Fréttablaðið - 13.03.2010, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 13.03.2010, Blaðsíða 60
 13. MARS 2010 LAUGARDAGUR6 Það er gömul saga og ný að orð eru vanbúin að lýsa þeirri reynslu sem við njótum í tónlistinni. Orð eins og „dýpt“ eða „breidd“ hljóma fárán- lega þegar fjallað er um tónlist því hún hefur sínar eigin víddir sem eru lítt skyldar öllum öðrum vídd- um. Sömuleiðis þarf að teygja sig langt til að samþykkja að tónlist geti sagt ákveðna sögu hjálparlaust. Samt er það svo að í réttu hlutfalli við fáránleika þess að tengja tón- list hinu sértæka er sú tilfinning ósvikin sem sannfærir okkur um að hún sé annaðhvort innihaldsrík eða rýr. Og þótt fallist sé á að tón- list geti ekki sagt ákveðna sögu er hitt jafn öruggt að okkur finnst hún segja sögu þegar best lætur. Að hlusta á tónlist Jóns Nor- dals er eins og að skyggnast inn í annan og betri heim en þann sem við okkur blasir dagsdaglega. Það er hátíð. Á hátíðum rifjast það upp að auk hins hversdaglega yfir borðs er til það sem kalla mætti innihald. Þetta ætti ekki að þurfa að nefna sérstaklega en því er oft haldið fram, beint og óbeint, að innihald tónlistar felist í yfirborði henn- ar og því er ekki úr vegi að nefna hið augljósa: innihald og yfirborð eru ekki eitt og hið sama. Það er ekki þar með sagt að annað skuli rækta á kostnað hins. Í tónlist Jóns er einmitt jafnvægi milli yfirborðs og innihalds. Hún er mjög áferðar- falleg, en ekki vegna þess að hún sé að eltast við það sem talið er vera fallegt í heimi hverfullar tísku, heldur vegna hins, að það er eins og hún komi innan frá eftir ein- arða glímu við fjölbreyttan efni- við. Sú spurning vaknar hvort til sé eitthvað sem nefna mætti innsta kjarna í okkur mönnunum og hvort þar sé allt sem okkur viðkemur og meira að segja allt hvað með öðru í einum og sama punktinum. Reyndar hvarflar ekki að mér að reyna að sanna með orðum að svo sé. Þegar ég hlusta á tónlist Jóns Nordals finnst mér ég heldur ekki þurfa þess. Hún er ríkuleg og það fer ekki á milli mála að hún kemur úr innsta kjarna. Sömuleiðis er auðheyrt að allt tekur mið hvað af öðru í tónlist Jóns. Og sagan sem okkur finnst hún segja hefur allt- af verið til. Snorri Sigfús Birgisson Skyggnst inn í betri heim ● Jón Nordal er heiðursverðlaunahafi Íslensku tónlistarverðlaunanna 2010. PISTILL Helstu verk Smávinir fagrir, 1940 Systur í Garðshorni, 1944 Konsert fyrir hljómsveit, 1949 Fiðlusónata, 1952 Hvert örstutt spor, 1954 Píanókonsert, 1956 Adagio, 1966 Leiðsla, 1973 Kveðið í bjargi, 1978 Tvísöngur, 1979 Choralis, 1982 Sellókonsert, 1983 Óttusöngvar á vori, 1993 Requiem, 1995 Haustvísa, 2000 Jón Nordal er fæddur í Reykjavík árið 1926. Hann hóf píanónám hjá Friedu Briem ellefu ára gamall og aðeins tveimur árum síðar lék hann nokkur smálög eftir sjálfan sig í útvarpið, án þess að láta höfundar getið. Hann lærði síðan við Tónlistarskólann í Reykjavík, meðal ann- ars undir handleiðslu Árna Kristjánssonar píanóleikara og Jóns Þór- arinssonar tónskálds. Að loknu burtfararprófi í píanóleik og tónsmíð- um hélt hann áfram tónsmíðanámi hjá Willy Burkhard og Walter Frey í Zürich á árunum 1949-51 auk þess sem hann sótti hin víðfrægu sumar- námskeið í Darmstadt 1957, þar sem helstu framúrstefnutónskáld álf- unnar komu saman. Jón var skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík 1959-92 auk þess sem hann var einn af stofnendum Musica Nova árið 1959 og fyrsti formaður þess. Á æfingu á Choralis ásamt Rostropovich í Kennedy Center. Jón með nýstofnuðum Musica Nova-hóp í Tónlistarskólanum í Skipholti. Tveir snillingar. Jón Nordal og Jón Leifs spjalla saman í ráðhúsinu í Ósló árið 1953 eða 1954. Jón Nordal með Einari Vigfússyni í Hljómskálanum, þá húsnæði Tónlistarskólans í Reykjavík. Jón yfirgefur skrifstofu sína eftir 33 ár í starfi skólastjóra Tónlistarskólans í Reykjavík. Með Jóni á mynd er eftirmaður hans, Halldór Haraldsson píanóleikari. M YN D / Ú R EIN KA SA FN I JÓ N S N O RD A L O G SO LVEIG A R JÓ N SD Ó TTU R M YN D /Ú R EIN KA SA FN JÓ N S N O RD A L O G EIG IN KO N U H A N S SO LVEIG A R JÓ N SD Ó TTU R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.