Fréttablaðið - 13.03.2010, Page 24

Fréttablaðið - 13.03.2010, Page 24
24 13. mars 2010 LAUGARDAGUR D ómurinn yfir fimm mönnum, sem fyrr í vikunni voru dæmdir í fimm ára fangelsi hver fyrir mansal, varpar nokkru ljósi á harðan heim, sem er orðinn til hér á landi en er fram- andi í augum flestra landsmanna. Framganga mannanna, sem hafa ekki einu sinni reynt að hylja andlit sín eins og flestir sem leiddir eru fyrir dómara, heldur glotta fram- an í myndavélarnar, er hugsanlega ekki til marks um sakleysi þeirra, heldur forherðingu. S a m k v æ m t h æ t t u m a t i greiningardeildar ríkislögreglu- stjóra sem lagt var fram í mansals- málinu og Fréttablaðið hefur undir höndum útdrátt úr, heldur fjöldi harðsvíraðra glæpamanna frá Lit- háen til hér á landi. Þessir menn hika ekki við að beita grófu ofbeldi telji þeir stöðu sinni eða hagsmun- um ógnað. Þeir halda uppi skipu- lagðri glæpastarfsemi og tengjast glæpagengjum í Litháen, sem einn- ig láta til sín taka erlendis. Man- salsdómurinn staðfestir að glæpa- menn halda fólki í ánauð á Íslandi. Austur-evrópskir glæpahópar flytja menn hingað til lands gagn- gert til þess að fremja afbrot. Fréttablaðið hefur rætt við ýmsa aðila innan löggæslunnar sem fylgst hafa með þessari þróun starfa sinna vegna og lýsa veruleg- um áhyggjum af stöðunni. Það er samdóma álit þeirra sem Fréttablaðið hefur rætt við að alþjóðleg glæpastarfsemi hér sé ekki eins alvarleg og á hinum Norðurlöndunum, sér í lagi í Dan- mörku, Noregi og Svíþjóð. Hins vegar koma alþjóðlegir glæpa- hringir við sögu í fíkniefnamál- um, bæði varðandi innflutning og framleiðslu, skipulögðu vændi, handrukkunum, mansali og kúgun- um ýmiss konar. Bent er á að mansal er ekki ein- vörðungu fólgið í kynlífsþrælkun, heldur einnig að fólk sé flutt hingað til lands til að stunda atvinnu og svo er skuldin „endalaus“. Viðkomandi nýtur einungis lítils hluta af launa- tekjum sínum og þarf árum saman að greiða ferðakostnað og þóknun fyrir starfið. Einstaklingurinn er í raun ekki frjáls ferða sinna. Ljóst er talið að íslenskir brota- menn hafa aukið samstarf sitt við erlenda aðila varðandi fíkniefna- innflutning, eins og sjá má af þeim stóru málum sem upp hafa komið. Flest burðardýr eru af erlendum uppruna og eiga að vera í samskipt- um við einhverja hér. Mikill ótti hindrun Þegar mansalsmálið á Suðurnesj- um kom upp var áætlun fyrir fórn- arlömb mansals, sem hafði verið samþykkt af ríkisstjórn, í fyrsta sinn hrint í framkvæmd. Meiri áhersla var lögð á að vernda meint fórnarlamb en almennt gerist og krafðist það bæði mannafla og fjármuna. Málið var umfangsmik- ið í rannsókn og mikill ótti vitna og meints fórnarlambs var nokkur hindrun. Hin nýja áætlun reyndi fyrst og fremst á stuðning við meint fórnar- lamb og að tryggður væri dvalar- réttur konunnar hérlendis. Önnur nýjung sem til kom vegna mansalsmálsins var hættumat sem greiningardeild Ríkislögreglu- stjóra vann. Matið laut meðal ann- ars að öryggi meints fórnarlambs og tveggja vitna og var lagt fram í framsalsmálinu. Það náði einnig til annarra landa. Hættumat hefur einnig verið notað í tengslum við frávísanir og brottvísanir Vítis- engla frá Íslandi. Tengsl við skipulagða glæpahópa Lögregla hefur vitneskju um að Litháarnir sem eru í brotastarf- semi hér á landi séu með tengsl við Íslendinga, en ekki hefur tekist að sanna að þeir Íslendingar sem um ræðir séu brotamenn. Þá eru fyrir hendi nokkuð áreið- anlegar ábendingar um tengsl man- salsmannanna við litháískar deild- ir mafíunnar. Hins vegar eru svo til að mynda pólsk gengi sem hafa komið hing- að til lands gagngert til þess að brjóta af sér, einkum með innbrot- um og þjófnuðum. Hvað varðar tengsl þessara manna við heima- landið virðist ekki hægt að tala um þaulskipulagða mafíu, heldur er sagt að þar séu margar sjálf- stæðar glæpaklíkur. Það virðist þó almennt viðurkennt að starfsem- inni sé stjórnað af tveimur megin- hópum þar í landi. Sögusagnir hafa verið um að erlendar glæpaklíkur sendi menn hingað til lands til hefnda, en ekk- ert hefur verið staðfest um það í rannsóknum lögreglu. Fórnarlömb send milli landa Algengt er að fórnarlömb man- sals séu send á milli staða innan- lands og milli landa þar sem tími þeirra á hverjum stað er takmark- aður. Fyrir vikið verður lögregla oft að hafa skjótar hendur ef tak- ast á að hafa hendur í hári glæpa- mannanna, sem versla með fólk. Lögreglulið í Evrópulöndum hafa með sér mikla samvinnu í málum sem tengjast skipulagðri glæpa- starfsemi en þau mál eru yfirleitt erfið í sönnun vegna hræðslu fórn- arlamba og mögulegra vitna. Litháísk yfirvöld höfðu hafið rannsókn á mansali í heima- landinu. Aukinn kraftur er boð- aður í þeirri rannsókn eftir að mansalsmálið með litháíska fórnarlambinu kom upp hér á landi. Enn hefur þó enginn verið handtekinn ytra vegna rannsókn- arinnar svo vitað sé. Viðbúnaður lögreglu hefur verið aukinn vegna vísbendinga um vax- andi skipulagða glæpastarfsemi hér á landi. Verið er að herða eftir- lit með landamærum, starfsmenn lögreglu hafa verið sendir á nám- skeið erlendis og meiri viðbúnað- ur er gagnvart mögulegu mansali í kjölfar mansalsmálsins á Suð- urnesjum. Ekki fæst uppgefið í hverju sá viðbúnaður er fólginn. Ásókn Hells Angels Meðlimir glæpasamtakanna Hells Angels hafa sótt mjög hingað til lands, eins og kunnugt er. Yfirvöld óttast nú að samtökin reyni meðal annars að fjárfesta hér í löglegum fyrirtækjum til að þvætta fjármuni. Bent er á þróun af þessu tagi sem orðið hefur í nágrannalöndunum. Talið er að samtökin reyni að koma ár sinni fyrir borð með sama hætti hér. Aðferðir Vítisenglanna eru sagðar mjög mismunandi eftir því hvort þeir eru á handrukkaramarkaði eða í fíkniefna- eða vændisstarf- semi. Innlendir klúbbar, sem fyrir eru í viðkomandi löndum, hafa sóst eftir að gerast meðlimir í Hells Angels. Klúbbur í viðkom- andi landi, sem kominn er í sam- tökin, starfar sem eining í þeim í viðkomandi landi og þá í ofan- greindum brotaflokkum. Fjöldi harðsvíraðra erlendra glæpamanna heldur til hér Austur-evrópskir glæpahópar flytja menn hingað til lands gagngert til þess að fremja afbrot. Sumir þeirra hika ekki við að beita grófu ofbeldi telji þeir stöðu sinni eða hagsmunum ógnað. Fréttablaðið skoðaði skipulagða glæpastarfsemi hér á landi. MANSALSMENN FYRIR DÓMI Það vakti sérstaka athygli þegar mansalsmennirnir fimm voru leiddir til þingfestingar á mansalsmálinu. Ekki var að sjá að þeir kviðu niðurstöðu dómsins, sem varð fimm ára fangelsi á hvern þeirra. „Ég myndi kannski ekki orða það þannig að hér væri skeytingarleysi eða umburðarlyndi gagnvart skipu- lagðri glæpastarfsemi,“ segir Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra um ástæður stöðunnar hér. „Lögregluyfirvöld eru mjög vel meðvituð um að berjast þurfi gegn slíkri vá hér á landi, og hafa verið það um nokkra hríð. En það þarf að fræða bæði stjórnmálamenn og almenning betur um það sem er að gerast því að fæstir verða sem betur fer varir við þessa hluti í sínu daglega lífi. Dómsmálaráðuneytið og lögreglan geta ekki verið ein í þessari baráttu. Ég tel að hér þurfi að ríkja almennur skilningur á því að þetta sé raunveruleg ógn í okkar samfélagi en það gerist ekki án þess að veittar séu upplýsingar um það sem er hér að gerast, að því marki sem löggæsluyfirvöldum er það unnt.“ Ráðherra segir lögreglu hafa af miklum metnaði ráðið við þau atvik sem upp hafa komið hingað til en biðji um frekari heimildir til að geta betur tekist á við málin. Ráði þar ekki síst sú þróun sem óttast sé að verði hér á landi. „ Forvirkar rannsóknarheimildir hafa verið nefndar. Einnig bann við því að Vítisenglar stofni samtök á Íslandi. Það er til athugunar í ráðuneytinu hvað þurfi til svo beita megi stjórnarskrárákvæðinu um að leysa megi upp félög með ólög- mætan tilgang,“ útskýrir Ragna sem undirstrikar að vitaskuld þurfi að vanda til verka því að félagafrelsið sé eitt þeim grundvallarréttindum sem stjórnskipun okkar verndi. „Ég lít svo á að við Íslendingar séum í annarri stöðu en nágranna- lönd okkar þar sem slík samtök hafa fest rætur og starfað um hríð; þau hafa ekki náð að slá sér niður hér og því hljótum við að hafa betri möguleika til að berjast gegn þeim en aðrir. Við bara verðum að gera það, við megum ekki gefast upp. Hér á umburðarlyndi ekki við. Ég hef hins vegar varað við því að menn einblíni á bann sem einu lausnina við vandanum. Við verðum að huga að fleiri aðgerðum og því hef ég lagt upp með að sett verði upp aðgerðaáætlun þar sem fram kemur heildstæður pakki með aðgerðum gegn skipulagðri glæpa- starfsemi. Vonast ég til að slíkur pakki verði tilbúinn með vorinu.“ Sigríður Björk Guðjónsdóttir, for- maður Lögreglustjórafélags Íslands, bendir á að lögreglan, eins og allir aðrir í ríkisgeiranum, sé með minna fjármagn til ráðstöfunar í kjölfar kreppunnar. „ Þrátt fyrir það tel ég að lög- reglan sé ágætlega í stakk búin til að takast á við þessa nýju stöðu,“ segir hún. „Við erum nú með alla lögreglumenn fullmenntaða úr Lög- regluskóla ríkisins, mikið hefur verið um erlent samstarf og tengsla- myndun lögreglu landa á milli, sér í lagi auðvitað við Norðurlöndin og búum við að því. Þá höfum við fengið mikinn styrk af því að hafa fulltrúa Íslands hjá Europol, þar sem við erum nú þátttakend- ur í evrópskum vinnuhópum um skipulagða glæpastarfsemi og allar boðleiðir eru mun styttri. Styrkur er að kortlagningu greiningardeildar á skipulagðri glæpastarfsemi og alþjóðadeild og sérsveit hafa veitt mikla aðstoð. Samstarf hefur einnig gengið mjög vel á milli lögregluumdæma og upplýsingamiðlun hefur aukist verulega. Almennt má segja að bæði almennir lögreglumenn og rannsóknarlögreglumenn alls staðar á landinu séu vel í stakk búnir til að sinna verkefnum í breyttu umhverfi. SIGRÍÐUR BJÖRK GUÐJÓNSDÓTTIR Formaður Lögreglustjórafélags Íslands RAGNA ÁRNADÓTTIR Dómsmálaráðherra AÐGERÐAPAKKI GEGN GLÆPASTARFSEMI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.