Fréttablaðið - 13.03.2010, Qupperneq 86
50 13. mars 2010 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
Helena Sverrisdóttir var á dögunum valin besti leikmaður
Mountain West deildarinnar og um helgina verður hún í
eldlínunni með TCU í úrslitakeppni deildarinnar sem er
haldin í Las Vegas, skemmtanahöfuðborg heimsins.
„Það er líklegt að sumir gætu ekki haldið einbeitingu,
en þegar þú ert búin að vinna fyrir einhverju svona
lengi eins og við höfum gert þá held ég ekkert
geti stoppað það. Vegas er flott borg, og það er
rosalega gaman að vera þar, vonandi vinnum við
þetta allt saman og getum notið þess af alvöru,“
segir Helena sem átti 22 ára afmæli á fimmtudaginn.
„Ég á alltaf afmæli í miðri úrslitakeppni þannig að ég er orðin
svoldið vön að það sé lagt til hliðar þangað til seinna. Ætla mér
bara að vinna og halda uppá það á laugardaginn,“ segir Helena
en úrslitaleikurinn fer fram í nótt takist TCU að fara alla leið.
„Við höfum ekki komist lengra en í fjögurra liða úrslitin síðan
ég kom hingað. Núna komumst við sjálfkrafa þangað með því að
vinna deildina, og þurfum því bara tvo sigra til að vinna þetta,“ segir
Helena en hún var mjög ánægð með vera valin best. „Þetta er nátt-
úrulega alveg svakalegur heiður. Mér finnst ég samt eiga mikið
inni þannig að þetta ýtir bara undir sjálfstraustið og kraftinn
til þess að halda áfram á hverjum degi að reyna að verða
betri,“ segir Helena sem segir þetta vera stærstu viður-
kenninguna á ferlinum til þessa en að hún gera sér betur
grein fyrir þýðingu hennar eftir tímabili því nú sé hún að
einbeita sér að úrslitakeppninni.
„Með því að vinna úrslitakeppnina, þá komumst við
sjálfkrafa inní NCAA og að komast inní NCAA er aðal-
markmið TCU á hverju ári. Við þurfum að spila okkar
leik. Þegar við spilum eins og við getum, erum einbeittar,
spilum af hörku og saman þá getur ekkert lið í þessari
deild stöðvað okkur,“ segir Helena að lokum.
HELENA SVERRISDÓTTIR: 22 ÁRA AFMÆLISDAGURINN Í MIÐRI ÚRSLITAKEPPNI Í LAS VEGAS
Það er líklegt að sumir gætu ekki haldið einbeitingu
> Blikar safna peningum
Kaup Blika á Guðmundi Péturssyni leiddu til þess að
stuðningsmenn Blika ákváðu að standa fyrir fjársöfnun
til handa knattspyrnudeildinni. Blikar urðu á endanum
að greiða meira fyrir Guðmund en þeir voru til í að gera
í fyrstu. KR hafði tekið tilboðum frá Val og FH en Blikar
jöfnuðu það tilboð á elleftu stundu sem var ánægjulegt
fyrir Guðmund enda vildi hann spila í
Kópavogi. Blikar segja að það hafi verið
til peningar fyrir Guðmund en fagna
framtakinu. Hægt er að fá frekari upp-
lýsingar um fjársöfnunina á vefsíðunni
blikar.is.
IE-deild karla:
Stjarnan-KR 87-88 (49-30)
Stig Stjörnunnar: Jovan Zdravevski 22, Justin
Shouse 18, Djorde Pantelic 17, Magnús Helgason
10, Kjartan Atli Kjartansson 9, Fannar Freyr
Helgason 5, Birkir Guðlaugsson 3, Ólafur
Sigurðsson 3.
Stig KR: Brynjar Björnsson 32, Fannar Ólafsson
17, Morgan Lewis 13. Tommy Johnson 9, Jón
Orri Kristjánsson 5, Pavel Ermolinskij 5,
Skarphéðinn Ingason 4, Darri Hilmarsson 2,
Steinar Kaldal 1.
Snæfell-Grindavík 88-98 (41-32)
Stigahæstir hjá Snæfelli: Sean Burton 24,
Sigurður Þorvaldsson 19, Jón Ólafur Jónsson 17,
Hlynur Bæringsson 16.
Stigahæstir hjá Grindavík: Páll Axel Vilbergsson
24, Arnar Freyr Jónsson 20, Darrell Flake 16.
Fjölnir-ÍR 89-90 (42-40)
Stig Fjölnis: Christopher Smith 27, Magni
Hafsteinsson 18, Tómas Heiðar Tómasson 12,
Ægir Þór Steinarsson 12, Sindri Kárason 6, Níels
Dungal 5, Arnþór Freyr Guðmundsson 5, Jón
Sverrisson 4.
Stig ÍR: Nemanja Sovic 23, Steinar Arason 20,
Robert Jarvis 17, Hreggviður Magnússon 16,
Kristinn Jónasson 10, Eiríkur Önundarson 4.
STAÐAN:
KR 20 17 3 1875-1617 34
Keflavík 20 15 5 1862-1582 30
Grindavík 20 15 6 1868-1612 30
Njarðvík 20 14 6 1770-1554 28
Snæfell 20 13 7 1888-1682 26
Stjarnan 20 13 7 1696-1614 26
ÍR 20 7 13 1679-1822 14
Hamar 20 7 13 1686-1771 14
Tindastóll 20 7 13 1654-1789 14
Fjölnir 20 6 13 1506-1658 12
Breiðablik 20 5 15 1555-1816 10
FSu 20 1 19 1502-2023 2
N1-deild karla:
Akureyri-Stjarnan 36-21 (21-12)
Mörk Akureyrar (skot): Oddur Gretarsson 12/5
(14), Geir Guðmundsson 6 (10), Heimir Örn
Árnason 5 (7), Bergvin Gíslason 5 (7), Hörður
F. Sigþórsson 4 (8), Halldór Logi Árnason 1
(1), Hreinn Þór Hauksson 1 (1), Guðmundur H.
Helgason 1 (2), Árni Þór Sigtryggsson 1 (7).
Varin skot: Hörður Flóki Ólafsson 12/1 (28) 43%,
Hafþór Einarsson 6/1 (11) 55%.
Hraðaupphlaup: 12 (Oddur 3, Hörður 3, Bergvin
2, Geir 2, Hreinn, Heimir).
Fiskuð víti: 4 (Hörður 2, Jónatan, Hreinn).
Utan vallar: 14 mín.
Mörk Stjörnunnar (skot): Tandri Konráðsson
4 (7), Víglundur Þórsson 3/3 (10/4), Þórólfur
Nielsen 3/2 (12/3), Daníel Einarsson 3 (5),
Sverrir Eyjólfsson 2 (4), Kristján Kristjánsson 2
(5), Jón Arnar Jónsson 2 (6), Sigurður Helgason
1 (1).
Varin skot: Svavar Már Ólafsson 20 (50) 40%,
Viktor Alex 1 (7) 14%
Hraðaupphlaup: 3 (Kristján, Sigurður, Daníel).
Fiskuð víti: 6 (Þórólfur 2, Víglundur 2, Sigurður,
Daníel).
Utan vallar: 8 mín.
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Keppni í norsku úrvals-
deildinni fer af stað um helgina.
Veigar Páll Gunnarsson er kom-
inn aftur til Stabæk eftir dvölina
í franska fótboltanum.
„Ég ætla að sýna það og sanna
að Nancy hafði rangt fyrir sér,”
sagði Veigar Páll í viðtali við
norska fjölmiðla. Hann fékk fá
tækifæri hjá Nancy. Veigar varð
hinsvegar meistari með Stabæk
þegar hann lék síðast með liðinu.
„Ég hafði ekkert sjálfstraust
þegar ég var í Frakklandi en ég
ætla að sýna það að ég get þetta
ennþá og vonandi hefur fólk ekki
misst trúna á mig. Ég hef lagt
mikið á mig til að koma sterk-
ur til baka,” segir Veigar Páll
en hann segist vera ánægður ef
að Stabæk nær fjórða sætinu á
þessu tímabili. - óój
Veigar Páll Gunnarsson:
Ætla að sýna að
ég get þetta
VEIGAR Í landsleik. NORDICPHOTOS/GETTY
HANDBOLTI Halldór Ingólfsson,
þjálfari Gróttu, verður næsti
þjálfari Hauka. Halldór þekkir
vel til hjá Haukum enda vann
hann sex Íslandsmeistaratitla
með félaginu sem leikmaður og
var fyrirliði liðsins í mörg ár.
Halldór mun taka við Hauka-
liðinu af Aroni Kristjánssyni sem
tekur við þýska liðinu Hannover
Burgdorf næsta sumar. Hafnar-
fjarðarliðið trónir á toppi N1-
deildarinnar og varð á dögunum
bikarmeistari.
Samningur Halldórs við Hauka
er til þriggja ára.
- egm
Arftaki Arons er fundinn:
Halldór næsti
þjálfari Hauka
N1 Deildin
KONUR
Laugardagur
KA heimili
Digranes
Víkin
KA/Þór - FH
HK - Haukar
Víkingur - Stjarnan
15:00
16:00
16:00
2009 - 2010
HANDBOLTI Gríðarlegur styrk-
leikamunur var á Akureyri og
Stjörnunni í leik liðanna í N-1 deild
karla í handbolta í gær. Stjörnu-
menn litu út eins og smástrákar
við hliðina á Akureyringum sem
niðurlægðu Garðbæinga. Lokatöl-
ur 36-15. „Þetta var eins og létt
æfing,“ sagði Oddur Gretarsson í
leikslok, besti maður vallarins.
Stjörnumenn byrjuðu leikinn
reyndar vel, voru yfir 4-6 og stað-
an var jöfn í 10-10. Þá gerðist eitt-
hvað hjá gestunum. Þeir köstuðu
boltanum frá sér trekk í trekk og
misstu boltann ítrekað í sókninni.
Akureyringar gengu á lagið og
náðu upp átta marka forystu sem
lagði grunninn að öruggum sigri.
Ótrúlegur kafli sem stóð yfir í
rúmar tíu mínútur. Staðan var 20-
12 í hálfleik.
Akureyringar náðu strax tíu
marka forystu í upphafi seinni
hálfleiks. Maður hafði það á til-
finningunni að leikmenn vildu
bara klára leikinn og komast í
helgarfrí. Stjörnumenn gerðu
aldrei atlögu að Akureyringum.
Enda engin ástæða til, sigur þeirra
var aldrei í hættu. Það segir margt
um að liðið átti mikið inni en vann
samt með 15 marka mun, 36-21.
Akureyri er í öðru sæti deildar-
innar eftir leikinn. Ungir strákar
spreyttu sig mikið í gær og stóðu
sig vel. Stöðugleika skortir þó í
lykilmenn liðsins en það getur vel
gert góða hluti eins og það hefur
þegar sýnt.
Góður leikur Svavars í marki
Stjörnunnar kom í veg fyrir frek-
ari niðurlægingu þeirra.
„Við gerðum alltof mörg mistök
og stóðum ekki vörnina. Við hent-
um þessu frá okkur í fyrri hálf-
leik,“ sagði Tandri Konráðsson,
Stjörnumaður. - hþh
Akureyri valtaði yfir slaka Stjörnumenn í N-1 deild karla í gær:
Var bara eins og létt æfing
KÖRFUBOLTI Það ætlaði allt um koll
að keyra meðal KR-inga í Ásgarði
í gær eftir að þeir unnu ævintýra-
legan sigur á þessum erfiða úti-
velli. Stærstan hluta leiksins leit
þetta vægast sagt vandræðalega
út fyrir þá. Þeir voru kafsigldir af
heimamönnum en gáfust þó ekki
upp. Tuttugu stigum undir fyrir
síðasta leikhluta náðu þeir einum
ótrúlegasta endaspretti sem und-
irritaður hefur séð.
Á síðustu tveimur og hálfri mín-
útu leiksins skoraði KR 14-0 og
vann á endanum sigur með einu
stigi, úrslitin 87-88. „Við tókum
bara áhættu og hleyptum leiknum
upp,“ sagði Páll Kolbeinsson, þjálf-
ari KR, í leikslok. „Þetta er með
sætustu sigrum sem ég hef unnið.
Við vorum nánast niðurlægðir í
fyrri hálfleik og það fór í skapið
á mér og öðrum. En við komum
til baka og sýndum úr hverju við
erum gerðir.“
Stjörnumenn mættu gríðarlega
kraftmiklir til leiks og KR-ingar
áttu engin svör í vörninni. Staðan
var 22-16 eftir fyrsta leikhluta en
Stjörnumenn áttu þann annan með
húð og hári og staðan 49-30 í hálf-
leik. Garðbæingar voru að leika
frábærlega, sýndu sínar bestu
hliðar.
Á móti var mikil deyfð yfir
gestunum, boltinn gekk ekki milli
þeirra og stemningin var algjör-
lega á hlið Stjörnunnar. „Hvaða
aumingjaskapur er í gangi?“ öskr-
aði Fannar Ólafsson, fyrirliði KR,
bálreiður að varamannabekk Vest-
urbæinga.
Mesta lífið í KR-ingum áður en
þeir héldu til búningsherbergja í
hálfleik var þegar leiktíminn var
runninn út og ganga þurfti á milli
Jovan Zdravevski og Tommy John-
son. Mikill hiti var í mönnum og
lá við slagsmálum eftir að Jovan
klappaði Tommy létt á kollinn eftir
að hafa sett niður þrist.
KR-ingar náðu ekki að saxa á
forskotið í þriðja leikhlutanum
og Stjarnan náði mest 23 stiga
forystu. Leikhlutanum lauk með
magnaðri þriggja stiga flautu-
körfu frá Stjörnumanninum Ólafi
Sigurðssyni. Brekkan var þó ekki
orðin of brött fyrir KR og Garð-
bæingar misstu boltann oft klaufa-
lega. Brynjar Björnsson skoraði
fallega þriggja stiga körfu og jafn-
aði leikinn 87-87 og sigurkarfan
kom frá Fannari Ólafssyni á víta-
línunni.
„Maður er alveg búinn eftir
þetta. Ég var brjálaður út í mitt
lið í hálfleik en það sýndi svo kar-
akter. Þetta var yndislegt og ég er
í sigurvímu. Þetta er góður und-
irbúningur fyrir úrslitakeppnina“
sagði Páll eftir leikinn.
En hvað breyttist hjá liðinu
undir lokin? „Við jukum hraðann í
leiknum og fórum að pressa miklu
meira en við gerðum áður. Við töl-
uðum um þetta fyrir leikinn en
náðum ekki að koma því í gang.
Okkur tókst svo að koma boltan-
um úr höndunum á Justin (Shouse)
og við fórum þar með að stjórna
leiknum,” sagði Páll.
Brynjar Þór Björnsson skoraði
32 stig fyrir KR og Fannar Ólafs-
son 17 auk þess sem sá síðarnefndi
tók 11 fráköst. Zdravevski var
stigahæstur heimamanna með 22
stig og tók að auki 10 fráköst.
Garðbæingar hljóta að velta því
fyrir sér hvað gerðist eiginlega
í síðasta leikhlutanum en þeir
misstu frá sér unnin leik á ótrúleg-
an hátt. Það hefði þurft ansi færan
rithöfund til að skrifa handritið að
því sem átti sér stað í Garðabæn-
um í gær.
elvargeir@frettabladid.is
Lygileg endurkoma hjá KR
Allir í Ásgarði voru búnir að afskrifa leikmenn KR í gær nema þeir sjálfir. Fyrir
síðasta leikhlutann var Stjarnan 20 stigum yfir en þá hófst ótrúleg atburðarás.
FLOTTUR MEÐ MOTTUNA Brynjar Björnsson var stigahæstur í gær með 32 stig en
hann tekur virkan þátt í krabbameinsátakinu og skartar myndarlegri mottu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI