Samtíðin - 01.07.1935, Side 34

Samtíðin - 01.07.1935, Side 34
32 SAMTÍÐIN Erlendar bækur til sumarlesturs. Að sumrinu til kemur venjulega lít- ið út af bókum, bæði hér og erlendis. Fólk vill þá helst lesa einhverjar skemtilegar og léttar skáldsögur. SAMTÍÐIN birtir því hér skrá yfir nokkrar skáldsögur á dönsku, eftir vinsæla höfunda, þ. á. m. nokkrar eft- ir hinn bráðskemtilega enska rithöf- und, P. G. Wodehouse, sem orðinn er heimskunnur fyrir bækur sínar um Jeeves, þjóninn, hinn þurlega, fyndna, enska ,,gentleman“. Wodehouse: Godt klaret, Jeeves. — Jeeves den uforlignelige. — Ilæng i, Jeeves. — Tak, Jeeves. — Bravo, Jeeves. (Verð ób. 3 kr. hver.) Vicki Baum: Hemmelig dömt. Kr. 4.80 ób. — Besættelse. Kr. 4.80 ób. Ann Duffield: Hvilelöse Fugle. Kr. 4.20 ób. Dashell Hammet: Den tynde Mand (Detektivroman). Kr. 3.60 ób. Briggs Myers: Saa hellere dö (Detek- tivroman). Kr. 3.60 ób. Berta Ruck: Min elskede Ven. Kr. 3.00 ób. Ruby M. Ayres: Det sorte Hjerte. Kr. 3.00 ób. Oppenheim: Med Lökken om Halsen. Kr. 3.00 ób. Skrítlur. Gesti nokkrum hafði verið vísað til sængur í herbergi, þar sem reimt hafði verið árum saman. Þegar inn í herbergið kom, mælti gesturinn við þjóninn, sem með honum var: — Segið þér mér eins og er, hefir nokkuð undarlegt skeð í sambandi við þetta herbergi? — Ekki í meira en fimtíu ár, svar- aði þjónninn dræmt. — Og hvað vildi þá til? spurði gesturinn. — Ja, ef satt skal segja, vildi það þá til, að gestur, sem svaf hér uppi, kom aftur lifandi niður að morgni. Elskhuginn: Hvar er hún systir þín, Stína? Stína: Hún skrapp upp á loft til þess að hafa hringaskipti, þegar hún sá til þín. Nonmi litli: Hvað er sálarfræði, pabbi? Faðirinn: Það er fjögra atkvæða orð, sem maður lendir áltaf í, ef mað- ur á erfitt með að útskýra eitthvað. Sjúklingur (kvíðafullur á svipinn) '■ Ég hugsa, að holskurðurinn verði hættulegur! Læknir: Hvaða vitleysa, holskurð- ur, sem kostar 160 krónur, er aldrei hættulegur. SAMTÍÐIN kemur út 10 sinnum á úri, mánaðarlega nema t janúar og ágústmánuö'- Verö 5 kr. árg-ang-urinn, er greiöist fyrirfram. Áskrift getur byrjaö hvenær sem er ‘L árinu. Eigandi og útgefandi: E. P. Briem, Austurstræti 1, Reykjavík. Ritstjóri: Siguröur Skúlason, ma.g. art. Afgreiðsla og innheimta: Austurstræti 1, sími 1336 (2 línur). Póst- utanáskrift: Samtíðin, Póstliólf 607, Reykjavlk. — Prentað í ísafoldarprentsmiöju h.f-

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.