Fréttablaðið - 20.02.2010, Síða 65
FERÐALÖG 7
HVAÐ ERT ÞÚ AÐ GERA Í GAUTABORG? Ég
hef búið í Gautaborg, með unnusta mínum
Magnúsi Jóhannessyni, síðan í ágúst og er
nemandi í bókmennta- og listfræði við háskól-
ann.
UPPÁHALDSVEITINGASTAÐUR? Í Gautaborg
ættu flestir að finna eitthvað við sitt hæfi, hér
eru margir staðir sem bjóða til dæmis einungis
upp á lífrænan mat eða grænmetis- og vegan-
rétti. Uppáhaldsstaðirnir mínir eru sushi-stað-
irnir sem eru hérna víðs vegar um borgina. Þeir
eru yfirleitt með góð hádegistilboð sem henta
vel námsmannapyngju.
BESTI BARINN? Helsti gallinn við næturlífið
hérna er að oft þarf maður að borga um 100 kr.
sænskar við innganginn eða maður er skyldug-
ur að geyma yfirhöfnina fyrir um 20 kr., sem
hentar ekki vel fyrir íslenskan námsmann. Það
er reyndar á sumum stöðum hægt að komast
hjá þessu gjaldi með því að mæta fyrir klukkan
ellefu. Að mínu mati eru skemmtilegustu
barirnir á Andra Långgatan i Linnéstaden. Þar
eru nokkrir barir í röð og maður fær smá svona
Laugavegsfíling. Það er líka plús að það þarf
ekki að borga inn og yfirleitt er afslappaðra
andrúmsloft þar en á klúbbunum þar sem þarf
að borga.
SKEMMTILEGASTI SUNNUDAGSBÍLTÚRINN?
Um helgar er gaman að taka sporvagninn i
Slottsskogen sem er náttúrusvæði nánast í
miðbæ Gautaborgar og labba þar um. Þar er
margt að skoða og sérstaklega gaman að fara
í Náttúrugripasafnið þar sem meðal annars má
sjá uppstoppaða steypireyði.
ÞAÐ SEM KOM MÉR MEST Á ÓVART? Hversu
góðar samgöngur eru hérna í borginni, auðvelt
og fljótlegt að ferðast um. Einnig fannst mér
gaman að upplifa langt haust og hvað laufin
voru lengi að falla af trjánum.
Í VOR MÁ ALLS EKKI MISSA AF? Að skoða
allt það sem listasöfn Gautaborgar hafa upp
á að bjóða og sitja úti og drekka kaffi þegar
vorblómin blómstra.
UPPÁHALDSVERSLUNARHVERFIÐ? Skemmti-
legast er að fara í allar second hand-búðirnar
og flóamarkaðina. Myrorna er skemmtileg
búð sem er hjá Järntorget og þar er hægt að
finna margt skemmtilegt bæði til heimilisins
og fatnað. Ef maður vill fara á flóamarkað þá
mæli ég með Bellavue og Kvibergs marknad
i Gamle staden, það er reyndar bara opið um
helgar. En passið að mæta snemma því það
lokar klukkan 15 og margir byrja að pakka
saman fyrr.
MATUR SEM MAÐUR VERÐUR AÐ SMAKKA?
Allir verða að fá sér kjötbollur í Ikea, mjög
sænskt og ódýrt. Einnig mæli ég með elgskjöti,
en það er langbest á haustin þegar veiðitíma-
bilið er.
HEIMAMAÐURINN
Gautaborg
BIRNA HELENA CLAUSEN, NEMI
„vintage“ fatnaðar og fleiri íslensk
merki eru væntanleg. „Mér líður
mjög vel með að hafa Sirkus
hérna í Þórshöfn og þetta er eini
staðurinn sem ég get hugsað mér
að sækja hér,“ segir Ómar sem
segir það kaldan veruleika Fær-
eyinga að margir halda þaðan í
nám erlendis og snúi ekki aftur
til baka. „Það verður að skapa
eitthvað nýtt og spennandi hérna
í Þórshöfn og halda unga fólkinu
á staðnum. Þetta er vonandi inn-
legg í það.“