Fréttablaðið - 20.02.2010, Síða 38
4 FERÐALÖG
Meginstarfsemi SEEDS á Íslandi snýst um að taka á móti fólki sem
kemur hingað til að vinna en frá árinu 2006 hafa samtökin tekið á móti
1.300 sjálfboðaliðum alls staðar að úr heiminum.
Rétt eins og sjálfboðaliðarnir sem fara héðan til útlanda, vinna þeir
sem hingað koma að umhverfis- og menningarmálum og er það
leiðarljós samtakanna að stuðla að menningarlegum skilningi í
gegnum þá vinnu. Verkefni sem þeir hafa komið að eru meðal annars
að hreinsa strandlengjur, gróðursetja tré, leggja og laga göngustíga,
viðhalda minjum og fornleifum, mála, ýmis landbúnaðarvinna og að
aðstoða við menningarhátíðir á borð við Gay Pride og menningarnótt
og þar fram eftir götunum.
Unnið er víðs vegar um landið og eru samtökin í samstarfi við bæj-
arfélög, önnur samtök og einstaklinga sem vinna að því að fegra og
bæta Ísland, viðhalda menningu landsins og minjum. Sjálfboðaliðarnir
fá þannig tækifæri til þess að lifa, starfa og kynnast íslenskri menn-
ingu, samfélögum og fólki.
Þ
eir sem hafa áhuga á
að ferðast til fjarlægra
landa, læra sitthvað um
þjóðina og jafnvel leggja
eitthvað af mörkum til hennar
líka ættu að velta fyrir sér þeim
kosti að fara utan á vegum frjálsu
félagasamtakanna SEEDS. Sam-
tökin, sem eru alþjóðleg og starfa
um allan heim, eru rekin án hagn-
aðarsjónarmiða og hafa það hlut-
verk að stuðla að menningarlegum
skilningi í gegnum vinnu tengda
umhverfismálum.
Starfsfólk skrifstofunnar hér er
þó einnig í því að aðstoða Íslend-
inga sem vilja fara út til að starfa í
vinnubúðum. „Allt eru þetta verk-
efni sem eru tengd félagslegum
þáttum og umhverfinu. Fólk getur
verið að gróðursetja tré, hreinsa
ákveðin svæði, hlúa að einhverj-
um minjum eða að kenna börnum
á munaðarleysingjaheimilum eða
leikskólum. Fólk vinnur í 25 til 30
manna hópum, býr saman, vinnur
saman og gerir í raun allt saman.
Verkefnin leggja til fæði og hús-
næði og fólkið leggur fimm til
sex vinnustundir á móti,“ útskýr-
ir Anna Lúðvíksdóttir, ein þeirra
sem starfa á skrifstofu SEEDS á
Íslandi. Hún hvetur fólk eindreg-
ið til að leita til sín eða samstarfs-
fólks hennar, því möguleikarnir
séu fjölmargir, enda um 100 lönd í
boði og þúsundir verkefna.
Nú hugsa ábyggilega margir:
„Þetta er nú aldeilis sniðugt en
ekki fyrir fjölskyldu eins og
okkur“. En þeir geta tekið gleði
sína, því mörg verkefnanna eru
með fjölskylduvænar vinnubúð-
ir. „Það eru nokkur lönd sem hafa
helst verið með slíkar búðir: Ítalía,
Eistland, Þýskaland og Georgía
sem dæmi. Þær eru þannig gerðar
að fólk með börn á sínum snærum,
foreldrar eða jafnvel amma og afi,
geta komið saman. Þá er boðið upp
á verkefni sem börnin geta tekið
þátt í, það getur til dæmis verið
að taka upp og hreinsa grænmeti.
En auðvitað eru börnin ekki látin
vinna eins og fullorðna fólkið, svo
þá er sérstök skemmtidagskrá í
boði fyrir þau.“
Þá eru jafnframt búðir fyrir fólk
eldra en 30 ára. „Það er gert vegna
þess að fólk sem tekur þátt í svona
verkefnum er oft í yngri kantin-
um. Búðirnar fyrir eldra fólkið
eru þá hugsaðar fyrir þá sem vilja
síður vera í þessum „háskólafíl-
ingi“,“ útskýrir Anna. „Þá færðu
til dæmis gistiaðstöðu sem er örlít-
ið meira út af fyrir sig og þess
háttar.“
Þátttakendur í vinnubúðum
SEEDS greiða 10 þúsund krónur
í umsýslugjald til íslensku sam-
takanna og þurfa sjálfir að koma
sér á staðinn. Í sumum tilfellum er
auka-umsýslugjald, svo sem í fjöl-
skyldubúðunum. Að jafnaði eru
vinnubúðirnar um tveggja vikna
langar en SEEDS tekur jafnframt
þátt í lengri verkefnum sem eru í
boði fyrir fólk á aldrinum 18 til 30
ára og eru styrkt að fullu af Evr-
ópusambandinu. Á heimasíðunni
www.seedsiceland.org er hægt að
nálgast frekari upplýsingar um
verkefnin.
holmfridur@frettabladid.is
Í VINNUBÚÐUM
Á FJARLÆGUM SLÓÐUM
Ævintýragjarnir ferðalangar sem hafa áhuga á að leggja sitt að mörkum til um-
hverfi sins ættu að skoða möguleikana sem félagasamtökin SEEDS hafa að bjóða.
Vinabönd Ung sambísk stúlka vingast við
sjálfboðaliða á vegum SEEDS.
Í Aserbaídsjan Verkefnin sem sjálfboðaliðar SEEDS vinna að eru af ólíku tagi í meira en eitt
hundrað löndum.
Í Gana Sjálfboðaliði frá SEEDS, skólabörn og kennarar í Gana.
Á Íslandi Sjálfboðaliðar á vegum SEEDS hreinsa strandlengjuna á Patreksfirði.
1.300 HAFA KOMIÐ HINGAÐ
Auglýsendur vinsamlegast hafið samband:
Benedikt
• benediktj@365.is
• sími 512 5411
Bjarni Þór
• bjarni thor@365.is
• sími 512 5471
Hlynur Þór
• hlynurs@365.is
• sími 5125439
Sigríður Dagný
• sigridurdagny@365.is
• sími 5125462
Kemur út þriðjudaginn
23. febrúar
Fermingar
Sérblað Fréttablaðsins