Fréttablaðið - 20.02.2010, Síða 80
44 20. febrúar 2010 LAUGARDAGUR
menning@frettabladid.is
Myndlistarmaðurinn Krist-
ín Gunnlaugsdóttir sýnir
um þessar mundir í sal
Íslenskrar grafíkur hafnar-
megin í Hafnarhúsinu.
Kristín er þekkt fyrir falleg mál-
verk sem bera sterkan keim af helgi-
myndum, enda listakonan lærð á því
sviði. Það sem hún býður upp á nú er
algjörlega frábrugðið fyrri verkum.
Á sýningunni eru grófgerð vegg-
teppi sem sýna konur á nærgöngul-
an og hreinskilinn hátt.
„Móðir og barn er þema sem ég
hef meðal annars verið í undanfar-
in ár. Ég er enn að vinna með svip-
að myndefni en nálgast það inn um
allt aðrar dyr. Þess vegna er vel við
hæfi að sýningin er bakdyrameg-
in í Hafnarhúsinu,“ segir Krist-
ín. „Þessi sýning er mikil kúvend-
ing hjá mér þar sem ég var komin
á enda í fágaðri blindgötu. Ég er
að taka ákveðna áhættu með því
að standa með frumorkunni í mér.
Þetta er allt hluti af sköpunarferl-
inu en það hafa verið átök að standa
með sjálfri sér.“
Kristín segir ýmislegt hafa vald-
ið stefnubreytingunni, meðal annars
ólgan í þjóðfélaginu. „Hún hjálpaði.
Þörfin verður svo ríkjandi að koma
með hlutina upp á yfirborðið og
standa með sjálfum sér. Maður nýtir
sér áskorunina. Þrátt fyrir allt er
skurnin lítilsvirði. Ég hef getað selt
verkin mín og lifað á þessu, sem er
mikil heppni en það nægði ekki því
það skapar þá hættu að maður fest-
ist í hjólförum. Svo má líka segja að
ég hafi gengið gegnum hluti í einka-
lífinu sem ýtti þessu af stað. Ég er
sama eðlis og íslenska þjóðarsálin
að því leyti að vilja nýta mér áskor-
unina þegar það sem maður þekkir
er hrunið. Rétt áður en maður er að
gefast upp verður að prófa að breyta
til. Ég gerði það og þá fyrst náði ég í
skottið á sköpunargleðinni.“
Viðbrögð við veggteppum Krist-
ínar hafa verið kröftug en jákvæð.
„Fólk verður mjög hissa. Margar
konur fá flisskast. Á opnunni var
mikil gleði og léttleiki. Mörgum
léttir en sumir verða reiðir eins og
gengur þegar unnið er með tabú.
Aðrir hafa nú séð annað eins.“
Sýningunni lýkur 28. febrúar.
Sýningin er opin frá fimmtudegi til
sunnudags, á milli kl. 14 - 18. .
drgunni@frettabladid.is
Kraftakonur Kristínar
KRISTÍN GUNNLAUGSDÓTTIR Kúvendir á sýningu sinni í sal Íslenskrar grafíkur.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sunnudagur kl. 15.15
Á morgun kl. 15.15 halda tvær af
efnilegri tónlistarmönnum yngri
kynslóðarinnar, þær María Jónsdótt-
ir sópran og Ástríður Alda Sigurðar-
dóttir píanóleikari, tónleika í 15:15
tónleikasyrpunni í Norræna húsinu.
Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt
og hjartnæm. Sönglög eftir Sigvalda
Kaldalóns og Sibelius mæta pólsk-
um snillingum á borð við Chop-
in og Moniuszko, en einnig heyrast
hádramatískar óperuaríur. Miða-
verð er 1.500 kr., en 750 kr. fyrir eldri
borgara og nemendur.
> Ekki missa af …
Útvarpsleikhúsið frumflytur
Hlauptu náttúrubarn eftir
Andra Snæ Magnason kl. 14
á sunnudaginn. Verkið fjallar
um Ástu og Örvar sem fara
inn í borgina og ræna Sibbu,
sem er firrtur borgarmaðkur
að þeirra mati. Þau aka með
hana hringinn í kringum
landið með tónlist Jóns Leifs í
botni. Meiningin er að sleppa
Sibbu lausri úti í náttúrunni,
en ýmislegt fer öðruvísi en
ætlað var. Leikstjóri er Hjálmar
Hjálmarsson.
Gradualekór Langholtskirkju held-
ur tónleika á vegum Listafélags
Langholtskirkju á sunnudaginn
kl. 20. Meginverk tónleikanna er A
Little Jazz Mass eftir Bob Chilcott.
Messan var samin árið 2004 og
frumflutt í New Orleans sama ár.
Hún er samin við hinn klassíska,
latneska messutexta; Kyrie, Gloria,
Sanctus, Benedictur og Agnus Dei.
Hver kafli sýnir mismunandi stíl-
tegundir djassins svo sem groove-
funk, rokk, ballöðu og blues.
Með kórnum leika Einar Valur
Scheving á trommur, Kjartan
Valdemarsson á píanó, Sigurður
Flosason á saxófón og Valdimar
Kolbeinn Sigurjónsson á kontra-
bassa. Nokkrir kórfélaga koma
fram sem einsöngvarar en nítján
kórfélagar af tuttugu og sjö eru í
söngnámi ýmist við söngdeild Kór-
skóla Langholtskirkju eða í Söngs-
kólanum í Reykjavík.
Kórinn flytur fjölbreytt verk
auk messunar, bæði sígild og djass-
kennd. Miðasala er við inngang-
inn.
Gradualekórinn djassar
GRADUALEKÓR LANGHOLTSKIRKJU Ásamt Jóni Stefánssyni stjórnanda. Myndin er
tekin í Prag, en í fyrra hlaut kórinn gullverðlaun í kórakeppni í Tékklandi.
Trío Nordica heldur tón-
leika hjá Kammermúsík-
klúbbnum á sunnudaginn kl.
20. Tónleikarnir fara fram í
Bústaðakirkju. Á efnisskrá
eru píanótríó eftir Haydn,
Beethoven og hið stórbrotna
píanótríó eftir Tchaikovsky
op. 50.
Tríó Nordica var stofn-
að árið 1993 af þeim Auði
Hafsteinsdóttur, Bryndísi
Höllu Gylfadóttur og Monu
Kontra. Tríóið hefur fjölda
verka á verkefnaskrá sinni.
Fyrir utan helstu píanótríó
tónbókmenntanna er lögð
áhersla á að flytja verk eftir
konur, norræn píanótríó og
nútímaverk.
Fram undan hjá tríóinu er
fjöldi tónleika. Má þar nefna
tónleikaferð til Finnlands í
lok apríl auk þess sem tríó-
ið mun leika á tónlistarhátíð
í Svíþjóð í júlí.
Tónleikar Tríó Nordica
VERÖLD SEM VAR
LOKSINS
FÁANLEG
AFTUR
NÝ
KILJA
Norræna húsið
Mánudagur 22. febrúar kl. 12:00:
Höfundahádegi
Vilborg Davíðsdóttir og Jórunn Sigurðardóttir spjalla um
tilurð nýjustu bókar Vilborgar um landnámskonuna Auði
djúpúðgu. Vilborg sýnir slæður frá sögusviði bókarinnar á
Bretlandseyjum og myndir tengdar heimildavinnunni.
Allir velkomnir.
Mánudagsbíó 22. febrúar kl. 20:00:
Babettes gæstebud
Hin franska Babetta er líklega einn þekktasti kokkur
bókmenntasögunnar og máltíðin sem hún töfrar fram er
með eftirminnilegri bíómáltíðum. Árni Svanur
Daníelsson, guðfræðingur, mun ræða efni myndarinnar
áður en sýning hefst. Allir velkomnir.
Laugardagur 27. febrúar kl. 13-17: Málþing
Matur í bókmenntum og matreiðslubækur sem
bókmenntir
Katrín Jakobsdóttir, samstarfsráðherra Norðurlanda og
menntamálaráðherra, setur málþingið. Meðal þeirra sem
tala á málþinginu eru Nanna Rögnvaldardóttir, Helle
Brønnum Carlsen, Dagný Kristjánsdóttir og Sarah Moss.
Allir velkomnir.