Fréttablaðið - 20.02.2010, Page 71
LAUGARDAGUR 20. febrúar 2010 35
Ragnheiður Bjarnadóttir er 98 ára
gömul og man vel eftir orðinu Las-
arus úr æsku sinni á Húsavík. „Þetta
orð var mikið notað þegar ég var
ung og átti þá við um menn sem
eru góðir með sig en illa klæddir,“
segir hún. „Þá var oft sagt sem svo:
Hann er duglegur maður en óttaleg-
ur Lasarus.“
Hún kannast ekki við orðið í
merkingunni að vera lasinn, eins
og það er oft notað í dag og þá
einkum um börn. „Nei, það þekki
ég ekki. Þá var nú heldur talað um
að vera drusla. Til dæmis sagt: „Hún
er óttaleg drusla til heilsunnar“ um
heilsulitlar konur.
LASARUS
RAGNHEIÐUR BJARNADÓTTIR Segir
orðið Lasarus aldrei hafa verið notað
yfir veikindi eða sjúklinga í gamla daga
heldur illa klædda karlmenn.
„Sulta er mauk og ég myndi nú aldrei
líkja neinni kerlingu við sultu – nema
kannski einni,“ segir Einar Leifur Pét-
ursson, þegar hann er ónáðaður við
kapalinn með spurningunni um hvað
hann teldi orðið sulta merkja, í nýrri
og yfirfærðri merkingu. „Maður gæti
hugsað sér að það þýddi eitthvað
mjúkt eða lint,“ segir hann við nánari
umhugsun.
Orðið er hins vegar notað fyrir
skrítnar manneskjur, eins og segir
Slangurorðabókinni. „Já, svoleiðis.
Fyrir það notuðum við orðið kyndugar
í Vesturbænum.“
SULTA
VIÐ KAPALINN Einar Leifur Pétursson
segir skrítið fólk hafa verið kallað kynd-
ugt í gamla daga. Hann myndi ekki líkja
nokkurri manneskju við sultu.
Lolla Skellihlæja,
myndað af
skammstöfuninni
LOL (e. laughing
out loud).
Neimdroppa Nefna fræga
manneskju í sam-
tali til að láta vita
að maður þekki
hana.
Millifótakonfekt Getnaðarlimur.
Gullfoss Vera með
og Geysir uppkast og
niðurgang á sama
tíma.
Skrúðkrimmi Útrásarvíkingur.
Haardera Gera ekki neitt.
Vísar til þess
að sumir töldu
Geir Haarde gera
helst til lítið eftir
bankahrunið
haustið 2008.
Straumbreytir Sá sem hefur
áhrif á tísku-
strauma (e.
trendsetter).
Blekaður Mjög ölvaður.
Vælubíll Hringja í vælubíl-
inn, notað þegar
einhver er að
kvarta eða væla.
Þáþrá Fortíðarfíkn,
nostalgía.
Þankahríð Hugmynda-
flæði, láta allar
hugmyndir flakka
án þess að hugsa
nánar um þær,
þýðing á enska
orðinu brain-
storm.
Þarmavarmi Sætishitarinn í
bílnum.
Tálgari Einkaþjálfari.
Negrunarkúr Tímabil þar sem
einstaklingur
leggur metnað
í að dekkja hör-
undslit sinn.
Rafbarbari Tölvuþrjótur,
hakkari.
Nokkur dæmi úr
slangurorðabókinni á
netinu, www.slangur.is
Á augnlokunum blindfullur,
ofurölvi
Beinasleggja hávaxin og
grönn kona
Blöðruselur Þöngulhaus eða
bjáni
Dúkkuspil Linleg knatt-
spyrna
Fingrapolki Sjálfsfróun
Fílapensill Ógeðfelldur
maður, leiðin-
legur gaur
Gilli Partí, veisla
Hippsumhapps Tilviljun
Inniskóagæi Feiminn karl-
maður
Þrjúbíó Heimskur
maður, bjáni,
asni
Vinnukonuvatn Ilmvatn
Brjóstalind Brjóstamikil
kona
Buxnaklaufi Getnaðarlimur
Fáari Fábjáni, asni
svínkaður Kenndur, hreifur
af áfengi
Dæmi úr Orðabók um
slangur, slettur,
bannorð og annað
utangarðsmál frá 1982
➜ SÖMU ORÐ EN BREYTTAR MERKINGAR