Fréttablaðið - 13.03.2010, Page 49

Fréttablaðið - 13.03.2010, Page 49
VINNUVERND vellíðan í vinnu Heilsuvernd Vinnuvernd Heilsuefling Hjúkrunarfræðingar Hótel í miðborginni Óskum eftir að ráða starfsfólk í gestamóttöku. Annarsvegar dagvaktir og hinsvegar næturvaktir. Viðkomandi þarf að geta hafi ð störf fl jótlega. Umsóknir sendist á: box@frett.is ásamt ferilskrá, merkt „Hótel“. Jarðgangagerð Íslenskir aðalverktakar hf., Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200www.iav.is Félagið óskar eftir upplýsingum frá einstaklingum með reynslu af jarðgangagerð. Hér er átt við: ÍAV, í samstarfi við nýjan eiganda félagsins Marti Contractor Ltd., hyggjast auka þátttöku sína í jarðgangaverkefnum hér á landi og erlendis í nánustu framtíð. Vonir standa til að hægt verði að nýta þá miklu reynslu og þekkingu í jarðgangagerð sem áunnist hefur hérlendis hjá íslenskum aðilum á undanförnum árum. Í þessu skyni óskar félagið eftir að komast í samband við aðila sem kunna að hafa áhuga á að vinna með ÍAV á þessu sviði í framtíðinni. Nánari upplýsingar veitir Dagmar Viðarsdóttir mannauðsstjóri í síma 530-4200 eða dagmar @ iav.is. Einnig er hægt að senda erindi með ferilskrá um heimasíðu ÍAV á eyðublaði merkt „Jarðgangagerð“. Fullum trúnaði er heitið við þá aðila sem senda inn gögn og öllum verður svarað um að gögn hafi borist. Vonir standa til að hægt verði að ræða við aðila samhliða öflun verkefna. • Vegna skipulagsbreytinga eru laus til umsóknar störf við laugarvörslu, í móttöku og við baðvörslu í búningsklefum í Sundlaug Kópavogs. Unnið er á vöktum. Starfshlutfall er 100%. Umsækjendur þurfa að búa yfir allgóðri sundkunnáttu auk þekkingar á skyndihjálp. Þeir þurfa einnig hafa náð 20 ára aldri og vera reglusamir, vinnusamir og þjónustulundaðir. Athugið að starfið hentar ekki síður þeim sem komnir eru á og yfir miðjan aldur en þeim sem yngri eru. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf í síðustu viku apríl. Umsóknarfrestur er til 26. mars næstkomandi. Laun eru samkvæmt samningi Starfsmannafélags Kópavogs og Launanefndar sveitafélaga. Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Kópavogsbæjar: www.kopavogur.is Nánari upplýsingar gefur Jakob Þorsteinsson í síma 840 2689 og jakob@kopavogur.is. Sundlaug Kópavogs er staðsett í vesturbæ Kópavogs stutt frá Hamraborginni. Mannvirkið var að stórum hluta endurnýjað á árinu 2008 og er einn stærsti sundstaður landsins. Þar eru sundlaugar úti og inni ásamt heitum pottum, gufubaði og rennibrautum. Um 30 manns vinna við laugina, við þjónustustörf, þrif og öryggisgæslu. www.kopavogur.is Það er líka gott að vinna í Kópavogi KÓPAVOGSBÆR Rafkaup hf - Ármúla 24 - 108 Reykjavík - www.rafkaup.is Rafkaup er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu og þjónustu á lömpum, lampa- búnaði, ljósaperum og innlagnaefni. Markmið Rafkaups er að vera ávallt í fremstu röð varðandi þjónustu og markaðssetningu á þeim vörum sem fyrirtækið selur. Rafkaup er umboðsaðili þekktra vöru- merkja eins og SYLVANIA, DELTA LIGHT og TARGETTI. Rafkaup var stofnað árið 1982. Bókhald Starfslýsing: Starfið felur í sér alla almenna bókhaldsvinnu, viðskiptamannabókhald, innheimtu ofl. Hæfniskröfur: Reynsla af bókhaldsstörfum og góð tölvukunnátta. Unnið er á Navision. Um framtíðarstarf er að ræða. Upplýsingar um menntun og fyrri störf sendist á bokhald@rafkaup.is fyrir 20. mars. Rafkaup óskar eftir að ráða starfsmann í 50-60% starf til bókhalds, innheimtu og almennra skrifstofustarfa.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.