Fréttablaðið - 20.02.2010, Síða 74
38 20. febrúar 2010 LAUGARDAGUR
Clint Eastwood eða Lee Hazle-
wood? Úff, erfitt val, en ég held
að ég verði að segja Lee Hazle-
wood. Hann syngur svo fallega.
Venjulegur dagur hjá þér í
stuttu máli? Ég vakna þegar sólin
rís og borða morgunnmat, svo fer
ég að stússast eitthvað í tónlist-
inni.
Eruð þið jafn tregafullir og
þið hljómið í tónlist ykkar? Nei,
treginn jafnar út hvað við erum
hressir.
Hvar er óvenjulegasti staður
sem þið hafið spilað á? Í bakgarð-
inum hjá Bjarna Massa.
Hvað er það leiðinlegasta sem
þú hefur nokkurn tímann gert?
Beðið.
Uppáhaldsstaðurinn á jörðinni?
Ég held mjög mikið upp á Barce-
lona.
Hvers konar tónlist hefur mest
áhrif á þig? Öll tónlist hefur áhrif,
góð og slæm.
Hvað heldur fyrir þér vöku
á nóttunni? Aðallega ég sjálf-
ur, annars er ég mjög fljótur að
sofna.
Hvenær gréstu síðast? Ég grét
úr hlátri um daginn.
Hvaða núlifandi manneskju
lítur þú mest upp til? Afa míns.
Hvaða myndi fullkomna líf þitt?
Böns af peningum. Annað á ég.
Hvaða lag á að spila í jarðar-
förinni þinni? Sin City með Fly-
ing Burrito Brothers.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú yrðir stór? Stjörnufræðing-
ur.
Hvaða manneskja í sögunni
myndir þú vera ef þú værir
neyddur til þess? Ég, þegar ég
var yngri.
Hvað fær þig til að veltast um
af hlátri? Fyndni.
Uppáhalds íslensku hljómsveit-
irnar þínar? Kimono, Seabear,
Skakkamanage, múm, Sin Fang
Bous og svo mætti lengi telja.
Hvernig hljómar síðasta sms
í símanum þínum? Kæri vid-
skiptavinur Framköllunin tin er
tilbuin hja Hans Petersen Arm-
ula. Kvedja Hans Petersen - Has-
koli Islands Namskynning 20.feb.
Haskoladagurinn 2010
Þú finnur töfralampann og
getur fengið þrjár óskir uppfyllt-
ar. Hverjar? Fyrst myndi ég óska
mér óendanlegra óska, að sjálf-
sögðu. Þá myndi ég óska þess að
það væri ekki svona kalt og svo
að batteríið í tölvunni minni væri
ekki svona heitt.
Hvað er næst á dagskrá hjá
Hudson Wayne ? Við erum að fara
í tónleikaferðalag til þýskalands
í lok þessa mánaðar. Eftir það
ætlum við að spila hér og þar.
Allt of kalt
en batteríið
of heitt
Hljómsveitin Hudson Wayne spilar tregafullt kántrí-
skotið rokk og var að gefa út aðra breiðskífu sína.
Anna Margrét Björnsson fékk söngvarann Þráin Ósk-
arsson í þriðju gráðu yfirheyrslu.
Á LEIÐ Í TÓNLEIKAFERÐALAG Böns af peningum myndi fullkomna líf Þráins Óskarssonar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ÞRIÐJA GRÁÐAN
FULLT NAFN: Þráinn Óskarsson
FÆÐINGARÁR: 1980
HVAÐ GERÐIST MERKILEGT ÞAÐ
ÁRIÐ: John Lennon var myrtur
Endalaus
Íslenski dansflokkurinn
„Ástrí›ufull og
endalaus einlægni“
Mbl, AGG
■ Á uppleið
Femínistar. Femínistarnir koma út úr skápnum hverjir á
fætur öðrum og verða róttækari í skoðunum með hverjum
deginum. Byltingin nálgast!
Barnamenning. Til hvers
að fara með krakkana í
Kringluna eða á nammibar-
inn í Hagkaup um helgar
á meðan menning fyrir
börn blómstrar út um allar
byggðir?
Hnit. Tennis- og og bad-
mintonfélag Reykjavíkur
hefur ekki undan að bóka
áhugahnitara í tíma, sem alla
dreymir um að verða eins og
Broddi og Elsa Nielsen.
Ís. Suðurver skartar frábærri
ísbúð sem kallast Ísland og
framreiðir dásamlegan ís
beint frá býlinu. Namm.
■ Á niðurleið
Rándýrir kokkteilar. Það kostar
orðið nálægt tvö þúsund krónur
að kaupa kokkteil á miðlungsbar
niðri í miðbæ. Þá er betra að fá
sér kók.
RÚV-tískan. Eru dagar
„Gladiator“-kjóla og fram-
úrstefnulegra hárgreiðslna
taldir?
Besserwisserar. „Ég
sagði ykkur það“-týpan lifir
góðu lífi og ætlar alla aðra
að drepa úr leiðindum
með sögum af því hvernig
hún vissi að allt var til
fjandans að fara á undan
öllum hinum.
Skíðaferðir
til útlanda.
Eftir myndbirt-
ingar undanfar-
ið af 2007-
hnökkunum
eru skíði bara
alveg „passé“.
MÆLISTIKAN