Fréttablaðið - 17.03.2010, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 17.03.2010, Blaðsíða 42
26 17. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR sport@frettabladid.is Meistaradeild Evrópu: Chelsea-Inter 0-1 0-1 Samuel Eto´o (78.) Inter vinnur, 1-3, samanlagt. Sevilla-CSKA Moskva 1-2 0-1 Tomas Necid (39.), 1-1 Diego Perotti (41.), 1-2 Keisuke Honda (55.) CSKA vinnur, 2-3, samanlagt. Enska úrvalsdeildin: Wigan-Aston Villa 1-2 0-1 James McCarthy, sjm (25.), 1-1 Gary Caldwell (27.), 1-2 James Milner (63.) Enska 1. deildin: Barnsley-Nott. Forest 2-1 Emil Hallfreðsson var á varamannabekk Barnsley en kom af bekknum á 25. mínútu. Coventry-Cardiff 1-2 Aron Gunnarsson var í byrjunarliði Coventry. Plymouth-Bristol City 3-2 Kári Árnason var í byrjunarliði Plymouth. Watford-Ipswich 2-1 Heiðar Helguson var í byrjunarliði Watford en fór af velli á 72. mínútu. Reading-QPR 1-0 Gylfi Þór Sigurðsson og Ívar Ingimarsson voru í byrjunarliði Reading., Brynjar Björn Gunnarsson sat á varamannabekknum. Gylfi skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu á 85. mínútu sem hann fiskaði sjálfur. N1-deild kvenna: Stjarnan-Valur 22-27 Mörk Stjörnunnar: Þorgerður Anna Atladóttir 6, Alina Tamsaon 5, Harpa Sif Eyjólfsdóttir 4, Þórhildur Gunnarsdóttir 3, Aðalheiður Hreins- dóttir 2, Elísabet Gunnarsdóttir 1, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 1. Mörk Vals: Hrafnhildur Skúladóttir 9, Ágústa Edda Björnsdóttir 6, Kristín Guðmundsdóttir 4, Anna Úrsula Guðmundsdóttir 3, Rebekka Skúladóttir 1, Karólína Gunnarsdóttir 1, Hildigunnur Einarsdóttir 1, Íris Ásta Pétursdóttir 1, Arndís Erlingsdóttir 1. Haukar-Víkingur 36-8 Fylkir-HK 25-24 IE-deild kvenna: Keflavík-Hamar 77-70 Stig Keflavíkur: Birna Valgarðsdóttir 21, Rannveig Randversdóttir 15, Kristi Smith 12, Bryndís Guð- mundsdóttir 9, Svava Ósk Stefánsdóttir 7, Pálína Gunnlaugsdóttir 6, Halldóra Andrésdóttir 2. Stig Hamars: Julia Demirer 16, Koren Schram 15, Kristrún Sigurjónsdóttir 13, Sigrún Ámundadóttir 8, Fanney Guðmundsdóttir 7, Íris Ásgeirsdóttir 6, Guðbjörg Sverrisdóttir 5. ÚRSLIT LANDSLIÐSHÓPUR SIGURÐAR Markverðir: Guðbjörg Gunnarsdóttir (Djurgarden) Þóra B. Helgadóttir (Kolbotn) Aðrir leikmenn: Dagný Brynjarsdóttir (Valur) Dóra María Lárusdóttir (Valur) Dóra Stefánsdóttir (Malmö) Edda Garðarsdóttir (Örebro) Erna B. Sigurðardóttir (Breiðablik) Fanndís Friðriksdóttir (Breiðablik) Guðný Björk Óðinsdóttir (Kristianstad) Hólmfríður Magnúsdóttir (Kristianstad) Katrín Jónsdóttir (Valur) Margrét Lára Viðarsdóttir (Kristianstad) Ólína G. Viðarsdóttir (Örebro) Rakel Hönnudóttir (Þór/KA) Rakel Logadóttir (Valur) Sara Björk Gunnarsdóttir (Breiðablik) Sif Atladóttir (Valur) Thelma Björk Einarsdóttir (Valur) FÓTBOLTI Síðustu tveir leikirnir í sextán liða úrslitum Meistara- deildar Evrópu fara fram í kvöld. Barcelona tekur á móti Stuttgart og Olympiakos sækir Bor- deaux heim. Bordeaux vann fyrri leikinn í Grikklandi, 1- 0, og er því í afar þægilegri stöðu. Meiri spenna er fyrir leik Evrópumeistaranna og Stuttgart enda gerðu liðin jafntefli, 1-1, í fyrri leiknum í Þýskalandi. Þýskum liðum hefur gengið skelfilega á Nou Camp en Barcelona hefur unnið átta leiki í röð á heimavelli gegn þýskum liðum. Aleksandr Hleb, leik- maður Stuttgart og fyrrum leikmaður Barcelona, bíður spenntur eftir leiknum. „Barcelona var ekki mótherj- inn sem ég vildi fá því ég veit hversu ógnarsterkt liðið er. Við hefðum átt helmings- möguleika gegn öðrum en minni möguleika gegn Barca. Við höfum samt trú á okkur og þurfum að berjast grimmilega og vera ákveðnir í okkar aðgerðum. Við munum fá tækifæri en verðum að vera mjög þéttir aftast á vellinum,“ sagði Hleb. - hbg Sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar lýkur í kvöld: Tekst þýsku liði loksins að vinna á Nou Camp? FAGNAÐ Barcelona hefur gengið afar vel á heimavelli gegn þýskum liðum síðustu ár. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES GOLF Tiger Woods rauf loksins þögnina um framtíðaráætlanir sínar í gær og ætlar að snúa aftur á Masters sem hefst 8. apríl. „Ég vann mitt fyrsta stórmót á þessum stað og ég ber mikla virð- ingu fyrir þessu móti. Eftir lang- an og nauðsynlegan tíma fjarri golfvellinum tel ég mig loksins vera tilbúinn að snúa aftur á golf- völlinn,“ sagði Tiger. „Stórmótin hafa alltaf skipað sérstakan sess hjá mér og sem atvinnumaður get ég ekki sleppt því að mæta á Augusta. Jafnvel þó svo ég hafi ekki keppt í langan tíma.“ Woods hefur ekki keppt á móti síðan 15. nóvember. - hbg Tiger til í að spila golf á ný: Tekur þátt á Masters-mótinu MÆTIR KONAN? Nú spyrja menn sig að því hvort Elin Nordegren mæti á Masters með eiginmanni sínum. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES „Það eina í stöðunni fyrir okkur er að ná í sex stig,“ segir Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari kvennalandsliðsins. Liðið leikur útileiki við Serbíu og Króatíu í undankeppni HM í lok mánaðarins. „Við stefnum að því að vinna riðilinn og komast áfram. Við þurf- um að vinna þessa leiki til þess því ég sé Frakkland ekki mis- stíga sig. Draumastaðan er að búa til úrslitaleik gegn Frakklandi á Laugardalsvelli í sumar á menningarnótt. Til þess þurfum við að vinna Króatíu og Serbíu.“ Liðið kom fyrr í þessum mánuði heim frá Algarve-bikarn- um. „Ég hef horft á leikina okkar þar aftur og hugsað hver séu næstu skref. Eitt af því sem við höfum verið að vinna að er að auka breiddina. Við gerðum það með því að velja fimm nýliða fyrir Algarve og ég skildi eftir reynslumeiri leikmenn,“ segir Sigurður. „Við þurftum á nýju blóði að halda. Það þarf að eiga sér stað ákveðin endurnýjun í liðinu og við verðum að hafa góða blöndu. Það er erfitt fyrir unga leikmenn að vinna sér inn sæti í liðinu því það er mjög gott en möguleikinn er þó til staðar.“ Erla Steina Arnardóttir, leikmaður Kristianstad, var ekki valin í hópinn fyrir Algarve og tók því ekki vel. Hún gefur ekki kost á sér í hópinn nú. Sigurður valdi 18 leikmenn í hópinn fyrir þessi verkefni. „Það sem var erfitt við þetta val er að það eru margir leikmenn sem hafa átt við meiðsli að stríða,“ segir Sigurður. Edda Garðarsdóttir og Dóra Stefánsdóttir koma aftur inn í hópinn eftir meiðsli en Guðrún Sóley Gunnarsdóttir er enn á meiðslalistanum. „Guðrún er frábær leikmaður og við söknum hennar. Við höfum verið í nokkrum vandræðum með vörnina okkar þar sem hana vantar. Vonandi er það að koma hjá okkur, við náðum allavega að halda hreinu í síðasta leik.“ SIGURÐUR RAGNAR EYJÓLFSSON: OPINBERAÐI Í GÆR LEIKMANNAHÓPINN SEM MÆTIR SERBÍU OG KRÓATÍU Það þarf að eiga sér stað ákveðin endurnýjun > 1-1 hjá Keflavík og Hamri Keflavík og Hamar mættust öðru sinni í gærkvöldi í undanúrslitum Iceland Express- deildar kvenna. Hamar vann fyrsta leik liðanna en Keflavík náði fram hefndum í gær með góðum sjö stiga sigri. Keflavík var skrefi á undan nánast allan leikinn og vann sanngjarnan sigur. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki kemst í sjálft úrslitaeinvígið í deildinni. FÓTBOLTI Chelsea og CSKA Moskva komust í gær áfram í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu. CSKA lagði Sevilla, 1-2, á Spáni en Inter vann magnaðan 0-1 sigur á Chelsea á Stamford Bridge. Allra augu voru á José Mour- inho, þjálfara Inter og fyrrum stjóra Chelsea, sem mætti Chelsea í fyrsta skipti á Stamford Bridge síðan hann var rekinn frá félaginu. Mourinho hefur farið á kostum í sálfræðihernaðinum fyrir leikinn og hann hélt honum áfram fyrir leik er hann beið í göngunum eftir því að leikmenn Chelsea færu að hita upp. Þar heilsaði hann öllum með virktum. Fyrri hálfleikur var varfærnis- lega leikinn af beggja hálfu. Inter þó ívið sterkara og var meira með boltann. Bæði lið spiluðu mjög sterkan varnarleik og gáfu fá færi á sér. Þrátt fyrir taktískan leik var heitt í mönnum og mikil und- iralda. Samuel Eto´o fékk fyrsta færi leiksins. Frír skalli á markteig en hann náði ekki að stýra boltan- um sem fór í grasið og yfir mark- ið. Chelsea pressaði nokkuð undir lokin og var við það að koma skoti á markið en varnarmenn Inter björguðu ítrekað á elleftu stundu. Umdeilt atvik var síðan þegar Walter Samuel keyrði Didier Drogba niður í teignum er Chelsea átti horn. Þar átti að dæma víti en Þjóðverjinn Wolfgang Stark þorði ekki að dæma. Síðari hálfleikur var miklu skemmtilegri á að horfa. Chelsea byrjaði vel en Inter náði smám saman undirtökunum. Þegar 25 mínútur voru eftir fékk Inter tvö dauðafæri sem það nýtti ekki. Það kom ekki að sök því Samuel Eto´o skoraði eina mark leiksins tólf mín- útum fyrir leikslok. Hann fékk þá frábæra sendingu inn fyrir vörn- ina frá Wesley Sneijder og kláraði færið af einstakri fagmennsku. Didier Drogba lét skapið hlaupa með sig í gönur enn eina ferðina undir lok leiksins. Motta keyrði hann þá niður í teignum og Drog- ba svaraði með því að traðka á Motta. Fyrir það fékk hann rautt spjald. Eto´o hefði getað skorað annað mark í uppbótartíma en hinn óreyndi Russ Turnbull varði vel. „Við ákváðum að sækja og ætl- uðum að skora. Við áttum sigur- inn skilinn í kvöld sem og í síðasta leik,“ sagði Sneijder. henry@frettabladid.is Enn kóngurinn á Brúnni José Mourinho þakkaði Roman Abramovich, eiganda Chelsea, fyrir að reka sig á sínum tíma með því að slá Chelsea út úr Meistaradeildinni í gær. Mourinho talaði digurbarkalega um að hann tapaði ekki á Brúnni og stóð við stóru orðin. LÍFLEGUR Mourinho ræðir hér við fjórða dómarann í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES SIGURMARKI FAGNAÐ Samuel Eto´o skoraði eina markið á Stamford Bridge í gær og hann fagnar hér markinu. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.