Fréttablaðið - 20.02.2010, Side 51

Fréttablaðið - 20.02.2010, Side 51
LAUGARDAGUR 20. febrúar 2010 7 Hlutverk Flugstoða nú er að annast rekstur og uppbyggingu allra flugvalla og lendingarstaða á Íslandi, annarra en Keflavíkur- flugvallar auk þess að annast alla flugleiðsöguþjónustu sem Ísland veitir fyrir alþjóðlegt flug og innanlands flug. Einnig að fara með réttindi og annast skuldbindingar íslenska ríkisins samkvæmt alþjóðasamþykktum, alþjóðasamningum eða samningum við önnur ríki þ.m.t. vegna Alþjóðaflugþjónustunnar. Nánari upplýsingar: www.flugstodir.is Keflavíkurflugvöllur ohf. tók við rekstri Keflavíkurflugvallar og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar 1. janúar 2009 en félagið var stofnað til að annast rekstur, viðhald og uppbyggingu flugvallarins og flug- stöðvarinnar. Félagið annast einnig flugleiðsöguþjónustu og þjónustu við flugrekendur, rekstur verslana með tollfrjálsar vörur og aðra starfsemi sem nauðsynlegt er að sé innan haftasvæðis flugverndar auk þess að sjá um hagnýtingu flugvallarins í þágu öryggis- og varnarmála og að stuðla að samvinnu við aðra aðila um aukna nýtingu flugvallarsvæðisins. Nánari upplýsingar: www.keflavikurflugvollur.is SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700 www.hagvangur.is Forstjóri Sameinað félag Flugstoða ohf. og Keflavíkurflugvallar ohf. óskar eftir að ráða forstjóra til starfa. Forstjóri mun hafa með höndum yfirstjórn sameinaðs félags og fara með daglega stjórn fyrirtækisins í umboði stjórnar og í samræmi við samþykkta stefnu. Forstjóri fer með yfirstjórn flugleiðsöguþjónustu, flugvallareksturs, tæknimála og stoðstarfsemi og ber ábyrgð á frekari viðskiptaþróun félagsins í samvinnu við framkvæmdastjóra sviða. Starfs- og ábyrgðarsvið: • Forstjóri mun m.a. bera ábyrgð á upp byggingu og stefnumótun hins nýja fyrirtækis í samráði við stjórn þess. • Forstjóri ber ábyrgð á starfsemi félagsins og dótturfélaga þess og að gerðar séu áætlanir um rekstur fyrirtækisins og framkvæmdir innan þess. Hann ber ábyrgð á að rekstrarfyrirmælum Flug- málastjórnar Íslands sé framfylgt og að lögum, reglu gerðum og öðrum ytri kröfum í starfsemi fyrirtækisins sé fylgt. Menntunar- og hæfniskröfur: • Gerð er krafa um háskólapróf í verkfræði, viðskiptum eða lögfræði eða sambærilegum greinum sem nýtast í starfi. Framhaldsmenntun í viðkomandi greinum er æskileg. • Gerð er krafa um víðtæka reynslu af stjórnun verkefna og starfsmanna. • Viðkomandi þarf að hafa mjög gott vald á íslenskri og enskri tungu. • Reynsla af rekstri fyrirtækja og/eða stofnana er nauðsynleg. • Reynsla af sameiningu fyrirtækja og rekstrareininga er kostur. • Reynsla og þekking á flugtengdri starfsemi er kostur. • Hæfni í mannlegum samskiptum er mjög mikilvæg. Upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson hjá Hagvangi í síma 520 4700 eða tölvupósti, thorir@hagvangur.is. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknir og fylgigögn sendist á thorir@hagvangur.is eða á skrifstofu Hagvangs merkt: „Forstjóri Flug-Kef“. Umsóknarfrestur er til og með 3. mars nk. Leitað er eftir kraftmiklum stjórnanda með víðtæka stjórnunarreynslu og framúrskarandi samskiptahæfileika. Hann þarf að hafa mikinn framkvæmdavilja og metnað fyrir hönd fyrirtækisins. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Nýtt framsækið opinbert hlutafélag hefur verið stofnað og mun taka yfir hlutverk Flugstoða ohf. og Keflavíkurflugvallar ohf. Tilgangur sameiningar innar er að efla og bæta þjónustu við flugfarþega, flugrekendur og aðra samstarfsaðila, innlenda og erlenda. Lögð verður áhersla á að samhæfa alla starfsemi sem heyrir undir sameinað félag. Hjá sameinuðu félagi munu starfa tæplega 700 manns. Nýja félagið, sem hlotið hefur vinnuheitið Flug-Kef ohf., er stofnað samkvæmt heimild í lögum nr. 153/2009. Sjóvá óskar eftir að ráða lögfræðing til starfa á tjónasviði félagsins. Við leitum að kraftmiklum einstaklingi sem á auðvelt með að starfa sjálfstætt og takast á við krefjandi og fjölbreytt verkefni. Starfssvið: Ákvörðun bótaskyldu og uppgjör skaðabótamála vegna líkamstjóna Umsagnir til málskotsnefndar ásamt ráðgjöf og samskiptum við starfsmenn, viðskiptavini og lögmenn Miðlun upplýsinga til starfsmanna og viðskiptavina ásamt tilfallandi verkefnum Hæfniskröfur: Embættis- eða meistarapróf í lögfræði Þekking og áhugi á vátrygginga- og skaðabótarétti Sjálfstæð og öguð vinnubrögð ásamt hæfileikum til upplýsingamiðlunar Hæfni í mannlegum samskiptum og geta til að sýna frumkvæði og kraft í starfi Mjög gott vald á rituðu máli Nánari upplýsingar veitir Guðrún I. Guðlaugsdóttir, fræðslustjóri, í síma 440 2327. Umsókn skal fylla út á www.sjova.is, merkt „Lögfræðingur“ fyrir 1. mars 2010. Sjóvá er lei›andi félag sem leggur metna› sinn í a› tryggja ver›mætin í lífi fólks. Bo›i› er upp á gott starfsumhverfi fyrir hæft starfsfólk, ásamt tækifæri fyrir hvern og einn til a› eflast og flróast í starfi. Lögfræðingur SJÓVÁ | KRINGLUNNI 5 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 440 2000 | FAX 440 2020 | SJOVA.IS | SJOVA@SJOVA.IS sími: 511 1144
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.