Fréttablaðið - 20.01.2010, Blaðsíða 15
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
ALÞJÓÐLEGA BÍLASÝNINGIN Í DETROIT
hófst 11. janúar og stendur til 24. janúar. Þar eru
kynntar allar helstu nýjungarnar í bílaheiminum. Til að
mynda sýndi Volvo hugmyndabíl af gerðinni Volvo C30
BEV sem er önnur kynslóð af hugmyndarafbílnum C30
BEV en bíllinn var frumkynntur í haust. www.brimborg.
is
„Í raun er mjög erfitt að segja til
um hvað stóð upp úr í þessari ferð
því þetta var allt svo stórkostlegt.
Þetta er flottasta og skemmtileg-
asta borg í heimi,“ segir Signý Kol-
beinsdóttir hönnuður sem heim-
sótti stórborgina Tókíó í Japan
í sumarlok 2007 ásamt Heimi
Snorrasyni, eiginmanni sínum, og
Snorra, syni þeirra, sem þá var
tveggja ára.
Ferðalag fjölskyldunnar átti
sér þann aðdraganda að hjónin
fengu ferðastyrk hjá Sasakawa,
menningarsjóði Japans og Skand-
inavíu. Tilgangur Signýjar var
að kynna sér japanska hönnun
og Heimir fræddist um þarlenda
teiknimyndasögugerð. „Áður en
við fórum vöruðu margir okkur
við því að fara með lítið barn með
okkur, sögðu að við myndum örugg-
lega villast og týnast og svo fram-
vegis, en sú varð alls ekki raunin.
Snorri skemmti sér allra best og
er enn þá að tala um Japan, þrem-
ur árum síðar. Við komumst fljót-
lega að raun um að borgin er ekki
hættuleg,“ segir Signý.
Eitt af því sem heillaði Signýju
við borgina var framandleikinn.
„Hún er svo allt öðruvísi en annað
sem ég hef kynnst. Það er dálít-
ið eins og allar reglur séu brotn-
ar en samt gengur allt upp. Til að
mynda er tæknin alveg ótrúleg,
arkitektúrinn rosalegur og í hönn-
un er allt leyfilegt. Þessi reynsla
hafði mjög mikil áhrif á mig sem
hönnuð,“ segir Signý, sem hefur
nýlega stofnað fyrirtækið Tulipop
utan um hönnun sína.
Signý segist einnig hafa hrif-
ist af því hversu mikil kurteisi og
virðing hafi ríkt manna í millum í
Tókíó. „Við fórum inn í hjólabretta-
búð til að kaupa okkur bakpoka og
þar voru afgreiðslumaðurinn og
sendill, báðir í Stussy-fötum og
með derhúfuna á hlið, að afgreiða
sendingu. Þegar því var lokið
hneigðu þeir sig fyrir hvor öðrum,
þessir gríðarlegu töffarar. Þetta
þótti mér alveg frábært. Svo týnd-
um við snuðinu hans Snorra í miðri
mannþrönginni einn daginn og
áður en við vissum af hafði heilt
unglingagengi hlaupið langa leið til
okkar, rétt okkur snuðið og hneigt
sig í bak og fyrir.“
Fjölskyldan brá sér einu sinni út
fyrir borgina, í göngutúr um nokk-
urs konar frumskóg í nágrenninu.
„Mýflugurnar voru á stærð við
randaflugur og við fundum vel
fyrir því þegar þær stungu okkur.
Við erum alveg ákveðin í að heim-
sækja Japan aftur, enda kynntumst
við fólki þar sem við höfum verið í
sambandi við, og þá langar okkur
að fara líka til Kíótó,“ segir Signý.
kjartan@frettabladid.is
Mikil virðing og kurteisi
Signý Kolbeinsdóttir hönnuður dvaldi ásamt fjölskyldu sinni í þrjár vikur í Tókíó í Japan sumarið 2007.
Hún hreifst mjög af borginni og íbúunum, en minna af risavöxnum mýflugum sem stungu hana í skógi.
Signý hlaut styrk til að kynna sér japanska hönnun í Tókíó. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
s
g Mjódd
UPPLÝSINGAR O