Fréttablaðið - 17.03.2010, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 17.03.2010, Blaðsíða 39
MIÐVIKUDAGUR 17. mars 2010 23 Dánarbú Michaels Jackson hefur undirritað stærsta plötusamning allra tíma við Sony sem tryggir því að minnsta kosti 200 milljónir dollara, eða um 25 milljarða króna. Upphæðin gæti hækkað í rúma þrjátíu milljarða króna ef ákveðin skilyrði verða uppfyllt. Samning- urinn kemur sér einkar vel fyrir dánarbúið því Jackson skildi eftir sig miklar skuldir þegar hann lést 25. júní í fyrra. Samkvæmt samningnum verða gefnar út tíu plötur með popp- aranum á næstu sjö árum, þar á meðal ein með áður óútgefnum lögum og er hún væntanleg í nóv- ember. Einnig stendur til að gefa út DVD-mynddisk með öllum tón- listarmyndböndum popparans og endurútgefa Off The Wall, fimmtu hljóðversplötu hans sem kom út árið 1979. Áður en Jackson lést hafði hann einmitt lýst yfir áhuga á endurútgáfunni, þar sem nokkur óútgefin lög verður að finna. Sala alls konar varnings tengd- um Jackson hefur rokið upp úr öllu valdi síðan hann lést og á síðasta ári var hann einn tekjuhæsti tón- listarmaður heimsins. Sony hefur selt um 31 milljón eintaka af plöt- um hans síðan í fyrra, þar af fimm milljónir eintaka af hinni tvöföldu safnplötu Is This It. „Á meðan Michael lifði setti hann ákveðin viðmið í tónlistarbransanum með samningum sínum,“ sagði John Branca, einn þeirra sem hefur umsjón með dánarbúinu. „Þessi tímamótasamningur við Sony Music sýnir hversu mikilvæg tónlist Michaels var.“ Rob Stringer hjá Sony var einn- ig ánægður með samninginn. „Við erum staðráðnir í að vernda arf- leifð þessarar miklu goðsagnar og við erum ánægð með að geta hald- ið áfram að gefa heiminum tæki- færi til að hlusta á tónlist hans í framtíðinni.“ Lát Jacksons hefur verið úrskurðað sem manndráp. Lækn- irinn Conrad Murray, sem með- höndlaði hann með deyfilyfinu Propofol, hefur neitað ásökun- um um að hann hafi valdið dauða hans. Dánarbú gerir risasamning MICHAEL JACKSON Tíu nýjar plötur með popparanum eru væntanlegar á næstu sjö árum á vegum fyrirtækisins Sony. Catherine Zeta-Jones hefur mikinn áhuga á að leika á móti eigin- manni sínum, Michael Douglas, á hvíta tjaldinu. Nefnir hún endur- gerð svörtu kómedíunnar War of the Roses sem hugsanlegt verk- efni. Douglas lék þar aðalhlutverkið á móti Kathleen Turner og fjallaði myndin um hjón sem gengu í gegnum hatramman skilnað. Zeta veit að það getur verið erfitt að horfa á hjón leika saman í mynd eins og Tom Cruise og Nicole Kidman gerðu en vill engu að síður prófa. „Stundum lítur þetta skringilega út en mig langar að leika í endurgerð War of the Roses með eiginmanni mínum þar sem við reynum að drepa hvort annað,“ sagði hún. Vill leika á móti Douglas 000.000 200.000.000 +1.750.000.000 Ekki gleyma að vera með, fáðu þér miða fyrir klukkan fimm í dag á næsta sölustað eða á lotto.is Fyrsti vinningur stefnir í 200 milljónir og Ofurpotturinn stefnir í 1.750 milljónir. ALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUM! MIÐINN GILDIR 17. MARS 2010 A. 12 14 17 21 41 48 B. 05 16 23 36 37 38 C. 07 09 13 22 34 38 D. 03 06 19 24 25 31 E. 11 19 21 25 38 42 F. 01 25 35 36 39 46 G. 18 19 20 23 28 46 H. 22 27 29 39 40 42 Lærðu að nota netið í farsímanum – Örnámskeið fyrir starfsfólk fyrirtækja 17. mars – Fyrirtækjaþjónusta Hátækni býður upp á röð örnámskeiða í vetur. Næsta námskeið – Netið í farsímanum – verður haldið í verslun Hátækni miðvikudaginn 17. mars kl. 12. Kennd verða hagnýt ráð um net- notkun í farsímanum, notkun á þráðlausu neti, hvernig hægt er að forgangsraða aðgangspunktum í símanum o.fl. Skráning á www.hataekni.is/ornamskeid. Takmarkaður fjöldi þátttakenda. Námskeiðið er ókeypis. PI PA R \ TB W A S ÍA 9 17 5 7

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.