Fréttablaðið - 13.03.2010, Page 6
6 13. mars 2010 LAUGARDAGUR
EFNAHAGSMÁL Hagvöxtur þarf að
vera fimm prósent á næstu árum
ef uppræta á atvinnuleysi, endur-
heimta lífskjör og greiða niður
skuldir ríkisins, er mat Vilhjálms
Egilssonar, framkvæmdastjóra
Samtaka atvinnulífsins (SA). Fyrir-
liggjandi spár gera hins vegar ráð
fyrir að hagvöxtur verði um tvö
prósent. Ef ekki verður gripið til
aðgerða stefnir
í „áratug hinna
glötuðu tæki-
færa“, að hans
mati.
S A s t ó ð u
fyrir fundi um
atvinnumál í
gær þar sem
stefnumörkun
samtakanna
um endurheimt
fyrra atvinnu-
stigs og lífskjara hér á landi var
kynnt. Setja verður atvinnusköp-
un í forgang, sérstaklega með fjár-
festingum og vexti í útflutnings-
greinum, sagði Vilhjálmur.
„Með þessu sköpum við störf
við uppbygginguna sjálfa, aukum
eftirspurn í hagkerfinu en ekki síst
þá verða til framtíðarstörf sem
eru varanleg,“ sagði Vilhjálmur.
Hann nefndi fjárfestingar í ferða-
mannaiðnaði og „að stórfjárfest-
ingar verði að ná fram að ganga“.
Þar vísaði hann til stækkunar á
álveri í Straumsvík, byggingar
álvers í Helguvík og virkjana. Þess
utan verði lítil og meðalstór fyrir-
tæki að byrja fjárfestingar enda
séu þau mörg sem standi ósködd-
uð eftir hrunið. Vextir verði í því
ljósi að lækka, og það strax.
„Stjórnvöld verða að vinna með
atvinnulífinu. Ekki draga það í
dilka. Þau verða að starfa með
stóriðjunni; með sjávarútvegi og
litlu fyrirtækjunum, ferðaþjón-
ustu, verslun og þjónustu. Þetta
er lykilatriði en ekki að skilgreina
fyrirtæki og atvinnugreinar sem
vandamál“, sagði Vilhjálmur.
Vilhjálmur sagði að markmiðið
væri að auka útflutning um sjö til
átta prósent á ári. Það gæfi 60 til
70 milljarða á ári í nýjum útflutn-
ingi til ársins 2015. Hann sagði að
þetta markmið virtist fjarlægt en
svo væri ekki. Hann sagði raun-
hæft að ná sjö milljörðum til við-
bótar frá sjávarútvegi, tólf millj-
arðar frá ferðaþjónustu væru
í hendi miðað við spár og bara
stækkun í Straumsvík og bygging
álvers í Helguvík myndi skila öðru
eins í stóriðju. „Á sprotaþingi um
daginn kom fram að átján hátækni-
fyrirtæki ætla að auka útflutning
um átta milljarða á næsta ári. Öll
önnur fyrirtæki þurfa þá að koma
með aðra 22 milljarða. Þá næst
takmark okkar.“
svavar@frettabladid.is
Ellefu þúsund störf
töpuðust í hruninu
Samtök atvinnulífsins hafa birt ítarlega stefnumörkun í atvinnumálum. Stjórn-
völd verða að vinna jafnt með öllum og mega ekki skilgreina einstakar atvinnu-
greinar sem vandamál, segir framkvæmdastjóri samtakanna.
VILHJÁLMUR
EGILSSON FJÖLMENNUR FUNDUR SA Vilhjálmur endaði ræðu sína á eindregnum hvatningar-
orðum um að þjóðin gæti risið úr öskustónni ef samtakamátturinn yrði virkjaður.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra segir að hagkerf-
ið sé hundrað milljörðum stærra
en menn gerðu ráð fyrir að það
yrði á þessum tímapunkti. Hann
segir það skipta gríðarlegu máli
að hagkerfið sé þetta miklu öfl-
ugra þegar horft er til uppbygg-
ingar næstu ára.
Steingrímur var gestur Sam-
taka atvinnulífsins á fundi þeirra
í gær. Hann skýrði stöðu og horf-
ur í efnahagsmálum frá sinni hlið
og ræddi horfur í atvinnumál-
um í því samhengi. Hann sagði
stöðuna um margt betri en menn
hefðu þorað að vona og hnykkti á
þeirri skoðun sinni hversu mjög
Icesave-málið hefði tafið fyrir
uppbyggingu, og hversu kostnað-
arsamt það mál er þegar orðið.
Þá fór hann í gegnum niðurskurð
á útgjöldum og skattahækkanir
„sem við teljum að sé algjörlega
í samræmi við ramma stöðug-
leikasáttmálans“, sagði Stein-
grímur og gaf lítið fyrir gagn-
rýni úr atvinnulífinu og víðar um
aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar
með sínum hætti.
„Ég er að verða leiður á þessu
kjaftæði að ég eða ríkisstjórn-
in séum ekkert að gera í þess-
um efnum,“ sagði Steingrím-
ur og vísaði meðal annars til
umræðu um fjárfestingar í orku-
geiranum. Hann bað forstjóra
orkufyrirtækjanna, væru þeir í
salnum, að standa upp og stað-
festa að hann hefði skrifað fjöl-
mörg „ástarbréf“ til lánardrottna
þeirra í glímunni við að leysa
aðsteðjandi vanda og til að liðka
fyrir lánum til fjárfestinga.
Þá taldi Steingrímur það
tímabært að menn myndu
biðja Svandísi Svavarsdóttur
umhverfisráðherra afsökunar á
orðum sem féllu um stjórnsýslu
í kringum Suðvesturlínu, sem
væri afgreidd frá hennar hendi
en biði fjármögnunar sem væri
ástæða tafa í uppbyggingunni.
- shá
Fjármálaráðherra hélt eldmessu yfir atvinnurekendum á fundi í gær:
Orðinn leiður á kjaftæðinu
FRÁ FUNDI SA Fundarstjóri kallaði
erindi Steingríms J. Sigfússonar „eld-
messu“. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Stjórnvöld verða að vinna
með atvinnulífinu. Ekki
draga það í dilka. [...]ekki að
skilgreina fyrirtæki og atvinnu-
greinar sem vandamál
VILHJÁLMUR EGILSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI SA
í Kópavogi
Aðalfundarboð
Aðalfundur Samfylkingarfélagsins
í Kópavogi verður haldinn 15. mars
næstkomandi, kl. 20.30 í Hamraborg
11 - 3. hæð.
DAGSKRÁ FUNDAR
1. Skýrsla stjórnar
2. Lagðir fram reikningar
3. Kosning formanns
4. Kosning fjögurra aðalmanna í stjórn og tveggja til vara
5. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
6. Kosning þriggja manna uppstillingarnefndar
7. Önnur mál
Setning aðalfundar
Skýrsla stjórnar um starfsemi VM
Reikningar félagsins og sjóða
Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga
Reglugerðar- og lagabreytingar
Lýst kjöri stjórnar og varastjórnar VM í stjórnarkjöri 2010
Kjör í nefndir og stjórnir sjóða
Kynning á uppbyggingu á orlofssvæði VM á Laugarvatni
Önnur mál
Boðið verður uppá léttar veitingar eftir fundinn
STJÓRNMÁL „Við verðum að finna lausnir á lofts-
lagsvandanum áður en við lendum í frjálsu
falli,“ segir Mohammed Nasheed, forseti Mald-
íveyja, sem staddur er í stuttri heimsókn hér á
landi.
Baráttan gegn breytingum á loftslagi jarð-
ar er sérlega brýn á Maldíveyjum, sem eru
skammt suður af Indlandi, því hæsti staður
þeirra er aðeins 2,4 metrum yfir sjávarmáli.
Þær myndu því sökkva að stórum hluta ef yfir-
borð sjávar hækkar verulega.
„Áhrifin yrðu þau sömu og hér á landi,“ sagði
hann á Bessastöðum í gær, og benti á að sjórinn
myndi flæða upp að Bessastöðum ef yfirborð
hans hækkar. „Það er nákvæmlega sama staðan
heima hjá mér, sjórinn myndi ná upp að húsinu
mínu,“ segir hann.
Nasheed hefur ferðast víða um heim til að
leggja áherslu á mikilvægi þess að draga úr
losun gróðurhúsalofttegunda, og segist hlakka
til að fá Íslendinga í lið með sér. Hann segist í
þessari heimsókn hafa áttað sig á því að Íslend-
ingar og íbúar Maldíveyja búa við mjög svipað-
ar aðstæður.
„Við erum í aðalatriðum sama þjóðin,“ segir
hann. „Við erum 350 þúsund, rétt eins og þið,
og dreifumst niður á lítil byggðarlög, þótt hjá
okkur séu þau á litlum eyjum. Atvinnuhættirnir
eru svipaði, fiskveiðar og ferðaþjónusta.“
- gb
Forseti Maldíveyja segir Íslendinga samherja sína í baráttunni gegn hlýnun jarðar og hækkun sjávarborðs:
Við erum í aðalatriðum sama þjóðin
MOHAMMED NASHEED OG ÓLAFUR RAGNAR GRÍMS-
SON Hafa ákveðið að ferðast saman um heiminn með
þann boðskap til þróunarlanda að þau geti haldið
áfram að þróast án þess að eyðileggja jörðina.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Myndir þú styðja lagasetningu
gegn hugsanlegu verkfalli flug-
umferðarstjóra?
Já 67,9
Nei 32,1
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hafa hin ýmsu hagsmunasam-
tök verið sanngjörn í gagnrýni
sinni á ríkisstjórnina?
Segðu skoðun þína á Vísi.is
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
KJÖRKASSINN