Samtíðin - 01.07.1935, Side 33

Samtíðin - 01.07.1935, Side 33
SAMTÍÐIN 31 um síðan, enda eru margar ágætar sögur í því og í alla staði prýðilega frá því gengið af safnandans hálfu“. Útgefandi býst við, að safnið verði alls fjögur bindi á stærð við þetta fyrsta, og má af því sjá, að hér er um stórt og eigulegt ritverk að ræða. Svo er til ætlast, að æviágrip Ólafs Davíðssonar fylgi einhverju af seinni bindunum. Sögunum í þessu bindi er skipt í 16 flokka, sem hér segir: 1. Örnefna- sögur, 2. Viðburðasögur, 3. Saka- mannasögur, 4. Sögur um nafnkunna og einkennilega menn, 5. Helgisögur, 6. Galdrasögur, 7. Ófreskisögur, 8. Draugasögur, 9. Náttúrusögur, 10. Vatna- og sæbúasögur, 11. Huldu- fólkssögur, 12. Tröllasögur, 13. Úti- legumannasögur, 14. Ævintýri, 15. Kímnisögur og 16. Lygisögur. — Má af þessu yfirliti sjá, að efni sagnanna er ærið fjölbreytt. Alls hafa 32 menn skrásett sögurnar í þessu bindi, og hafa þeir Gísli Konráðsson sagnarit- ari, Þorsteinn Þorkelsson sagnaritari á Syðra-Hvarfi og Ólafur Davíðsson sjálfur lagt þar fram drýgstan skerf. Það er enginn vafi á því, að þetta mikla þjóðsagnasafn verður mikið keypt og lesið. Bæði er það, að sög- urnar eru læsilegar og margbreyti- legar að efni og svo er hitt, að fátt er íslendingum kærkomnara lestrar- efni en þjóðsögur. Ýmsar þjóðsögur fjalla um dulræn efni, sem margir hafa gaman af, en sumar þeirra eru um þá menn, sem þjóðin vill gjarna kynnast sem best. En allar íslenskar þjóðsögur eiga sammerkt í því að varpa ljósi yfir ýms atriði í menningu þjóðar vorrar. Hér á landi eru svo að segja daglega að skapast nýjar sagnir, þó að vér heyrum þær ekki verða til fremur en vér heyrum gras- ið gróa á jörðinni. Öllum slíkum inn- lendum fróðleik er skylt að safna, og eiga þeir menn þakkir skyldar, sem það gera. Því ber að þakka Þorsteini M. Jónssyni þetta framtak hans. Hann hefir sýnilega ekkert til þess sparað, að útgáfa þessi mætti verða hin prýðilegasta, og má í því sam- bandi nefna, að þjóðsagnabindinu fylgir auk ítarlegrar efnisskrár nafnatal (manna- og staðanafnaskrá) og registur hluta og hugmynda. Safn þetta sannar enn það, sem menn hafa raunar áður vitað, að Ólafur Davíðsson átti fáa sína líka um af- köst við ritstörf og áhuga á þjóðleg- um fræðum. Srtimincke- Olíulitir, Vatnslitir, Tempera-litir. Alt, sem að list- málningu lýtur, fáið þér best hjá okkur. Málarinn Bankastræti 7. Mussini Oelfarbe Colinblau Bleu coeruleum SCHMINCKE Oiisseldorf

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.