Fréttablaðið - 20.02.2010, Qupperneq 4
4 20. febrúar 2010 LAUGARDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL Reglugerðir sem
heilbrigðisráðherra setti um ára-
mót og fjalla um endurgreiðsl-
ur vegna tannréttinga og aðgerða
í gómi barna með skarð í vör og
gómi hafa valdið foreldrum barn-
anna miklum vonbrigðum.
Árni Stefánsson stjórnarmað-
ur í félaginu Breið bros, samtök-
um aðstandenda barna með skarð
í vör og/eða gómi, og faðir tveggja
ára drengs með skarð í vör og gómi,
bendir á að nýjar reglur takmarki
tíma til tannréttinga barnanna
við þrjú ár. Það sé of stuttur tími
í mörgum tilvikum. Eins hafi verið
sett of lágt þak á endurgreiðslur
vegna þess hluta meðferðarinn-
ar sem lýtur að því að víkka góm
og gera hann tilbúinn fyrir bein-
ígræðslu sem framkvæmd er við
átta til tíu ára aldur barna.
Börn sem fæðast með skarð í vör
og góm gangast undir margs konar
aðgerðir. Svo dæmi séu tekin þá er
skarðinu lokað þegar þau eru mjög
ung og er það gert af lýtalæknum
inni á spítölum. Sá hluti meðferð-
arinnar er þeim að kostnaðarlausu.
Vegna þess að tann- og tannrétt-
ingalæknar eru ekki hluti af sjúkra-
tryggingakerfi landsins greiða for-
eldrar þann hluta meðferðar barna
sinna úr eigin vasa en hafa fengið
hluta kostnaðarins endurgreiddan.
Fram til síðustu áramóta mið-
aðist endurgreiðslan við gjaldskrá
heilbrigðisráðherra sem sett var
1994 og hefur ekki verið uppfærð
í samræmi við verðlagsbreytingar
á tímabilinu. Þess má geta að tann-
læknar eru einnig afar óánægðir
með reglugerðirnar, til að mynda
þann hluta sem kveður á um að
þeir geri kostnaðaráætlun vegna
tannréttinga barnanna áður en þær
hefjast og að endurgreiðslur miðist
við þá upphæð.
Árni segir dæmin sanna að
ekki sé hægt að segja til um það
nákvæmlega fyrirfram hversu
miklar aðgerðir börnin þurfi.
Hann segir hins vegar að það
sé óþolandi fyrir aðstandendur að
dragast inn í deilur tannréttinga-
lækna og ríkisins. „Þessar deil-
ur hafa tekið mörg ár og á meðan
koma gluggaumslögin til foreldr-
anna,“ segir Árni og undir þetta
sjónarmið taka fleiri foreldrar
sem Fréttablaðið hefur rætt við.
Kynning á reglugerðunum á fundi
hjá Sjúkratryggingum Íslands hafi
til að mynda leiðst út í umræður
um gjaldskrár tannréttingalækna.
„Ég á nóg með að hugsa um börnin
mín og gæta hagsmuna þeirra og á
ekki að þurfa að hugsa um stríðið
á milli tannlækna og Sjúkratrygg-
inga Íslands,“ sagði foreldri sem
ekki vill láta nafns síns getið.
Árni segir eðlilegt að jafnræð-
is væri gætt og heilbrigðiskerfið
greiddi fyrir alla læknismeðferð
barnanna, þar með talið tannrétt-
ingar og talþjálfun, rétt eins og
læknismeðferð barna með annars
konar fæðingargalla er greidd af
íslenska ríkinu. sigridur@frettabladid.is
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
15°
9°
1°
1°
3°
2°
0°
1°
1°
21°
5°
14°
8°
22°
-10°
4°
14°
-5°
Á MORGUN
Strekkingur með SA- og
A-strönd annars hægari.
MÁNUDAGUR
Strekkingur nokkuð
víða.
-3
-3
-3 -4
-6
-3
-3
-3
-4
-2
-2
-3
-3
-2
-2
-1
-1
-1
0
-8
1
5
15
8
7
6
7
7
6
5
8
7
15
NORÐANÁTT
Það ríkir norðanátt
á landinu næstu
daga með bjartviðri
sunnanlands en
snjókomu eða
éljum norðan- og
austantil. Frost
verður á landinu
eins og venja er
til í norðanátt á
þessum árstíma.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
Börn með fæðingargalla búa
við misrétti í læknisþjónustu
Foreldrar barna með skarð í vör og góm eru ósáttir við nýjar reglugerðir vegna tannréttinga. Þeir segja
misrétti að læknisþjónusta barnanna sé ekki greidd af ríkinu eins og á við um aðra fæðingargalla.
Álfheiður Ingadóttir heilbrigðis-
ráðherra hefur falið lögfræðingum
ráðuneytisins að leita leiða til þess
að börn með skarð í vör og góm
njóti sömu
réttinda og
börn sem
fæðast með
annars konar
fæðingargalla.
Það er að
segja að allur
kostnaður við
aðgerðir sem
börnin þurfa
að fara í, þar
með talinn
kostnaður við
tannréttingar og tannlækningar,
verði þeim að kostnaðarlausu.
Ráðherra segist hafa talið að
reglugerðir sem settar voru um
áramót og fjalla um endurgreiðsl-
ur vegna tannlæknakostnaðar
barnanna myndu rétta hlut hóps-
ins. Það virðist sem svo sé ekki.
Álfheiður segir að komið verði
til móts við hópinn sem taldi
ellefu börn árið 2009 með breyt-
ingu á reglugerð eða lögum. „Það
gengur ekki að þessi hluti með-
ferðarinnar sé að kollsigla efnahag
fjölskyldna eins og því miður eru
dæmi um,“ segir ráðherra sem séð
hefur reikninga upp á fimm millj-
ónir vegna tannréttingakostnaðar
barns með skarð í vör og góm. - sbt
KOMIÐ VERÐI Á
MÓTS VIÐ HÓPINN
ÁLFHEIÐUR
INGADÓTTIR
MIKILVÆG BARÁTTA Árni Stefánsson og Bjarni Gunnar, tveggja ára sonur hans. „Þar
sem drengurinn okkar er að verða tveggja ára er ekki farið að reyna á tannréttinga-
kostnað en hann er þegar byrjaður í talþjálfun. RÉTTABLAÐIÐ /ANTON
PALESTÍNA, AP Hamashreyfing
Palestínumanna á Gasasvæðinu
fullyrti í gær að tveir Palestínu-
menn, sem tóku þátt í morðinu á
háttsettum Hamasliða í Dúbaí í
síðasta mánuði, hafi verið fyrr-
verandi yfirmenn í Fatah-sam-
tökunum.
Talsmaður Fatah sagði ekkert
hæft í þessu, en gaf í skyn að Pal-
estínumennirnir tveir hafi hugs-
anlega verið liðsmenn Hamas.
Hamas og Fatah eru tvær
helstu hreyfingar Palestínu-
manna, en átök þeirra urðu til
þess að Hamashreyfingin hefur
einangrast á Gasasvæðinu en
Fatah fer með völd á Vesturbakk-
anum. - gb
Mossadmorðið í Dúbaí:
Hamas ásakar
Fatah og öfugt
FERÐAMENNSKA Milli þrjú og fjög-
ur hundruð erlendir ferðamenn
nutu norðurljósadýrðar fyrir
austan fjall á sunnudagskvöld.
Skilyrði hafa verið einstaklega
góð að undanförnu, að sögn Þóris
Garðarssonar hjá Allrahanda.
Norðurljósaferðir eru ann-
ars vegar farnar í Borgarfjörð
eða austur að Skógum, eftir því
á hvorum staðnum eru betri veð-
urskilyrði. Norðurljósaferðirnar
geta tekið allt að fimm klukku-
stundir. - ng
Veðrið leikur við ferðamenn:
Hundruð horfa
á norðurljósin
NORÐURLJÓS Vel hefur viðrað að und-
anförnu.
DÓMSMÁL Maður sem braust inn
til fyrrverandi barnsmóður sinn-
ar til að hafa þaðan á brott með
sér dóttur sína nauðuga var í gær
dæmdur í 30 daga skilorðsbundið
fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands.
Í dómi yfir manninum segir að
hann hafi slegið til barnsmóður
sinnar þegar hún reyndi að hindra
hann í að hafa dóttur þeirra á
brott. Þá hafi hann brotið nálgun-
arbann gagnvart dótturinni með
því að senda henni níu tölvuskeyti
á vikutímabili stuttu eftir að hér-
aðsdómur hafði úrskurðað hann í
bann við því að nálgast stúlkuna á
almannafæri eða setja sig í sam-
band við hana. - gar
Faðir braut nálgunarbann:
Hugðist nema
dóttur á brott
VIÐSKIPTI Actavis vinnur nú að fjár-
mögnun tilboðs í þýska samheita-
lyfjafyrirtækið Ratiopharm. Stefnt
er á að ljúka fjármögnun innan
tveggja vikna og leggja fram drög
að samrunaáætlun í kjölfarið.
Bandaríska dagblaðið Wall
Street Journal segir ísraelska
lyfjafyrirtækið Teva, sem einn-
ig er á síðustu metrunum í kapp-
hlaupinu um Ratiopharm, muni
kynna samrunaáætlun undir lok
næstu viku.
Talið er að tilboð Actavis muni
hljóða upp á tæpa þrjá milljarða
evra, jafnvirði rúmra 520 milljarða
íslenskra króna. Deutsche Bank í
Þýskalandi, helsti kröfuhafi Acta-
vis, stendur á bak við fjármögnun-
ina, að sögn bandaríska stórblaðs-
ins New York Times. Blaðið bætir
við að bankinn sjái hag í samruna
félaganna enda auki það líkurnar
á að Actavis geti haft burði til að
greiða bankanum til baka í kring-
um fjóra milljarða evra, sem hann
lánaði Novator, félags í eigu Björ-
gólfs Thors Björgólfssonar, við
yfirtöku á Actavis sumarið 2007.
Wall Street Journal bætir við að
ekki megi útiloka að sænski fjár-
festingarsjóðurinn EQT gangi til
liðs við Actavis og Deutsche Bank
á síðustu metrunum. Félagið hafi í
upphafi ætlað að leggja fram yfir-
tökutilboð í félagi við Actavis en
helst úr lestinni á dögunum þar
sem það hafi viljað tryggja sér
meirihluta í Ratiopharm. - jab
BJÖRGÓLFUR THOR Deutsche Bank
lánaði félagi Björgólfs Thors í kringum
fjóra milljarða evra til að yfirtaka Actavis
árið 2007. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Actavis vinnur að fjármögnun tilboðs í eitt af stærstu lyfjafyrirtækjum heims:
Deutsche Bank styður kaupin
GENGIÐ 19.02.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
230,1527
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
128,87 129,49
198,2 199,16
173,88 174,86
23,36 23,496
21,469 21,595
17,643 17,747
1,4027 1,4109
196,37 197,55
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
varmadaela.is • S: 823-9448
SPARIÐ
með varmadælum