Fréttablaðið - 20.02.2010, Side 72
36 20. febrúar 2010 LAUGARDAGUR
E
gypski fornleifafræðingurinn
Zahi Hawass þykir skrautleg-
ur fýr, rúmlega sextugur, berst
töluvert á og gengur gjarnan
með hatt sem einna helst minn-
ir á Indiana Jones. Þótt starfið
sé kannski ekki alveg jafn spennandi og hjá
þeim tiltekna starfsbróður hans úr bíómynd-
unum þá eru ævintýrin engu að síður ótal-
mörg.
Hawass er yfirmaður fornleifaráðs Egypta-
lands, stofnunar sem hefur umsjón með forn-
leifum í Egyptalandi, múmíunum, píramíd-
unum og öllum þeim merku dýrgripum sem
fundist hafa þar. Ekkert er átt við þessa forn-
muni án hans samþykkis og vitundar.
Lengi vel var hann á móti því að láta vís-
indamenn grúska of mikið í öllum þessum
dýrgripum. Hann óttaðist skemmdir og stóð
til dæmis harður gegn því að gerðar yrðu
rannsóknir á erfðaefni múmíanna, þótt ein-
sýnt þætti að slíkar rannsóknir gætu gefið af
sér spennandi niðurstöður.
Tveggja ára rannsóknir
Fyrir nokkrum árum sló hann þó til og leyfði
loks áfjáðum vísindamönnum að hefja slík-
ar rannsóknir, fyrst í frekar smáum stíl en
fyrir tveimur árum var röðin komin að sjálf-
um Tútankamon, sem telja verður frægastan
allra faraóa Egyptalands þótt ekki hafi hann
komið miklu til leiðar á stjórnartíð sinni.
Gerðar voru ítarlegar rannsóknir á sex-
tán múmíum, teknar tölvusneiðmyndir og
erfðaefni þeirra borin saman. Niðurstöðurn-
ar voru kynntar á blaðamannafundi í Kaíró á
miðvikudaginn og birtar sama dag í tímariti
bandarísku læknasamtakanna, Journal of the
American Medical Association.
Unglingspiltur á valdastól
Tútankamon varð faraó árið 1333 fyrir Krist,
þá ekki nema níu eða tíu ára gamall. Hann
ríkti í tæpan áratug og dó aðeins nítján ára
þegar hann hefði átt að vera í blóma lífsins.
Grafhýsi hans fannst árið 1922 og vakti sá
fundur þegar í stað heimsathygli. Grafhýsið
var reyndar óvenju lítið miðað við það sem
tíðkaðist um faraóa, hugsanlega vegna þess
hve ungur hann var þegar hann dó og hafði
lítið afrekað.
Þetta litla grafhýsi var hins vegar troðfullt
af dýrgripum, kistum, skrínum, styttum og
skartgripum og margt af þessu gulli slegið
og vandlega skreytt.
Fyllt í eyður
Fátt var þó vitað í reynd um ævi þessa faraós
og margir fóru af stað til að fylla í eyðurnar.
Dregin var upp mynd af ungum og hraust-
um manni, vinsælum og kátum sem hugsan-
lega var myrtur áður en honum tókst að láta
til sín taka.
Til marks um það, að morð hafi verið fram-
ið, höfðu menn fundið holu í höfuðkúpu fara-
ósins. Sneiðmyndir af múmíunni, sem tekn-
ar voru árið 2005, leiddu þó í ljós að gatið á
höfuðkúpunni varð til eftir að hann lést, og
þá hugsanlega í tengslum við smurningu líks-
ins.
Banamein og sjúkdómar
Rannsóknir síðustu tveggja ára hafa hins
vegar leitt í ljós að banamein hans má lík-
lega rekja til malaríu og fótbrots. Rannsókn-
irnar sýna einnig að pilturinn var engan veg-
inn það heilbrigða hraustmenni sem margir
höfðu talið.
Hann var til dæmis holgóma og með
klumbufót, og svo var hann haldinn Köhlers-
kvilla, erfðasjúkdómi sem hamlar blóðflæði
til beina í fæti og eyðilagði smám saman bein
í vinstri fæti hans, sem hlýtur að hafa verið
sársaukafullt.
Talið er víst að hann hafi þurft að ganga við
staf, en í grafhýsi hans fundust hvorki meira
né minna en 130 göngustafir.
„Þetta er ansi hreint sjúkur piltur,“ var haft
eftir Egyptalandsfræðingnum Emily Teeter í
fjölmiðlum í vikunni, þegar hún hafði kynnt
sér niðurstöður rannsóknanna.
Ættartréð
Rannsóknir og samanburður á erfðaefni Tút-
ankamons og hinna múmíanna leiddu einnig í
ljós skyldleikatengsl sumra þeirra með nokk-
uð óyggjandi hætti.
Afi Tútankamons reyndist þannig vera
Amenhotep III., sem ríkti í nærri fjörutíu ár
og þótti afar farsæll, en faðirinn var Akenat-
en, sem einnig hefur verið nefndur Amen-
hotep IV. og hefur töluverða sérstöðu meðal
egypskra faraóa. Hann er stundum nefnd-
ur „trúvillingurinn“ því hann er talinn hafa
reynt að breyta fjölgyðistrú Egypta yfir í
eingyðistrú, eða í það minnsta reynt að hafa
áhrif í þá áttina.
Sú tilraun til trúarbyltingar, þótt ekki hafi
hún náð varanlegri fótfestu meðal Egypta,
telja ýmsir fræðimenn hugsanlegt að hafi
leitt af sér eingyðistrú gyðinga nokkur
hundruð árum síðar, þótt engan veginn sé
ljóst eftir hvaða krókaleiðum það á að hafa
gerst.
Móðir Tútankamons er síðan ónefnd kona
sem hefur verið kölluð „unga daman“ og var,
eftir því sem nýju rannsóknirnar leiddu í
ljós, alsystir Akenatens, föður Tútanka-
mons.
Einnig hefur verið staðfest að amma Tút-
ankamons, bæði í móður- og föðurætt, er
kona sem lengi vel var nefnd „eldri daman“,
en fullvíst þykir að hún sé Taia, ein af eigin-
konum Ahenhoteps III.
Ættarsjúkdómar
Rannsóknirnar staðfestu einnig að ýmsir
þeir kvillar sem Tútankamon átti við að
stríða hrjáðu fleiri meðlimi fjölskyldunnar,
og vafalaust hafa náin skyldleikatengsl for-
eldra hvern ættliðinn á fætur öðrum átt sinn
þátt í því.
Það er ljóst að faðir hans, Akenaten, var
til dæmis holgóma eins og Tútankamon, og
afinn Amenhotep III. var bæði með klumbu-
fót og þjáðist af Köhlers-sjúkdómnum.
Afsannað þykir þó að svonefnt Marfan-
heilkenni hafi verið í ættinni eða aðrir sjald-
gæfir erfðasjúkdómar sem gefa karlmönnum
kvenlegt yfirbragð og afmynda bein líkam-
ans.
Frekari rannsóknir
Fornleifafræðingar Egyptalands eru hreint
ekki af baki dottnir og ætla að halda ótrauðir
áfram að rannsaka múmíur með aðstoð fær-
ustu vísindamanna og nýjustu tækni. Hawass
boðar nýjar uppljóstranir innan árs.
Fársjúkur piltur í guðatölu
Tveggja ára ítarlegar rannsóknir á erfðaefni Tútankamons og nokkurra nánustu ættingja hans draga upp töluvert breytta mynd
af þessum fræga faraó, sem engan veginn reynist vera það heilbrigða hraustmenni sem menn höfðu áður gert sér í hugarlund.
Guðsteinn Bjarnason rýnir í niðurstöður rannsóknanna, sem meðal annars staðfesta að foreldrar hans voru systkini.
BLAÐAMANNAFUNDURINN Zahi Hawass efndi til blaðamannafundar á miðvikudag í Egypska safninu í Kaíró þar sem hann skýrði frá niðurstöðum tveggja ára
ítarlegra rannsókna á tíu múmíum, þar á meðal múmíum föður, ömmu og móður Tútankamons sem eru til sýnis í glerkössum á myndinni. NORDICPHOTOS/AFP
TÚTANKAMON Meira en
þrjú þúsund ára gamalt
andlit piltsins, sem var
fársjúkur og aðeins 19 ára
þegar hann lést.
AKENATEN Faðir Tútank-
amons, einnig þekktur sem
Amenhótep IV., faraóinn
sem talinn er hafa reynt
að koma á eingyðistrú í
Egyptalandi.
„YNGRI DAMAN“ Múmía
móður Tútankamons. Ekki
er vitað hvað hún hét, en
hún var alsystir Akenatens.
TAIA Föður- og móður-
amma Tútankamons, áður
nefnd „eldri daman“, eig-
inkona hins farsæla faraós,
Amenhóteps III.
NEFERTÍTÍ Ein af fimm
eiginkonum Akenatens, sú
sem naut mestrar virðingar
og tvímælalaust sú fræg-
asta. Hún er talin hafa verið
bróðurdóttir Taiu, sem var
bæði móður- og föður-
amma Tútankamons.
Það var breski fornleifa-
fræðingurinn Howard
Carter sem fann grafhýsi
Tútankamons í nóvember
árið 1922. Þetta þykir enn
einn merkasti fornleifa-
fundur sögunnar og hann
rataði fljótt í heimsfrétt-
irnar. Tútankamon varð á
allra vörum og fljótlega fóru
á kreik sögur um bölvun
múmíunnar. Hvert óhappið
á fætur öðru átti að hafa
hent fornleifafræðingana
og aðstoðarfólk þeirra, sem
höfðu raskað ró hinnar
fornu múmíu. Alvarleg slys
og voveifleg dauðsföll áttu
að hafa fylgt hópnum, en
þegar nánar er að gáð virð-
ist fátt til í þessu. Carnavar-
on lávarður, auðugur Breti
sem fjármagnaði leiðangur
Carters, lést að vísu í apríl
árið 1923, innan við hálfu
ári eftir að grafhýsið fannst.
Hann hafði hins vegar verið
heilsuveill í tuttugu ár áður
en hann dó, en fréttin af
dauða hans magnaði upp
sögurnar. Flestir úr hópnum
lifðu fram á elliár og Carter
sjálfur hélt áfram að vinna
í grafhýsi faraósins í tíu ár
eftir fundinn. Hann lést
árið 1939, þá orðinn 65 ára
gamall.
STYTTUR AF TÚTANKAMON Vegna kvenlegs útlits á styttum af Tút-
ankamon og ættingjum hans var lengi vel talið að ættin hafi verið
plöguð af sjaldgæfum erfðasjúkdómum.
GULLSLEGIN TRÉKISTA TÚT-
ANKAMONS Faraóinn ungi var
grafinn í þremur kistum, og var
sú innsta skrautlegust.
DÁNARGRÍMA TÚTANKAMONS
Hin þekkta dánargríma faraósins
gefur engan veginn rétta mynd
af útliti hans.
BÖLVUN MÚMÍUNNAR