Fréttablaðið - 17.03.2010, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 17.03.2010, Blaðsíða 34
18 17. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR timamot@frettabladid.is Fréttablaðið býður nú upp á birtingu æviminninga á tímamótasíðum blaðsins. Upplýsingar um stærðir og verð, hafið samband í síma 512 5490 - 512 5495 eða sendið fyrirspurnir á netfangið timamot@frettabladid.is Æviminning Gísli Eirík ur Helgaso n Laugateigi 7 2, Reykjavík Gísli Eirík ur Helgaso n fæddist í Reykjavík 1. janúar 1 931. Hann lést á Hraf nistu í Ha fnarfirði 1 2. janúar síð astliðinn. Foreldrar hans voru Guðr ún Jónsdót tir frá Þing eyri í Dýrafirði f. 1917, d. 1988, og H elgi Gíslason fr á Ísafirði, f. 1915, d. 1970. Gísli Eirík ur bjó fyrs tu æviár sí n í Reykjavík en fluttist eftir það v estur til Ísafjarð ar með for eldrum sín um og systkin um. Systkini G ísla Eiríks eru Jón Hannes, f. 1933, Sigrí ður Ása, f. 1936 og G uðmundur , f. 1941. Eiginkona Gísla Eirí ks er Marg rét Magnú sdóttir hjúk r- unarfræði ngur, f. 4. apríl 1937 . Þau geng u í hjóna- band árið 1960. Börn Gísla Eirí ks og Mar grétar eru: 1) Magnús kennari, f . 1.5. 1972 , kvæntur Guðbjörgu Björnsdótt ur kennara , f. 30.11. 1 971. Börn þeirra eru Margrét, f. 17.2. 1997 og Björn J óhann, f. 2 0.1. 1999. 2) Helgi tæ knifræðin gur, f. 18.6 . 1975, í sa mbúð með Jórunni Dr öfn Ólafsdó ttur leiksk ólakennar a, f. 15.2. 1975. Þeir ra dóttir e r Þórunn Á sta, f. 24.12 . 2001. 3) Guðrún læ knir, f. 14. 11. 1979, í sambúð m eð Þór Halldórssy ni stjórnm álafræðing i, f. 6.6. 19 80. Gísli Eirík ur lauk sk yldunámi á Ísafirði e n hélt suð ur til Reykjav íkur 17 ára gamall til að nema h úsasmíði. Húsasmíð ar urðu æv istarf hans . Framan a f starfsæv- inni vann hann á Tré smíðaverk stæðinu Fu ru en eftir að hafa fengi ð meistara réttindi í i ðn sinni st ofnaði han n sitt eigið f yrirtæki, G ísli, Eiríku r, Helgi, se m hann át ti og rak þar til fyrir fá einum áru m. Stangveið i var aðalá hugamál G ísla Eiríks alla tíð og sinnti h ann meða l annars tr únaðarstö rfum fyrir Stangveið ifélag Reyk javíkur. Útför Gísla Eiríks fer fram í dag kl. 13.00 í Fossvogskir kju. G 1 gason fæddist í . Hann firði 12. drar hans á Þingeyri 8, og Helgi5, d. 1970. ár sín í að ve tur m sínum dur, f. úkr- - u: u ð ur ð Gísli Eiríkur HelgasonTrésmíðameistariGísli Eiríkur Helgason fæddist í Reykjavík 1. janúar 1931. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 12. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðrún Jónsdóttir frá Þingeyri í Dýrafirði f. 1917, d. 1988, og Helgi Gíslason frá Ísafirði, f. 1915, d. 1970. Gísli Eiríkur bjó fyrstu æviár sín í Reykjavík en fluttist eftir það vestur til Ísafjarðar með foreldrum sínum og systkinum. Systkini Gísla Eiríks eru Jón Hannes, f. 1933, Sigríður Ása, f. 1936 og Guðmundur, f. 1941. Eiginkona Gísla Eiríks er Margrét Magnúsdóttir hjúkr- unarfræðingur, f. 4. apríl 1937. Þau gengu í hjóna- band árið 1960. Börn Gísla Eiríks og Margrétar eru: 1) Magnús kennari, f. 1.5. 1972, kvæntur Guðbjörgu Björnsdóttur kennara, f. 30.11. 1971. Börn þeirra eru Margrét, f. 17.2. 1997 og Björn Jóhann, f. 20.1. 1999. 2) Helgi tæknifræðingur, f. 18.6. 1975, í sambúð með Jórunni Dröfn Ólafsdóttur leikskólakennara, f. 15.2. 1975. Þeirra dóttir er Þórunn Ásta, f. 24.12. 2001. 3) Guðrún læknir, f. 14.11. 1979, í sambúð með Þór Halldórssyni stjórnmálafræðingi, f. 6.6. 1980. Gísli Eiríku lauk skyldunámi á Ísafirði en hélt suður til Reykjavíkur 17 ára gamall til að nema húsasmíði. Húsasmíðar urðu ævistarf hans. Framan af starfsæv- inni vann hann á Trésmíðaverkstæðinu Furu en eftir að hafa fengið meistararéttindi í iðn sinni stofnaði hann sitt eigið fyrirtæki, Gísli, Eiríkur, Helgi, sem hann átti og rak þar til fyrir fáeinum árum. Stangveiði var aðaláhugamál Gísla Eiríks alla tíð og sinnti hann meðal annars trúnaðarstörfum fyrir Stangveiðifélag Reykjavíkur. Útför Gísla Eiríks fer fram í dag kl. 13.00 í Fossvogskirkju. Erfidrykkjur af alúð Hótel Saga annast erfidrykkjur af virðingu og hlýju. Fágað umhverfi, góðar veitingar og styrk þjónusta. Sím i : 525 9930 hot elsaga@hot elsaga. is www. hot elsaga. is PI PA R\ TB W A • S ÍA • 9 1 0 1 3 GUÐRÚN EVA MÍNERVUDÓTTIR ER 34 ÁRA Í DAG. „Ég er allt of mikil dama til að rogast með allt á bakinu, ég er ekki gerð til þess. Mig langar ekkert til að erfiða uppi á fjöllum: ég vil bara vera þar.“ Guðrún Eva er rithöfundur og ljóðskáld. Hún hefur skrifað skáldsögur á borð við Söguna af sjóreknu píanóunum, Skap- arann og Yosoy. Á þessum degi árið 1917 kom út fyrsta tölublað Tímans. Hugmyndin að útgáfu blaðsins kom upp árið 1916 þegar Framsóknarflokkurinn var stofnaður en blaðið átti að miða að bændastéttinni. Um tuttugu manna hópur stóð að stofnun blaðsins en þar voru samankomnir einstaklingar úr ýmsum áttum sem náðu tengslum í gegnum ungmenna- félögin, samvinnuhreyfinguna og áhuga á landbúnaðarmálum. Fyrsti ritstjóri Tímans var Guð- brandur Magnússon en hann gegndi því starfi aðeins í nokkra mánuði en þá tók Tryggvi Þórhallsson, þáver- andi formaður Framsóknarflokksins, við og starfaði þar til hann varð forsætisráðherra árið 1927. Upphaflega kom Tíminn út vikulega og árið 1930 voru gefin út tvö blöð á viku. Árið 1938 var Tíminn gerður að dagblaði og miklar breytingar gerðar á blaðinu. Þær áttu upphaf sitt þegar Þórarinn Þórarinsson var ráðinn ritstjóri og gegndi hann því starfi í 46 ár. Í fyrsta tölublaði Tímans voru til- greind stefnumál blaðsins. Meðal ann- ars varðandi bankana. Þar er tilgreint í þremur liðum hvers beri að gæta. „1. Að ekki verði gengið lengra en orðið er í því að veita hlutabankanum sérréttindi. 2. Að bankarnir hafi í náinni framtíð nægilegt veltufé handa landsmönnum. 3. Að fyrirkomulag bankanna sé heilbrigt, og að allar stéttir og allir landshlutar eigi jafn hægt með að hagnýta sér veltufé þeirra.“ ÞETTA GERÐIST: 17. MARS 1917 Tíminn hefur göngu sína MERKISATBURÐIR 1610 Geirþrúðarbylur geisar. Mikið illviðri stendur í einn dag og verða tugir manna úti, aðallega í Borgarfirði og Miðfirði. 1757 Undan Eyjafjöllum farast 42 menn af 3 skipum frá Vestmannaeyjum. 1969 Golda Meir verður forsæt- isráðherra Ísraels. Hún var frá Milwaukee í Wiscons- in í Bandaríkjunum. 1987 Alþingi samþykkir ný lög, sem afnema prests- kosningar að mestu. Þær höfðu verið tíðkaðar frá 1886. 1988 Fyrsta íslenska glasabarn- ið fæðist og er það tólf marka drengur. Ferðafélag Íslands og sælgætisgerðin Góa efna til sér- stakrar páskaeggjagöngu á Móskarðshnúka næstkom- andi sunnudag, 21. mars. Gangan hefst klukkan 10 á sunnudagsmorgun og allir þátttakendur fá að lokinni göngu páskaegg eða ámóta gómsætan glaðning frá Góu. Gangan hefst við Skarðsá undir Móskarðshnúkum. Til að komast þangað er best að beygja til vinstri rétt ofan við Gljúfrastein í Mosfellsdal og aka afleggjara merktan Hrafnhólar. Við túngarðinn á Hrafnhólum er beygt niður með ánni og stefnt inn í dalinn að sumarbú- stöðum og þarf að opna hlið á leiðinni. Vegurinn endar á bílastæði við göngubrú yfir Skarðsá. Þórður Marelsson verður fararstjóri og leiðir hóp- inn upp á Móskarðshnúka en sá hæsti er 820 metra hár. Nánari upplýsingar er að finna á www.fi.is. Páskaeggjaganga Ferðafélagsins MÓSKARÐSHNÚKAR Ferðafélag Íslands efnir til páskaeggjagöngu á sunnudag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Dagur án eineltis verður haldinn í fyrsta skipti á vegum Reykjavíkur- borgar í dag og hefst með táknrænni athöfn á Tjarnarbakkanum klukkan 14. Þar verða nemendur úr nokkrum skól- um borgarinnar samankomnir og mun barnakór taka lagið. Viðstaddir fá miða í hönd og verða beðnir um að skrifa jákvæð skilaboð út í samfélagið til að hengja á tré en að því loknu verður efnt til málþings í Ráðhúsinu. „Ég flutti þá tillögu í borgarstjórn á haustmánuðum að það yrði einn dagur á ári helgaður einelti og þá jafnt ein- elti sem á sér stað í skólum, í íþrótta- og tómstundastarfi og á vinnustöðum fullorðinna. Tillagan var samþykkt og er ætlunin að gunnskólar, leikskólar og vinnustaðir borgarinnar taki höndum saman og hugi að því hvernig hægt er að gera vinnuumhverfið jákvæðara og þannig úr garði gert að einelti geti ekki þrifist,“ segir Marta Guðjónsdóttir, for- maður mannréttindaráðs Reykjavík- ur. Málþingið verður helgað lausnum á einelti og munu fjölmargir fyrirlesarar taka til máls. Má þar nefna Gísla Árna Eggertsson, skrifstofustjóra íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkurborg- ar, sem fjallar um uppsprettu einelt- is, Guðmund Kjerúlf, verkefnastjóra fræðsludeildar Vinnueftirlitsins, sem fjallar um félagslegt og andlegt vinnu- umhverfi, Fannýju Gunnarsdóttur, námsráðgjafa Álftamýrarskóla, sem kynnir sýnishorn úr kvikmynd Viðars Freys Guðmundssonar, Einelti: ofbeldi meðal barna, og Ingibjörgu Baldurs- dóttur frá Liðsmönnum Jerico sem eru landssamtök foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda. Marta segir það mannréttindi að líða vel á vinnustað hvort sem það er í vinnu eða skóla. Hún segir ýmsum aðgerðum hafa verið hrundið í fram- kvæmd á vegum Reykjavíkurborgar til að sporna gegn einelti og að margir leik- og grunnskólar hafi náð árangri auk þess sem umræðan um einelti hafi stóraukið þekkingu á afleiðingum þess. „Borgarstjórn Reykjavíkur telur hins vegar mikilvægt að fylgja þessu eftir með afgerandi hætti og því var ákveðið að efna til samræmds átaks. Ráðgert er að dagurinn verði haldinn árlega héðan í frá en að vinnan fari fram á öllum vinnustöðum borgarinnar þess á milli. Við erum að vonast til að geta vakið enn frekar athygli á þessum vágesti og fengið almenning í lið með okkur til að vinna gegn honum,“ segir Marta. Hún er formaður starfshóps sem kom með tillögur að eineltisdeginum en allir pól- itískir flokkar í borgarstjórn eiga full- trúa í honum. „Hugmyndin er að hann verði alltaf að störfum, fylgist með og bregðist við ef á þarf að halda.“ Marta segir ýmis ráð til að sporna gegn einelti og að mannréttindaráð hafi til að mynda bókað að allir skól- ar eigi að setja tengilið inn á heima- síðuna sína þannig að nemendur geti sett inn nafnlausar grunsemdir eða ábendingar um einelti. „Þannig er er ef til vill hægt að grípa fyrr til aðgerða. Eins þyrfti að vera vettvangur til að gera vart við einelti á vinnustöðum fullorðinna.“ vera@frettabladid.is MANNRÉTTINDARÁÐ REYKJAVÍKURBORGAR: EFNIR TIL DAGS ÁN EINELTIS Sameinast í baráttu gegn einelti MANNRÉTTINDAMÁL Marta segir það mannréttindi að líða vel á vinnustað hvort sem það er í vinnu eða skóla. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Nýlega stofnað Framfarafélag Borgfirðinga stendur fyrir málstofu um býflugnarækt, hunangsframleiðslu og rækt- un lífrænna jurta næstkomandi laugardag klukkan 14 í Logalandi. Umræðuefnin eru möguleikar í hunangsframleiðslu en framsaga er í höndum forsvarsmanna býflugnabænda á Íslandi. Hraundís Guðmundsdóttir á Rauðsgili verður síðan með kynningu á lífrænni jurtarækt. Fólki er frjálst að taka þátt í umræðum en kaffiveitingar verða seldar á staðnum. Málstofa um býflugnarækt BÝFLUGUR Framfarafélag Borgarfjarðar stendur fyrir málstofu í Loga- landi á laugardaginn.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.