Fréttablaðið - 20.02.2010, Page 84
48 20. febrúar 2010 LAUGARDAGUR
OKKUR
LANGAR Í
…
utlit@frettabladid.is
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
Anna Margrét Björnsson
Nýstirnið Rad Hourani hefur
vakið töluverða athygli undanfar-
in þrjú ár fyrir mínímalískar síl-
úettur í anda Helmuts Lang. Nýj-
asta línan hans sem var sýnd á
tískuvikuni í New York bar keim
af einhvers konar post-gothi og
fyrirsætur klæddust svörtum og
straumlínulöguðum fötum. Hour-
ani notaðist við leður og glans-
andi efni og úr varð afar nútíma-
leg og dálítið rokkuð lína sem
ætti að veita mörgum konum inn-
blástur. - amb
RAD HOURANI SÝNIR Í NEW YORK:
SÍÐGOTUNGAR Á FERLI
LEÐUR Vesti
í rokkabillístíl
við ljósar
þröngar galla-
buxur.
GLANS Silfurlit-
aður toppur við
þröngar buxur.
HÁR
KRAGI Töff
útfærsla af
rúllukraga-
peysu við
þröngar
leggings.
NÚTÍMALEGT
Svartur laus
kjóll við
leggings.
TÖFF
Skemmtilega
frumleg
kápa við
háglansandi
sokkabuxur.
Það er fagnaðarefni að Íslendingar hafa loks fundið eitthvað nýtt til að
tala um í stað Icesave: stóra kjólamálið á RÚV. Það er einnig, að mínu
mati, fagnaðarefni að fá svona hressandi innlegg eins og frá yfirmanni
fatahönnunardeildar LHÍ þar sem hún kallar kjóla ljóta. Mikið vildi ég
að fleiri væru jafn duglegir við að viðra skoðanir sínar hér á landi eins
og Linda Árnadóttir þar sem tíðkast að hafa engar skoðanir á neinu.
Það er að segja, fyrir utan baktal um allt og alla svona óopinberlega.
Það má samt aldrei segja neitt opinberlega af því þá fá allir kast. Eitt
skildi ég þó ekki í málflutningi Lindu en það var hvers vegna í ósköp-
unum það ættu yfirleitt að vera smekklegir kjólar hannaðir af fagfólki
innan tískugeirans fyrir undankeppni í Eurovision á Íslandi. Ef við
ætlum að fara að krefjast slíks af kjólunum, má ég þá biðja um aðeins
skárra lagaval líka. Og eftir „faglega“ höfunda, ekki tannlækna út í
bæ sem hafa lagasmíðar sem hobbí. Og hvað varðar bréf hönnuðarins
Birtu Björnsdóttur þá efa ég líka stórlega að æðsti draumur nemenda
LHÍ sé að hanna kjóla fyrir sjónvarpskynna í undankeppni Euro vision.
En hvað um það, allt þetta fár er gífurlega hressandi og vekur nauð-
synlegar spurningar um stöðu fatahönnunar á Íslandi sem af sumum
virðist afskrifast sem „kerlingarröfl“.
Ég hef ákveðinn grun um að eftir að hafa lesið bréf Lindu í Frétta-
blaðinu í gær um ástæður þessa harðorða tölvupósts að hún hafi hrein-
lega verið búin að fá upp í kok af hnakkvæðingu landsins. Linda talar
um undarlegan húðlit á sjónvarpsþulum og ljóst hár. Fyrir utan skoð-
un hennar á Star Trek-kjólunum, myndi ég telja að hún væri að skjóta
veikri herör á þann lágklassasmekk sem tröllríður öllu þessa dagana í
dægurmenningunni. En ó, já þá er hún væntanlega kölluð snobbuð og
við eigum auðvitað aldrei að gagnrýna neitt. En mikið er ég sammála
því þegar hún segist vilja fjölbreyttari fyrirmyndir í sjónvarpi en
sjást núna í fjölmiðlum. Ekki langar mig að sjá dóttur mína útklínda í
brúnkukremi þegar hún verður unglingur og ráfa um á djamminu ber-
leggjaða með appelsínugult andlit. Nei, þá vonandi skoðar hún gamlar
myndir frá árinu 2010 og segir, nei sko mamma, voru þetta skinkurn-
ar?
Herör gegn hnakkavæðingu?
Töfrakrem Crème
de Rose frá Christian
Dior er án efa besti
varasalvi sem þú
getur ímyndað þér.
Mýkir, sléttir og gerir
varirnar þrýstnari!
> SCORCESE OG CHANEL
Tískuhúsið Chanel hefur tilkynnt að leikstjórinn
Martin Scorcese hafi verið fenginn til að leik-
stýra nýjustu auglýsingaherferð þess. Herferðin
er fyrir nýjan rakspíra og franski leikarinn og
hjartaknúsarinn Gaspard Ulliel er andlit línunn-
ar. Rakspírinn kemur á markaðinn í september.
Mýkjandi sápa Savon Ultra-riche
visage er nýjung frá l‘Occitane og er
frábær fyrir þurra húð.
Glamúr peysa
Flott gyllt peysa
lífgar upp á
hvunndaginn. Fæst í
Topshop.