið.
3 Braggi sem áður hýsti Sölu varnar-
liðseigna á Keflavíkurflugvelli.
„Ég fattaði ekki hversu vel ég
náði honum fyrr en ég sá prufu-
efni. Þá brá mér allsvakalega!“
segir Hannes Óli Ágústsson, sem
fór á kostum sem Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson í Skaupinu.
Sjálfur sagði Sigmundur Davíð í
viðtali að það væri skrítið að feit-
asti leikarinn léki hann alltaf.
„Ég veit alveg að ég er smá í
holdum, en hann er greinilega í
einhverri afneitun,“ segir Hann-
es Óli og hlær. Hann útskrifaðist
úr leiklistardeild Listaháskólans
síðasta vor og segist vera búinn
að „snapa djobb“ síðan, leikur
meðal annars ökukennarann í
Bjarnfreðarsyni.
Auk Hannesar Óla kom Sævar
Sigurgeirsson vel út úr Skaup-
inu í hlutverki Sigmundar Ernis.
„Þegar ég sá hann fyrst á sett-
inu hélt ég að þetta væri í alvöru
Sigmundur Ernir og fannst snið-
ugt hjá leikstjóranum að fá hann
sjálfan til að leika!“ segir Hannes
Óli. Sævar segir að mörgum hafi
fundist hann dæmalaust líkur Sig-
mundi Erni. „Ég er einn af höf-
undum skaupsins og við vorum að
skrifa það þegar mál Sigmundar
stóð sem hæst. Svo var ég á fundi
út af vinnunni minni [Sævar
vinnur á auglýsingastofu] og sest
á móti virðulegum forstjóra úti
í bæ. Sá segir: „Heyrðu, ert þú
eitthvað skyldur Sigmundi Erni?
þú ert svo líkur honum!“ Ég var
eitthvað að grínast með þetta við
Gunnar leikstjóra daginn eftir,
að ég væri bara kominn með
hlutverk – og svo gekk það bara
eftir!“
Sævar er ekki menntaður leik-
ari en hefur verið viðloðandi leik-
listina frá níu ára aldri, mikið
með leikhópnum Hugleiki. Hann
er að auki einn af Ljótu hálfvit-
unum. Hann segir Sigmund Erni
sjálfan ekkert hafa tjáð sig um
eftirhermuna við sig en það mun-
aði oft mjóu að „Sigmundarnir“
mættust á tökustað. „Við vorum
að taka upp á Austurvelli þegar
hann gengur nánast inn í sen-
una,“ segir Sævar. „Allt tökulið-
ið lá í kasti, en ég sem geng með
gleraugu dags daglega tók ekki
eftir neinu. Aðeins seinna var ég
í rútunni nýkominn í gervið og
þá labbaði hann fram hjá. Ég gat
náttúrlega ekkert annað gert en
að henda mér ofan í sætið.“ - drg
HANNES ÓLI: SIGMUNDUR DAVÍÐ ER Í AFNEITUN
Sigmundur Ernir var
leikinn af Ljótum hálfvita
STJÖRNUR SKAUPSINS Hannes Óli Ágústsson og Sævar Sigurgeirsson eða Sigmundur
Davíð og Sigmundur Ernir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Ég sjálfur gerði mér vonir um að miðað við kynn-
ingu og hversu vel fólk þekkti til þessara persóna
að myndin myndi ná svona í kringum fimmtíu
þúsund áhorfendum. En það er alveg ljóst að hún
á eftir gera gott betur en það miðað við þessar
aðsóknartölur,“ segir Ragnar Bragason, leikstjóri
kvikmyndarinnar Bjarnfreðarson. Á átta sýning-
ardögum hafa rúmlega 39 þúsund séð myndina
sem byggir að hluta til á Vaktar-seríunum þremur.
Fleiri hafa séð myndina en hinar þrjár myndirn-
ar sem Ragnar hefur leikstýrt og ratað hafa í bíó,
þær Fíaskó, Börn og Foreldrar. Níu þúsund sáu
Fíaskó á sínum tíma og 21 þúsund sáu tvíleikinn
Börn og Foreldra.
Ragnar segist ekki hafa neina skoðun á því
hvort Bjarnfreðarson muni skáka aðsóknarmeti
Mýrarinnar en það tók Erlend og félaga tíu daga
að ná fjörutíu þúsund gestum. Ragnar horfir fyrst
og fremst til þeirrar staðreyndar að Bjarnfreð-
arson sé sennilega eina myndin í heiminum sem
skáki Hollywood-stórmyndinni Avatar í
sínu heimalandi. „Ég hef verið að
lesa erlenda fréttamiðla og sé
þar að Avatar er komin í fjórða
sætið yfir mest sóttu myndir
allra tíma. Og það, að lítil mynd
frá Íslandi skuli skjóta henni
ref fyrir rass, finnst mér eigin-
lega bara merkilegt,“ segir
Ragnar og viðurkennir að
þessi mikla aðsókn komi
honum eilítið á óvart.
-fgg
GULLKÁLFAR Ragnar
Bragason og Georg Bjarn-
freðarson trekkja duglega
að í kvikmyndahúsum
landsmanna um þessar
mundir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Það er óhætt að segja að veðmálið hafi
vakið mikla athygli. Um hundrað manns
tóku þátt á tveimur dögum,“ segir Lárus
Páll Ólafsson, sem sér um markaðsmál
fyrir Betsson-vefspilavítið á Íslandi.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
liggur nú undir feldi á Bessastöðum og
íhugar hvort hann eigi að skrifa undir ný lög
um Icesave. Lögin voru samþykkt á Alþingi á
miðvikudag í síðustu viku.
Á laugardaginn hóf Bets-
son að bjóða upp á veðmál
sem lauk á hádegi í gær.
Veðmálið snérist um
hvort Ólafur myndi skrifa
undir eða ekki. Stuðlarn-
ir voru 1.55 á já og 2.45
á nei. Um hundrað manns
tóku þátt og rúm 62 pró-
sent töldu að Ólafur myndi
skrifa undir. „Vanalega eru
ekki sett hámark á veðmál
en í þetta skipti var ákveð-
ið að setja þak á veðmálið,“
segir Lárus, en hámarksupp-
hæð var 50 evrur, eða um 9.000 krónur. Ef
þeim sem eru bjartsýnir á að Ólafur skrifi
undir verður að ósk sinni fá þeir rúmar
13.000 krónur í vasann. Þeir sem veðja
á að Ólafur synji lögunum fá öllu meira
fyrir sinn snúð ef þeir vinna veðmálið,
eða um 22.000 krónur.
Lárus segir að Betsson stefni á að
bjóða upp á fleiri veðmál af þessu
tagi á árinu. Til dæmis er
stefnt á að opna fyrir veð-
mál um úrslit Söngva-
keppni Sjónvarpsins og
nokkurra kjördæma í
væntanlegum sveitar-
stjórnarkosningum.
- afb
Fleiri veðja á að Ólafur skrifi undir
VEÐJAÐ Á FORSETA
Um 100 Íslendingar hafa
veðjað á hvort Ólafur skrifi
eða skrifi ekki undir nýju
Icesave-lögin.
Jörundur Ragnarsson
er einn vinsælasti
leikari landsins um
þessar mundir, en
hann leikur hinn
bælda Daníel í vakta-
seríunni víðfrægu.
Fangavaktinni
var gríðarlega
vel tekið og nú
virðist loka-
hnykkurinn,
kvikmyndin Bjarnfreðarson, ætla að
slá öll met. Það er skammt stórra
högga á milli hjá Jörundi, en kapp-
inn trúlofaðist kærustunni sinni,
leikkonunni Dóru Jóhannsdóttur
á dögunum, og fara þau inn í nýja
árið með hring á fingri.
Og ástin blómstrar
víðar. Nú berast
einnig fréttir af því
að söngkonan
Rebekka Kol-
beinsdóttir, sem
sló í gegn með
hljómsveitinni
Merzedes
Club og lenti
í öðru sæti
undankeppni
Eurovision árið 2008, sé einnig
búin að trúlofa sig. Sá heppni heitir
Magnús Haraldsson og er söngvari
hljómsveitarinnar The End, en þau
eru búin að vera par um nokkurt
skeið.
The Screening Room, kvikmynda-
þáttur bandarísku fréttastöðvarinn-
ar CNN, var með ítarlega umfjöllun
um íslenska kvikmyndagerð
á Þorláksmessu. Innslagið var
nokkuð langt og ræddi fréttamað-
urinn Neil Curry við helstu forkólfa
íslenskrar kvikmyndagerðar: Friðrik
Þór, Ingvar Þórðarson og Baltasar
Kormák auk Laufeyjar Guðjóns-
dóttur, forstöðumanns
Kvikmyndamiðstöðvar
Íslands. Skautað var
yfir sviðið í þættinum
og stöðu íslenskrar
kvikmyndagerðar
velt upp í ljósi
efnahags-
ástandsins.
- afb, fgg
FÓLK Í FRÉTTUM
Blaðberinn
bíður þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
„Pylsuvagninn á Selfossi er með
besta skyndibitann. Ég fæ mér
oftast hamborgara með öllu
þegar ég fer þangað.“
Kolbrún Eva Viktorsdóttir, söngkona og
Eurovision-þátttakandi.
Georg skákar Cameron aftur