Fréttablaðið - 17.03.2010, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 17.03.2010, Blaðsíða 4
4 17. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR Vegna fréttar í blaði gærdagsins um að fólk í hjólastólum geti sótt kvikmyndasýningar í Smárabíói án endurgjalds vilja Sambíóin árétta að slíkt fyrirkomulag hefur ætíð tíðkast í kvikmyndahúsum þeirra, allt frá 1945 þegar Sambíóin voru opnuð í Keflavík og 1982 í Reykjavík. ÁRÉTTING AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is GENGIÐ 16.03.2010 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 226,8832 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 125,58 126,18 189,63 190,55 171,82 172,78 23,087 23,223 21,411 21,537 17,674 17,778 1,3848 1,3928 192,35 193,49 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR Gólfþjónustan er með sérlausnir í smíði borða fyrir fyrirtæki og heimili. Við smíðum borð algjörlega eftir þínu máli svo sem borðstofuborð, sófaborð og fundarborð. SÉRSMÍÐI ÚR PARKETI info@golfthjonustan.is | golfthjonustan.is S: 897 2225 SUÐURNES Íslensk stjórnvöld hafa dregið að taka pólitíska ákvörðun um að skrá hér á landi um tuttugu flugvélar hollensk/bandaríska fyrirtækisins E.C.A. Programs, segir Melville ten Cate, forstjóri hollenska fyrirtækisins E.C.A. Programs. Í flugflota þess eru meðal annars vopnlausar, rússneskar orrustuþotur af Sukhoi-gerð. Fyr- irtækið vill koma upp viðhalds- og þjónustustöð fyrir einkarekinn en vopnlausan æfingaflugher sinn hér á landi. Áformuð fjárfesting nemur 1,2 milljörðum evra, eða um 200 milljörðum á næstu þrem- ur árum. Áætlanir um að hefja framkvæmdir í janúar, svo að starfsemin hér á landi gæti hafist í haust, náðu ekki fram að ganga. Nú er horft til þess að leyfi liggi fyrir í lok sumars, að sögn Mel- villes ten Cate. Þá verði 80 Íslend- ingar ráðnir til starfa og starf- semin hefjist fyrir árslok. Um 200 störf til viðbótar þarf að manna á árinu 2011. Melville ten Cate segist bjart- sýnn á að leyfin verði veitt. Íslensk stjórnvöld virðist áhuga- söm um E.C.A.-verkefnið en taki eftirlits- og stjórnsýsluhlutverk sitt alvarlega. Hann tekur ekki undir að pólitíkin tefji fram- gang málsins en segir að taka þurfi pólitíska ákvörðun um að hefja skráningarferlið. Pólitískar ákvarðanir séu alls staðar tíma- frekar og tafsamar. „Við erum einkahernaðarfyrir- tæki,“ segir ten Cate spurður um starfsemi fyrirtækisins. E.C.A. hefur rekið flutningaþjónustu fyrir heri víða um heim, meðal annars í Afganistan, Darfur og einnig á hamfarasvæðum eins og Haítí. Með fjárfestingunni á Íslandi er ætlunin að víkka starf- semina út. Auk Sukhoi-þotnanna ræður E.C.A. meðal annars yfir ómönn- uðum smáflugvélum, loftskeyta- hermum, ratsjám og færanlegum stjórnstöðvum. Þjónusta þessa einkarekna vopnlausa flughers verður leigð herjum NATO-ríkja og bandamanna þeirra til að þjóna sem óvinaher við heræfingar. Ten Cate segir að fyrirtækið taki að sér að finna veikleika í vörnum og bæti þannig þá þjálfun sem flugmenn orrustuþotna fá á heræfingum. Fáist leyfin verður viðhalds- og þjónustustöð liðsaflans á Kefla- víkurflugvelli þar sem flestir starfsmenn verða sérþjálfaðir íslenskir flugvirkjar og tölvunar- fræðingar. peturg@frettabladid.is Tuttugu einkaherþotur undir- búa lendingu á Miðnesheiði Hernaðarfyrirtæki vill koma upp flota vopnlausra orrustuþotna á Keflavíkurflugvelli og leigja þær til að leika óvini á heræfingum. Ætlar að fjárfesta fyrir um 200 milljarða næstu þrjú ár. Bíður leyfis íslenskra stjórnvalda. „Við erum ólíkir fyrirtækjum eins og Blackwater [umdeilt einkarekið herfyriræki],“ segir Melville ten Cate, forstjóri E.C.A. Programs. „Starfsmenn okkar ganga ekki með byssur.“ Hann segir að E.C.A. sé einka- rekið hernaðarfyrirtæki og starfi við hernaðartengda starfsemi. Það selji flugherjum flugstundir, líkt og önnur þjónustufyrirtæki selji þeim pitsur, bílaleigubíla eða aðra þjónustu. Fyrirtækið hefur til þessa selt flutningaþjónustu á átakasvæðum í Afganistan og Darfur og hamfara- svæðum á borð við Haítí. Starfsemin tekur stakkaskiptum nái verkefnið á Íslandi fram að ganga og einkarekni flugherinn komist á laggirnar. Viðskiptavinir eru herir NATO-ríkja og herir nokkurra bandamannaríkja, eins og Japans, Ástralíu, Singapúr og Sameinuðu furstadæmanna. Ten Cate segir að fyrirtækið muni ekki taka ríki fjand- samleg Vesturlöndum í viðskipti. Í því sambandi nefnir hann sérstak- lega Íran og Norður-Kóreu. Nú starfa um 50 manns hjá fyrirtækinu. Flestir þeirra hlutu BERUM EKKI BYSSUR ÓLÍKT BLACKWATER herþjálfun og störfuðu áður sem hermenn. Umsvifin margfaldast verði af uppbyggingunni hér á landi. Þá verða ráðnir um 200 Íslendingar til starfa í viðhalds- og þjónustustöð- inni á Keflavíkurflugvelli. Þetta verða einkum flugvirkjar, tölvunarfræðingar og annað sérþjálfað starfsfólk. Eigendur E.C.A. eru nokkrir ónafn- greindir hollenskir og bandarískir einstaklingar, segir ten Cate. Sumir hafa bakgrunn úr hermennsku, aðrir ekki. Engir Íslendingar eiga hlut í fyrirtækinu, að hans sögn. SUKHOI Rússnesk Sukhoi-orrustuþota eins og þær sem sýndar eru í kynningar- myndbandi á heimasíðu E.C.A. Program. Fáist leyfi stjórnvalda verður viðhaldsstöð og þjónustustöð E.C.A. rekin í 12.000 fermetra flugskýli á Keflavíkurflugvelli. MYND/NORDICPHOTOS-AFP VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 16° 12° 7° 7° 11° 11° 5° 5° 21° 13° 15° 16° 22° 1° 15° 19° 0°Á MORGUN 8-15 m/s NV-til, annars hægari. FÖSTUDAGUR 5-10 m/s. 8 6 5 7 3 2 2 1 2 4 1 13 7 12 14 10 4 10 3 8 8 7 6 5 0 0 2 -3-1 -1 4 4 FÍNT SYÐRA Á MORGUN Það dregur úr vætunni sunnanlands í kvöld og á morgun verður víðast þurrt og léttir til sunnan og vestan til en norðan- og austan- lands verður áfram dálítil slydda eða snjókoma. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður EFNAHAGSMÁL Þekkingin og reynslan sem til varð í tengslum við hrunið ásamt vangaveltum um framtíð íslensks fjármálamarkað- ar verður til umfjöllunar á hádeg- isverðarfundi Félags viðskipta- fræðinga og hagfræðinga í dag. Framsögumenn eru Gylfi Magn- ússon viðskiptaráðherra, Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auðar Capi- tal, Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, og Auður Finn- bogadóttir, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Kópavogs. - jab Hádegisfundur um hrunið: Rætt um fjár- málamarkað SJÁVARÚTVEGUR Heildarafli íslenskra skipa í febrúar nam alls 106.704 tonnum í febrúar 2010 samanborið við 99.696 tonn í sama mánuði árið áður. Afli uppsjávartegunda nam tæpum 63.000 tonnum sem er um 8.400 tonnum meiri afli en í febrúar 2009. Aukningu í uppsjávarafla má rekja til þess að 55.000 tonn veiddust af loðnu í febrúar sam- anborið við 15.000 tonna afla í fyrra. Síldarafli nam 2.000 tonn- um og dróst saman um tæp 8.300 tonn frá fyrra ári. Botnfiskafli dróst saman um tæp 1.800 tonn frá febrúar 2009 og nam 41.400 tonnum. - shá Afli í febrúar: Meiri loðna en minni síldarafli KJARAMÁL Viðsemjendur flugumferðarstjóra höfnuðu í gær nýrri tillögu að lausn kjaradeil- unnar við Flugstoðir ohf. Að því er fram kemur í tilkynningu frá Félagi flugumferðarstjóra tók það viðsemjendurna aðeins tíu mínútur að hafna tilboðinu og segja þeir ljóst að samn- ingsvilji hafi aldrei verið fyrir hendi. Hótun stjórnvalda um lögbann á verkfallsaðgerðir þeirra kunni að reynast tvíeggjað sverðþ Þegar tilboðið var lagt fram aflýstu flugum- ferðarstjórnarnir um leið boðuðum fjögurra stunda verkföllum sem standa áttu í dag og á morgun. Með því átti að gefa samningsaðilum- ráðrúm til að fjalla um tillöguna. Yfir viðræðunum síðustu daga hafa vofað lögbannsáform ríkisstjórnarinnar. Stjórn- in samþykkti lagasetninguna á fimmtudag en flugumferðarstjórar frestuðu aðgerðum áður en til hennar kom. Inngrip stjórnvalda í kjaradeilur hafa verið fátíð á undangengnum árum. Eftir því sem næst verður komist voru síðast sett lög á verk- fall grunnskólakennara árið 2004 sem stað- ið hafði í átta vikur. Í þrígang voru sett lög á verkföll sjómanna, 1994, 1998 og 2001, og árið 1993 voru sett lög á verkfall stýrimanna á Herjólfi. - bþs, sh Flugumferðarstjórar lögðu fram nýja tillögu og aflýstu verkföllum í dag og á morgun: Nýju tilboði flugumferðarstjóra hafnað MEÐ FRUMVARPIÐ UNDIR HENDINNI Samgönguráð- herra sést ganga til fundar við ríkisstjórnina á fimmtu- dag til að kynnna áform um lögbannið. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /VA LLI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.