Fréttablaðið - 20.02.2010, Side 70

Fréttablaðið - 20.02.2010, Side 70
FENEYJAR Þessi ævintýralegi staður hefur áhrif á alla sem koma þangað. Fagrar byggingar, gondól- ar og dásamlegur matur gera ferð til Feneyja ógleymanlega. PARÍS Það er alltaf rómantískt í París, alveg sama hver árstím- inn er. Gangið hönd í hönd eftir Signubökkum, fáið ykkur ís á Île Saint-Louis, röltið í gegnum antík- markaði og gangið tröppurnar upp að Sacré-Cœur. BRUGGE Miðaldaborgin Brugge í Belgíu er afar rómantísk og falleg. Fullkomin fyrir þá sem hrífast af gömlum arkitektúr, frábærum mat og besta súkkulaði í heimi. AMSTERDAM Af einhverjum ástæðum eru borgir með síkj- um alltaf taldar þær rómantísk- ustu. Amster- dam hefur verið kölluð Feneyjar norðursins og ekki að ástæðulausu. Litlar þröngar götur, fallegur arkitektúr og skemmtilegt andrúmsloft. PRAG Ein skemmtilegasta borg Austur-Evrópu og er orðin afar smart. Gnægð af flottum hótelum og veitingastöðum og kastalinn og Karlsbrúin eru víðfræg fyrir rómantík sína. KAUPMANNAHÖFN Kósí blanda af gömlu og nýju og ávallt rómantísk. Njótið þess að rölta um göturnar, setjast á kaffihús eða fara saman í Tívólíið. FLÓRENS Maður grípur andann á lofti stórfenglegum byggingum, kirkjum, görðum og söfnum og ástin svífur yfir vötnum. BÚDAPEST Rómantík á bökk- um Dónár með angurværan leik sígauna í bakgrunninum. Njóttu þess að skoða gamla hlutann því þar eru ótrúlegar byggingar og kirkjur, og borðaðu svo gúllas við eitt af hinum fallegu torgum. [ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ] ferðalög FEBRÚAR 2010 NJÓTTU ÞESS AÐ FERÐAST Á EINFALDAN HÁTT ÞÚ KEMST ÞANGAÐ MEÐ OKKUR! EX PO · w w w .e xp o .is BSÍ - Umferðarmiðstöðin / 101 Reykjavík / 580 5400 / main@re.is / www.re.is FERÐAVEFURINN TÚRISTI.IS Á vefsíðunni www.turisti.is er að finna skemmtilegar og fróðlegar ferðagreinar af ýmsu tagi, meðal annars um flottustu flugstöðvar heims, heimsins bestu gistiheimili, hótel í eigu fræga fólksins og smábæinn Humlebæk á Norður-Sjálandi, svo eitthvað sé nefnt. Þar eru einnig vegvísar um margar af stórborgum heims og ýmsar aðrar fróðlegar og skemmtilegar upplýsingar fyrir ferðamenn. Auk þess vísar vefurinn veginn inn á góðar greinar virtra tímarita, sem allar eru vel til þess fallnar að blása ferðaglöðu fólki andann í brjóst og láta það byrja að plana næsta frí. Maðurinn að baki síðunni er Kristján Sigurjónsson, sem býr og starfar í Kaupmannahöfn ásamt fjölskyldu sinni og sinnir vefnum í hjáverkum. - hhs RÓMANTÍSKAR HELGARFERÐIR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.