Fréttablaðið - 17.03.2010, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 17.03.2010, Blaðsíða 22
 17. MARS 2010 MIÐVIKUDAGUR2 ● fréttablaðið ● fjármál heimilanna Birna Guðrún Baldursdóttir þroskaþjálfi og eiginmaður hennar, Rögnvaldur Rögn- valdsson tónlistarmaður, hafa löngum sniðið sér stakk eftir vexti og hafa til dæmis valið að vinna styttri vinnudag til þess að geta eytt meiri tíma með strákunum sínum þremur. Þau búa á Akureyri. „Börnin okkar hafa alltaf verið styttra í gæslu og á leikskóla og í staðinn urðum við að draga saman og haga útgjöldunum í samræmi við það að hafa minna á milli handanna. Við erum í raun með eina góða grunnreglu sem er að eyða ekki meiru en maður á. Í raun er það samt þannig að þegar maður vinnur minna hefur maður meiri tíma til að skipuleggja sig, baka sjálfur brauðið og fara spar- lega með. Margir þekkja það eftir langan vinnudag að vera þreyttur og verðlauna sig með aðkeyptum mat og sælgæti þannig að þegar til kastanna kemur er ég ekki viss um að þetta komi verr út hvað eyðsluna varðar,“ segir Birna. Birna segist hafa orðið ánægju- lega vör við það að margt smátt geri eitt stórt og eftir að hafa lesið greinar eftir Ingólf H. Ing- ólfsson hjá Fjármálum heimil- anna hafi þau hjónin byrjað að leggja fyrir í hverjum mánuði og byrjað smátt. „Við lögðum í byrj- un 5.000 krónur fyrir, en höfðum peninginn á opnum reikningi til að geta gengið að honum ef eitt- hvað kæmi upp á. Hins vegar varð það svo að um leið og peningurinn var kominn inn á annan reikning gengum við ekki í hann og maður var fljótur að venjast sparnaðin- um. Einnig söfnum við fyrirfram fyrir ákveðnum hlutum og tökum ekki yfirdrátt eða lán fyrir því sem þarf að gera. Nú stefnum við til dæmis á sumarfrí árið 2011 og erum farin að leggja fyrir,“ segir Birna og bætir við að henni finnist mikilvægast að setja sér ákveðin markmið og stefna að þeim. „Matarkarfan er auðvitað stórt atriði og okkur finnst alltaf koma best út að gera mat- seðil fyrir vikuna og fara í búð- ina einu sinni í viku og kaupa inn eftir honum. Einnig fylgj- umst við vel með tilboðum og ef brauð er á hálfvirði kaupum við nokkur og frystum til dæmis. En litlu útgjöldin eru einnig lúmsk og við höfum stundum skrifað niður allt sem við eyðum í einn, tvo mánuði, farið yfir og skoðað hvað við getum skorið burt. Einu sinni gátum við skorið burt 8.000 króna útgjöld með þessu. Okkur finnst það gefa meiri lífsfyllingu að ferðast og vera með krökk- unum en eyða peningum í dýra innanstokksmuni og við höfum því frekar tímt að nota peninga í fjölskylduferðalög.“ - jma Slá ekki lán fyrir hlutunum Birna Guðrún Baldursdóttir og eiginmaður hennar, Rögnvaldur Rögnvaldsson, með börn sín frá vinstri: Styrmi, tveggja ára, Rökkva, tólf ára og Kormák, sex ára. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA NOKKUR GÓÐ RÁÐ ÚR FÓRUM GUÐRÚNAR BIRNU ■ Nýta safnadaga og bókasöfn og aðra ódýra afþreyingarmöguleika fyrir fjölskylduna. Börnum finnst fátt meira skemmtilegt en hjólatúr og nesti. ■ Þvo ekki þvott nema hann sé orðinn skítugur, kenna börnunum að hengja upp fötin sín ef þau eru hrein eftir daginn og ganga frá hand- klæðunum. ■ Ekki setja allt í uppþvottavélina, þvo upp stóra bolla og nota sparkerfi. ■ Ekki nota vísakort og taka fyrirfram út pening fyrir mat sem nota skal hverja viku og geyma í fjórum umslögum. ■ Það borgar sig ekki að kaupa alltaf það ódýr- asta, til dæmis er betra að kaupa vandaða barnaskó. ■ Koma sér upp gjafaskáp og kaupa hluti á góðum tilboðum til að eiga í gjafir seinna. ■ Góð leikföng má versla hjá Góða hirðinum og á öðrum mörkuðum sem selja notaða hluti. ● HEIMILISBÓKHALD BANKANNA Bankarnir bjóða upp á heimilisbókhald, for- rit sem viðskiptavinir geta nýtt sér til að kort- leggja neyslu, jafnvel borið saman við aðra viðskiptavini og séð hvort fyrirhuguð útgjöld mánaðarins séu meiri eða minni en áætlað- ar tekjur. Í einhverjum tilfellum færir forritið sjálfvirkt inn í heimilisbókhaldið í hvert sinn sem viðskiptavinirnir nota greiðslukort eða fá útborguð laun. Þessi þjónusta gæti nýst ein- hverjum til að fá yfirsýn yfir fjármálin og sjá myndrænt hvernig útgjöldin skiptast. „Við veitum fólki sem á í veruleg- um greiðsluerfiðleikum endur- gjaldslausa aðstoð til að leita leiða til lausna við að finna út hentug úrræði og fá yfirsýn yfir sín mál,“ segir Ásta S. Helgadóttir, hjá Ráð- gjafastofu um fjármál heimilanna, beðin um að lýsa hlutverki stof- unnar. Að sögn Ástu hefur sjaldan eða aldrei verið jafn annasamt hjá starfsmönnum Ráðgjafastof- unnar og eftir hrun. Upphaflega störfuðu hjá Ráðgjafastofunni sjö starfsmenn en þeim hefur verið fjölgað upp í 28 til að mæta auk- inni eftirspurn eftir ráðgjöf og þjónustu, sem er veitt með þrenns konar móti. „Fólk getur komið hingað til okkar á Hverfisgötu 6 alla virka daga á milli klukkan 9 til 16 og fengið að tala við ráðgjafa, án þess að hafa pantað sér sérstaklega tíma áður. Þá veitum við símaráð- gjöf alla virka daga á sama tíma, en hjá okkur eru alltaf þrír ráð- gjafar á vakt sem svara símtöl- um. Loks bjóðum við upp á net- spjall þar sem notendur komast í beint samband við okkar ráð- gjafa,“ telur Ásta upp. Hún bendir á að á heimasíð- unni rad.is geti fólk fyllt út um- sókn um ráðgjöf og sent inn raf- rænt. Einnig er veitt endurgjalds- laust aðstoð við gerð umsókna um greiðsluaðlögun. „Lögfræðingur er á vakt alla virka daga milli 9 til 16 sem svarar spurningum varð- andi greiðsluaðlögun,“ segir hún. - rve Aðstoð vegna greiðsluvanda „Við sinnum heilmiklu leiðbeiningar- hlutverki, leiðbeinum til dæmis fólki hvert best sé að snúa sér og söfnum einnig upplýsingum fyrir það svo heild- armynd fáist yfir stöðuna,“ segir Ásta. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ● DREGIÐ ÚR ORKUKOSTNAÐI HEIMA Ýmislegt má gera til að spara orkureikninga heimilisins. Á heimasíðunni orkusetur.is er að finna nokkur orkuspar- andi ráð. ● Lækka hitann innanhúss niður í 20°C. ● Nýir þéttilistar á glugga og hurðir draga úr hitatapi og kosta lítið. ● Hafa glugga lokaða nema við gagngera loftun og lofta þá einungis út í 10 til 15 mínútur í senn. ● Draga gluggatjöld fyrir glugga að næturlagi til að tapa ekki hita út. Eins er mikilvægt að draga frá á daginn til að fá hitann frá sólinni inn. ● Hafa lok á pottum og pönnum þegar eldað er og þekja alla helluna, það sparar rafmagn. ● Ekki skilja raftæki eftir í biðstöðu heldur slökkva alveg á þeim. ● Ekki byrgja ofna með húsgögnum eða gluggatjöld- um. ● Fara í sturtu frekar en bað. Minna vatn fer einnig til spillis ef kraninn er með einu handfangi. ● VERÐTRYGGING Verðtrygging miðar að því að tryggja verðgildi peninga þannig að upphæð eignar eða skuldar breytist eftir verðlagi í landinu og hækki eftir því. Ef lán er verðtryggt þýðir það að upphæð þess breytist eftir verði í landinu og hækkar eftir því.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.