Fréttablaðið - 20.02.2010, Page 76

Fréttablaðið - 20.02.2010, Page 76
40 20. febrúar 2010 LAUGARDAGUR Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. MERKISATBURÐIR 1472 Orkneyjar og Hjaltlands- eyjar eru teknar undir skosku krúnuna sem heimanmundur en þær tilheyrðu áður Noregi. 1911 Fiskifélag Íslands er stofn- að. 1943 Bensínskömmtun hefst á Íslandi. 1965 Ranger 8 brotlend- ir á tunglinu eftir að hafa tekið myndir af hugsan- legum lendingarstöðum. 1991 Áhöfn þyrlu Landhelgis- gæslunnar bjargar átta manna áhöfn Steindórs GK, eftir að skipið strand- aði undir Krýsuvíkurbjargi. 2001 Bandarískur alríkislög- reglumaður, Robert Hanssen, er handtek- inn og sakaður um að hafa njósnað fyrir Rússa í fimmtán ár. Kaupfélag Þingeyinga var stofn- að þennan mánaðardag árið 1882 á Þverá í Laxárdal að frum- kvæði Jakobs Hálfdanarson- ar á Grímsstöðum og Benedikts Jónssonar á Auðnum. Þetta var fyrsta íslenska kaupfé- lagið og má að hluta rekja til þess að Bretar keyptu fé á fæti á þessum árum og greiddu fyrir í gulli og silfri. Gránufélagið hafði milligöngu um sauðasölu en á sýslunefndarfundi í Þingeyjarsýslu kom fram sú skoðun að bændur gætu sjálfir tekið hana í sínar hendur. Þeir sömdu við skosk- an kaupmann sem sendi skip til Húsavíkur eftir sauðum og flutti til þeirra mjölvöru. Í kjölfarið var kaup- félagið stofnað sem pöntunarfélag neytenda. Hver félagsmaður greiddi 10 krónur í stofnfé. Út á það fengu þeir rétt til að panta vörur fyrir allt að 200 krónur hver. Jakob Hálfdanarson tókst á hendur kaupstjórastörf félagsins og skuldbatt sig til að panta með næstu póstferð þær varningsteg- undir sem tilfærðar voru á vöru- skrám þeim sem honum voru af- hentar. ÞETTA GERÐIST: 20. FEBRÚAR 1882 Fyrsta kaupfélag landsins stofnað Konudagurinn er á morgun og sú hefð hefur skapast í Garðabæ að halda hann hátíðlegan með kvennamessu í Vídal- ínskirkju klukkan 11. Að þessu sinni verður henni útvarpað á Rás 1. „Það eru alltaf konur sem predika og þjóna fyrir altari í þessum guðsþjón- ustum,“ segir séra Jóna Hrönn Bolla- dóttir sem tók konudaginn upp á sína arma þegar hún hóf störf í Garðabæn- um fyrir fjórum árum. Hún kveðst jafnan hafa fengið einhverja utanað- komandi til að predika og nefnir sem dæmi Evu Maríu Jónsdóttur dagskrár- gerðarkonu og Rannveigu Rist fram- kvæmdastjóra. „Þær hafa dálítið frjáls- ar hendur með efnið en það hafa alltaf valist konur sem hafa miklu að miðla til okkar hinna. Þar verður engin und- antekning á þetta árið því það er Guð- rún Agnarsdóttir læknir sem stígur í stólinn og talar þaðan til allra lands- manna,“ segir hún. Séra Jóna Hrönn er sjálf ein þeirra sem þjónar fyrir altari og ásamt henni verða séra Irma Sjöfn Óskarsdóttir, prestur á biskupsstofu, og séra Hild- ur Eir Bolladóttir, prestur í Laug- arneskirkju. „Svo verða líka tvær fermingarstúlkur, þannig að á tíma- bili verðum við fimm,“ segir hún og hlakkar greinilega til dagsins. „Þetta hefur alltaf tekist mjög vel og mynd- ast mjög fín stemning enda hafa konur mætt í hundraðavís í Vídalínskirkju,“ lýsir hún. „Kvennakórinn hefur verið með okkur síðustu árin en nú ætlar Gosp el kór Jóns Vídalíns að syngja undir stjórn Maríu Magnúsdóttur. Hann er samstarfsverkefni Vídalíns- kirkju og Fjölbrautaskólans í Garða- bæ og í honum er ungt fólk sem syng- ur allt mögulegt enda er þetta gríðar- lega öflugur kór en hann hefur aldrei svarað tóni áður svo hann hefur verið að æfa það.“ Strax að lokinni samveru í kirkjunni er boðið upp á súpu og brauð sem fé- lagar í Lionsklúbbum Garðabæjar bera fram í safnaðarheimilinu. „Þeir gera þetta af mikilli ljúfmennsku herrarnir og það er öllum boðið,“ segir séra Jóna Hrönn. „Þar verður líka tískusýning frá hinni vinsælu verslun Ilse Jacob- sen í Garðabæ. Við viljum allar fara að sjá vorlínuna!“ Kvöldvaka verður svo í Bessastaða- kirkju klukkan 20 annað kvöld. Þar syngur gospelkórinn líka og ung kona úr kórnum, Matthildur Bjarnadóttir, flytur hugleiðingu um konur og Krist. „Jú, jú, þetta er dóttir mín,“ segir Jóna Hrönn aðspurð. „Hún er ansi góð að flytja hugvekjur enda hefur hún gert það frá því hún var unglingur. Hún er guðfræðinemi núna og ætlar að fjalla um konur og Krist. Það er vel við hæfi því það eru til margar sögur í Biblí- unni um það hvernig Kristur rétti hlut kvenna og minnti oft á það að konur og karlar væru sköpuð í guðs mynd bæði. Konudagurinn er ágætur til að minna á jafnrétti kynjanna. gun@frettabladid.is SÉRA JÓNA HRÖNN BOLLADÓTTIR: EFNIR TIL KVENNAMESSU Á MORGUN Vel við hæfi að fjalla um konur og Krist á þessum degi Í GÓÐUM FÉLAGSSKAP Séra Jóna Hrönn umkringd ungum stúlkum í kirkjunni þegar ljósmynd- arinn kom á staðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA BRYNJA BENEDIKTSDÓTTIR VAR FÆDD ÞENNAN DAG. „Listgrein leikarans er hræði- lega kröfuhörð. Hann verð- ur að leggja líkama sinn og sál, að ég tali nú ekki um geð- heilsu, á altari áhorfandans án nokkurrar miskunnar.“ Brynja (1938-2008) var mikil- virkur leikari og leikstjóri. Meðal leikverka sem hún setti upp voru Ínúk og Ferðir Guðríðar sem slógu í gegn, líka utan landstein- anna. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Kristín Magnúsdóttir Réttarholti, Garði, lést á Hjúkrunarheimilinu Garðvangi Garði, 17. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Útskálakirkju, laugardaginn 27. febrúar kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Rúnar Guðjón Guðmundsson Sylvía Hallsdóttir Guðný Anna Guðmundsdóttir Björn Gunnar Jónsson Magnús Helgi Guðmundsson Halla Þórhallsdóttir Birgir Þór Guðmundsson Þóranna Rafnsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. Fréttablaðið býður nú upp á birtingu æviminninga á tímamótasíðum blaðsins. Hafið samband í síma 512 5490-512 5495 eða sendið fyrirspurnir á netfangið timamot@frettabladid.is Æviminning Gísli Eirík ur Helgaso n Laugateigi 7 2, Reykjavík Gísli Eirík ur Helgaso n fæddist í Reykjavík 1. janúar 1 931. Hann lést á Hraf nistu í Ha fnarfirði 1 2. janúar síð astliðinn. Foreldrar hans voru Guðr ún Jónsdót tir frá Þing eyri í Dýrafirði f. 1917, d. 1988, og H elgi Gíslason fr á Ísafirði, f. 1915, d. 1970. Gísli Eirík ur bjó fyrs tu æviár sí n í Reykjavík en fluttist eftir það v estur til Ísafjarð ar með for eldrum sín um og systkin um. Systkini G ísla Eiríks eru Jón Hannes, f. 1933, Sigrí ður Ása, f. 1936 og G uðmundur , f. 1941. Eiginkona Gísla Eirí ks er Marg rét Magnú sdóttir hjúk r- unarfræði ngur, f. 4. apríl 1937 . Þau geng u í hjóna- band árið 1960. Börn Gísla Eirí ks og Mar grétar eru: 1) Magnús kennari, f . 1.5. 1972 , kvæntur Guðbjörgu Björnsdótt ur kennara , f. 30.11. 1 971. Börn þeirra eru Margrét, f. 17.2. 1997 og Björn J óhann, f. 2 0.1. 1999. 2) Helgi tæ knifræðin gur, f. 18.6 . 1975, í sa mbúð með Jórunni Dr öfn Ólafsdó ttur leiksk ólakennar a, f. 15.2. 1975. Þeir ra dóttir e r Þórunn Á sta, f. 24.12 . 2001. 3) Guðrún læ knir, f. 14. 11. 1979, í sambúð m eð Þór Halldórssy ni stjórnm álafræðing i, f. 6.6. 19 80. Gísli Eirík ur lauk sk yldunámi á Ísafirði e n hélt suð ur til Reykjav íkur 17 ára gamall til að nema h úsasmíði. Húsasmíð ar urðu æv istarf hans . Framan a f starfsæv- inni vann hann á Tré smíðaverk stæðinu Fu ru en eftir að hafa fengi ð meistara réttindi í i ðn sinni st ofnaði han n sitt eigið f yrirtæki, G ísli, Eiríku r, Helgi, se m hann át ti og rak þar til fyrir fá einum áru m. Stangveiði var aðaláh ugamál Gí sla Eiríks a lla tíð og sinnti h ann meða l annars tr únaðarstö rfum fyrir Stangveið ifélag Reyk javíkur. Útför Gísla Eiríks fer fram í dag kl. 13.00 í Fossvogskir kju. G 1 gason æddist í Hann firði 12. drar hans Þingeyri , og Helgi5, d. 1970. ár sín í að ve tur m sínum ur, f. úkr- u: u ð ur ð Gísli Eiríkur HelgasonTrésmíðameistariGísli Eiríkur Helgason fæddist í Reykjavík 1. janúar 1931. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 12. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðrún Jónsdóttir frá Þingeyri í Dýrafirði f. 1917, d. 1988, og Helgi Gíslason frá Ísafirði, f. 1915, d. 1970. Gísli Eiríkur bjó fyrstu æviár sín í Reykjavík en fluttist eftir það vestur til Ísafjarðar með foreldrum sínum og systkinum. Systkini Gísla Eiríks eru Jón Hannes, f. 1933, Sigríður Ása, f. 1936 og Guðmundur, f. 1941. Eiginkona Gísla Eiríks er Margrét Magnúsdóttir hjúkr- unarfræðingur, f. 4. apríl 1937. Þau gengu í hjóna- band árið 1960. Börn Gísla Eiríks og Margrétar eru: 1) Magnús kennari, f. 1.5. 1972, kvæntur Guðbjörgu Björnsdóttur kennara, f. 30.11. 1971. Börn þeirra eru Margrét, f. 17.2. 1997 og Björn Jóhann, f. 20.1. 1999. 2) Helgi tæknifræðingur, f. 18.6. 1975, í sambúð með Jórunni Dröfn Ólafsdóttur leikskólakennara, f. 15.2. 1975. Þeirra dóttir er Þórunn Ásta, f. 24.12. 2001. 3) Guðrún læknir, f. 14.11. 1979, í sambúð með Þór Halldórssyni stjórnmálafræðingi, f. 6.6. 1980. Gísli Eiríku lauk skyldunámi á Ísafirði en hélt suður til Reykjavíkur 17 ára gamall til að nema húsasmíði. Húsasmíðar urðu ævistarf hans. Framan af starfsæv- inni vann hann á Trésmíðaverkstæðinu Furu en eftir að hafa fengið meistararéttindi í iðn sinni stofnaði hann sitt eigið fyrirtæki, Gísli, Eiríkur, Helgi, sem hann átti og rak þar til fyrir fáeinum árum. Stangveiði var aðaláhugamál Gísla Eiríks alla tíð og sinnti hann meðal annars trúnaðarstörfum fyrir Stangveiðifélag Reykjavíkur. Útför Gísla Eiríks fer fram í dag kl. 13.00 í Fossvogskirkju. Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Ástkær tengdamóðir mín, amma okkar og langamma, Friðrika Tryggvadóttir lést á Dvalarheimilinu Hlíð Akureyri, laugardaginn 13. febrúar. Útförin verður gerð frá Akureyrarkirkju mánudaginn 22. febrúar kl. 13.30. Bestu þakkir viljum við færa starfsfólki á Dvalarheimilinu Hlíð fyrir góða umönnun. Kristín B. Alfreðsdóttir Pétur Ásgeirsson Friðrik Hreinsson Þórdís Ólafsdóttir Jóhanna Hreinsdóttir Jón Eðvald Halldórsson og barnabarnabörn. timamot@frettabladid.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.