Fréttablaðið - 13.03.2010, Side 39

Fréttablaðið - 13.03.2010, Side 39
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 ÁHUGAVERÐAR FORNLEIFAR frá fornleifarann- sókn á landnámsskála í Höfnum verða til sýnis í Víkinga- heimum í Reykjanesbæ á Safnahelgi á Suðurnesjum sem fram fer um helgina. www.reykjanesbaer.is „Við erum að taka íbúðina í gegn og breyta ýmsu, meðal annars að færa eldhúsið inn í stofu. Fram- kvæmdirnar taka dálítinn tíma frá okkur þessa dagana en við ætlum þó að taka okkur frí frá þeim í dag,“ segir Arna Guðrún Þorsteinsdóttir, hárgreiðslukona og einn eigenda hárgreiðslustof- unnar Soho við Laugaveg. Ástæðan fyrir framkvæmd- apásunni hjá Örnu er að stór- um hluta sú að Guðni, eiginmað- ur hennar, fagnar 41 árs afmæli sínu í dag. Hjónin ætla að byrja á að fara saman í ræktina og þaðan yfir á veitingastaðinn Jómfrúna við Lækjargötu, þar sem þau munu gæða sér á smurbrauði upp á danska mátann með vina- fólki sínu. „Það er alltaf gaman að kíkja á Jómfrúna í danska stemn- ingu. Svo tilheyrir auðvitað að fá sér einn öl með,“ segir Arna og hlær. Að smurbrauðsáti loknu hyggj- ast Arna og Guðni heimsækja KR- völlinn í Frostaskjóli einu sinni sem oftar, en allir fjölskyldumeð- limirnir eru gallharðir stuðnings- menn Vesturbæjarliðsins og æfa synir þeirra hjóna, Grétar Hrafn sem er ellefu ára og Arnar Hrafn sem er fimm ára, báðir knatt- spyrnu með KR. „Arnar Hrafn æfir með sjöunda flokki, sem leik- ur við erkifjendurna í Val í dag á gervigrasinu hjá KR. Svo spilar fimmti flokkur, sem Grétar Hrafn æfir með, við Þrótt á morgun. Við látum okkur ekki vanta á svona stórleiki,“ segir Arna. Eftir leikinn tekur við kaffihúsa- rölt í miðbænum. Í kvöld ætlar Arna svo að bjóða Guðna út að borða í Perlunni ásamt góðum hópi vina og vandamanna í tilefni afmælisins. „Eftir matinn kíkjum við örugg- lega í miðbæinn og hver veit nema við lítum við í fertugsafmæli Páls Óskars á Nasa,“ segir Arna. Sunnudagurinn verður í rólegri kantinum hjá fjölskyldunni að sögn Örnu. „Ætli við reynum ekki að stússast smá í íbúðinni og skell- um okkur kannski í bíó um kvöldið. Hér á heimilinu ríkir mikill áhugi á nýju myndinni um Lísu í Undra- landi,“ segir Arna Guðrún Þor- steinsdóttir. kjartan@frettabladid.is Fögnuður og fótbolti Hárgreiðslukonan Arna Guðrún Þorsteinsdóttir hefur í nægu að snúast um helgina, ekki síst vegna þess að eiginmaður hennar á afmæli í dag. Góður matur, KR og fertugsafmæli Páls Óskars eru á dagskránni. Arna Guðrún ætlar að snæða ásamt afmælisbarninu, eiginmanni sínum, og vinafólki á Jómfrúnni og í Perlunni í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Lín Design, gamla sjónvarpshúsið • Laugavegi 176 • Sími 533 2220 • www.lindesign.is Patti húsgögn Landsins mesta úrval af sófasettum Láttu þér líða vel í sófa frá Patta Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18 og Laugard. frá 11 til 16 sws 8922 horn 269.90 0 kr Verð á ður 319.90 0 kr

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.