Fréttablaðið - 20.02.2010, Page 86
50 20. febrúar 2010 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
„Fyrsta lagið sem ég heyrði var
Bahama og ég kunni strax vel að
meta það,“ segir Frakkinn Mathi-
eu Balaguer.
Mathieu er einlægur aðdáandi
Veðurguðanna, þrátt fyrir að hafa
aldrei komið til Íslands. Hann fann
hljómsveitina á vefsíðum eins og
Myspace og Youtube og bíður jafn-
an spenntur eftir nýjum lögum.
„Þeir eru reyndar ekki þekktir í
Frakklandi,“ segir hann og bætir
við að lög eins og Drífa, Gesta list-
inn, Vá hvað ég fíla‘na og Þessi
hljómsveit séu virkilega svöl.
„Þeir virðast ekki vera á leiðinni
til Frakklands á næstunni, en ég
óska þess að sjá þá einn daginn á
sviði,“ segir Mathieu. „Það hlýtur
að vera frábært og ég er viss um
að ég myndi elska það!“
Mathieu á ekki plötuna Góðar
stundir, sem Ingó og Veðurguðirnir
gáfu út í fyrra, en hann er duglegur
að fylgjast með lögunum sem birt-
ast á Netinu. Textarnir eru allir á
íslensku og hann hefur notað Goog-
le þýðingarvélina til að skilja þá.
„Textarnir skipta máli fyrir mig og
íslenska er svo fallegt tungumál,“
segir hann. „Eftir að ég byrjaði að
hlusta á Veðurguðina, Hvanndals-
bræður og Hjaltalín er ég byrjaður
að skilja nokkur orð!“ - afb
Elskar Veðurguðina
FRANSKUR AÐDÁANDI Mathieu hefur ekki komið til Íslands, en hlustar á íslenska
tónlist á netinu.
> AFTUR Í MEÐFERÐ
Tiger Woods talaði í fyrsta skipti um
margfalt framhjáhald sitt við fjölmiðla í
gær. Hann viðurkenndi að hafa brugð-
ist fjölskyldu sinni og aðdáendum, baðst
afsökunar, sagðist vera á leiðinni í frek-
ari meðferð og sagðist ekki vita hvenær
hann myndi snúa aftur á golfvöllinn.
„Ég er bara ánægður með þetta. Það
er gott að vera kominn með þessi mál
á hreint,“ segir Hafnfirðingurinn Frið-
rik Dór Jónsson sem hefur skrifað undir
útgáfusamning við Senu. „Núna getur
maður farið að einbeita sér að því að búa
til góða tónlist.“
Samningurinn felur í sér útgáfu á
fyrstu sólóplötu hans sem er væntanleg
í haust. Honum til halds og traust verður
upptökuteymið Redd Lights, sem hefur
verið að hasla sér völl að undanförnu.
Friðrik Dór sló í gegn síðasta sumar
með laginu Hlið við hlið sem var þriðja
mest spilaða íslenska lagið á FM 957 á
síðasta ári. Nýja lagið hans, Á sama stað,
sem hann gerði með rapparanum Erpi
Eyvindarsyni, hefur einnig hlotið góðar
viðtökur.
Friðrik, sem sérhæfir sig í dúnmjúkri
R&B-tónlist, er sjóðheitur um þessar
mundir. Hann kom fram í spjallþætti
Loga Bergmanns í gærkvöldi og í kvöld
stígur hann á svið á konukvöldi FM 957
ásamt Haffa Haff, Í svörtum fötum og
fleiri tónlistarmönnum. „Þetta verður
vonandi bullandi stemning,“ segir hann
um konukvöldið.
Jón Gunnar Geirdal hjá Senu segir
útgáfuna hafa tröllatrú á Friðriki. „ Við
erum mjög spenntir og bindum miklar
vonir og væntingar við hann,“ segir Jón
Gunnar. „Það er gaman að koma fram
með ungan og ferskan listamann sem er
með frambærilegt og gott efni,“ segir
hann og útilokar ekki að 2010 verði árið
hans Friðriks: „Þetta getur klárlega
verið árið hans og hann á pottþétt eftir
að kremja einhver hjörtu. Hann hefur
alla burði til að verða poppstjarna.“ - fb
Friðrik Dór til Senu
SAMNINGUR Í HÖFN Friðrik Dór við undirritun
samningsins ásamt Jóni Gunnari Geirdal hjá
Senu.
Sacha Baron Cohen, maðurinn á bak við karaktera á borð við Bruno
og Borat, var fyrsta val þegar leit hófst að kynni. Eins og fram
hefur komið þá hafa silfurrefirnir Alec Baldwin og Steve Martin
verið fengnir til verksins, en Cohen þótt einfaldlega of grófur og
óútreiknanlegur.
Nýir framleiðendur hátíðarinnar greindu nýlega frá þessu í
útvarpsviðtali. Þeir sögðu forsvarsmenn akademíunnar hafa harð-
neitað þegar þeir stungu upp á því að fá Cohen í verkið og sagt að
hann væri allt of villtur. Hátíðin fer fram 7. mars.
Of grófur fyrir Óskarinn
Heimildarmyndin Living on
the Edge hefur verið seld
til sjónvarpsstöðvarinnar
National Geographic. Um
390 milljónir manna horfa á
hana á degi hverjum.
„Maður kemst ekkert lengra með
heimildarmynd en að selja hana
þessum mönnum,“ segir leikstjór-
inn Jóhann Sigfússon.
Heimildarmynd hans Living on
the Edge hefur verið seld til sjón-
varpsstöðvarinnar National Geog-
raphic International. Þar verður
hún sýnd víðsvegar um heiminn í
haust en samkvæmt nýjustu tölum
horfa um 390 milljónir manna á
stöðina á degi hverjum. Þrátt fyrir
mikinn áhuga erlendis frá verður
hún ekki sýnd í Ríkissjónvarp-
inu. „Núverandi dagskrárstjóra
Ríkissjónvarpsins fannst mynd-
in ekki vera nógu góð til að Sjón-
varpið gæti sýnt hana og segir það
mikið um ástand Ríkissjónvarps-
ins í dag,“ segir Jóhann og er mjög
undrandi á þessari ákvörðun.
Það er fyrirtækið Profilm, sem
verður einmitt tuttugu ára á mánu-
daginn, sem framleiðir myndina.
Hilmar Örn Hilmarsson samdi
tónlistina og Neil McMahon er
handritshöfundur og sögumað-
ur. Ætlunin er að myndin, sem
er 52 mínútna löng, sýni sálina í
íslensku þjóðinni. Engin viðtöl eru
í henni heldur fjallar sögumaður
um það sem fyrir augu ber, þar
sem íslensk náttúra er áberandi.
Living on the Edge var að stórum
hluta tekin á Húsavík og þar verð-
ur myndin einmitt frumsýnd í dag
á Hvalasafninu. „Þetta er sætur
bær sem við notuðum sem svið
fyrir þessa mynd,“ segir Jóhann
um Húsavík. „Þetta er mynd
sem við gerðum út af kreppunni
á sínum tíma. Í staðinn fyrir að
gera Guð blessi Ísland-mynd lang-
aði okkur að gera mynd sem myndi
rétta af orðstír Íslands.“
Tvær aðrar myndir frá Profilm
verða sýndar á National Geogra-
phic, en samt ekki fyrr en á næsta
ári. Fyrst ber að nefna The Disapp-
earing World of the Asian Elep-
hant sem fjallar um þá staðreynd
að asíski fíllinn verður útdauður
eftir fimmtíu ár ef ekkert verður
að gert. Hin er í svipuðum anda og
Living on the Edge en gerist á Taí-
landi. „Við þurftum að snúa vörn
í sókn því það er ekkert að gera
heima. Það er gjörsamlega búið
að eyðileggja kvikmyndaiðnaðinn
á Íslandi,“ segir Jóhann. Af þeim
sökum einbeitir Profilm sér nán-
ast alfarið að erlendu efni í stað
íslensks. freyr@frettabladid.is
Sýnd 390 milljónum manna
JÓHANN SIGFÚSSON Heimildarmyndin Living on the Edge hefur verið seld til Nation-
al Geographic.
„Snilldarlega samin og viðburðarík
skáldsaga sem smám saman þróast
í spennuþrunginn reyfara.“
„… virkilega góð bók sem ég mæli
eindregið með að ÞÚ lesir.“
Margverðlaunuð
metsölubók
Frumútgáfa í kilju
10. –16.02.10 S
K
Á
LD
V
ER
K
, V
A
S
A
B
R
O
T
Fyrsta lífvarðanámskeið á Íslandi
Öryggisvarðaskólinn
14 til 28 Nóvember 2009
Sími: 698 1666
k li i
Lífvarðanámskeið á Íslandi í mars
Terr security býður upp á
starfsmöguleika á heimsvísu