Fréttablaðið - 13.03.2010, Blaðsíða 40
„Fermingarfræðslan er byggð
þannig upp að ég hitti þau tvær
langar helgar, einu sinni í sept-
ember og einu sinni í maí. Svo
hitti ég þau einu sinni í mánuði
hér á Óslóarsvæðinu og aðeins
sjaldnar þau börn sem eru úti á
landi,“ segir séra Arna Grétars-
dóttir prestur Íslendinga í Nor-
egi.
Arna flutti til Noregs fyrir
rúmum tveimur árum og hefur
því séð um fermingarfræðsluna
í Noregi einu sinni áður. „Í fyrra
var ég með tíu börn en í ár er ég
með 22,“ upplýsir hún og telur lík-
legt að aukinn fjöldi Íslendinga í
Noregi geti að sumu leyti skýrt
þessa fjölgun milli ára.
Þótt börnin hljóti fermingar-
fræðsluna hjá Örnu er misjafnt
hvar þau eru síðan fermd. „Það er
allur gangur á því. Hluti af þeim
fermist hérna úti, önnur fermi
ég í sumar eftir að skóla lýkur
og svo eru önnur sem fermast
með frændsystkinum hjá öðrum
prestum um páskana á Íslandi,“
útskýrir Arna.
En eru krakkarnir trúaðir?
„Það er æði misjafnt. Þau eru allt
frá því að vera mjög mótuð trúar-
lega og til þess að vera leitandi og
með margar spurningar. Ég hvet
þau til að koma inn í fermingar-
fræðsluna hvort sem þau eru viss
um að þau ætli að fermast eða
ekki því ákvörðunina þurfa þau
ekki að taka strax.“
Séra Arna var áður prestur á
Seltjarnarnesi og segir ferming-
arfræðsluna þar með allt öðru
sniði. Þar sáu tveir prestar um
áttatíu börn og því mun minna um
persónulegt samband við börnin.
„Hér er það meira eins og að
vera í sveitinni þó við séum í stór-
borginni Ósló. Ég fæ þau heim og
við horfum á myndir og spáum
í trúarstöðu í kvikmyndum. Við
höfum það huggulegt með skúffu-
köku og foreldrarnir koma í kaffi.
Maður getur nálgast þetta á allt
annan hátt,“ segir hún glaðlega.
„Og skipta gjafirnar jafn miklu
máli í Noregi og á Íslandi? „Já,
og mér finnst það bara allt í lagi.
Mér þætti óeðlilegt að hitta ferm-
ingarbarn sem væri ekki spennt
yfir að fá gjafir. Við hin fullorðnu
erum eins, okkur þykir gaman að
fá gjafir,“ segir hún og hlær.
solveig@frettabladid.is
Sér um fermingarfræðslu
íslenskra barna í Noregi
Séra Arna Grétarsdóttir er prestur Íslendinga í Noregi. Hún er nú með 22 íslensk börn í fermingarfræðslu
en misjafnt er hvort þau fermist í Noregi í sumar eða ferðist til Íslands fyrir athöfnina.
Séra Arna Grétarsdóttir flutti til Noregs haustið 2007 og segir gott að búa þar. „Hér er notalegt og stresslaust andrúmsloft og
Norðmenn eru almennilegt fólk,“ segir hún.
MYNDIR af fermingarbarninu í ramma eru
skemmtilegt skraut á fermingar- eða gjafa-
borðið. Þá geta þær einnig vakið skemmtilegar
umræður um liðna tíma.
Laugavegi 87 • sími: 511-2004
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is
sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is
sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is
sími 512 5447
Miðvikudaga