Fréttablaðið - 17.03.2010, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 17.03.2010, Blaðsíða 16
16 17. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 UMRÆÐAN Guðrún Valdimarsdóttir skrifar um menntamál Góður kennari er gulli betri. Samstarf heimilis og skóla er mikilvægt og góðir foreldrar láta sig varða um allt sem lýtur að velferð barna sinna. Með því að taka þátt í skólastarfi barnanna eru for- eldrar ekki einungis að fá aukna innsýn í skólastarfið heldur einnig að hafa bein jákvæð áhrif á sín eigin börn. Aðkoma foreldra að skólastarfi var fest enn frekar í sessi með nýjum grunnskólalögum um mitt ár 2008. Foreldrafélög eru því lögbundin. Skólastjóri hvers grunnskóla er ábyrgur fyrir stofnun þeirra og ætlað að að sjá til þess að þau fái aðstoð eftir þörfum. Skólaráð grunnskólanna urðu einnig til með sömu lögum en þar segir m.a.: „Við grunnskóla skal starfa skólaráð sem er sam- ráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólaráð tekur þátt í stefnumörk- un fyrir skólann og mótun sérkenna hans.“ Til einföldunar má hugsa sér skólaráð sem nokkurs konar bæjarstjórn skólans þar sem skólastjórinn er bæjarstjórinn. Skólaráðin fjalla um nánast allt sem viðkemur skólahaldinu. Mikilvægt er að fulltrúar foreldra í skólaráðum séu í góðu sambandi við aðra foreldra í skólanum og beri rödd þeirra áfram inn í skólaráð- in. Þannig hafa foreldrar tækifæri til að hafa áhrif á skólastarf barna sinna. Við erum nú á öðrum skólavetri frá því ný grunnskólalög tóku gildi. Skólaráðin hafa vonandi náð að festa sig í sessi í flestum skólum. Á vefsíðum nokkurra grunn- skóla, sem undirrituð skoðaði af handa- hófi, er þó ekki margt sem bendir til að þar séu starfandi skólaráð og ekki einu sinni upplýsingar um hverjir sitja í skólaráði skólanna. Skólaráð eru góður vettvangur fyrir alla aðila skólasamfé- lagsins – ekki síst foreldra. Það er því mikilvægt að skólaráðin kynni sig vel, haldi fundi reglulega og birti síðan fundargerðir á vefsíðum skólanna. Það er nauðsynlegt til að foreldrar nái að fylgjast með hvernig er unnið að því að gera skóla barna þeirra enn betri. Höfundur er fráfarandi framkvæmdastjóri SAM- FOK, situr í stjórnum tveggja foreldrafélaga og skipar 2. sæti á lista Framsóknarflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Foreldrar og skólastarf GUÐRÚN VALDIMARSDÓTTIR Haustið 2008 reið stærsta fjármálakreppa allra tíma yfir á Íslandi. Á sama tíma sprakk risavaxin fasteignabóla og gengi krónunnar hrundi um helming. Efnahagslegar hamfar- ir af þessari stærðargráðu kalla óumflýjanlega á tímabundinn samdrátt í landsframleiðslu og aukningu atvinnuleysis. Hagkerfið þarf að laga sig að nýjum raunveruleika. Nýir atvinnuvegir þurfa að vaxa upp í stað þeirra sem hrundu. Ein stærsta spurningin sem stjórn- völd standa frammi fyrir er hvernig þau geta best hjálpað þessu ferli að eiga sér stað á sem stystum tíma en jafnframt með þeim hætti að verðmætasköpun verði sem mest til lengri tíma. Núverandi stjórnvöld hafa lagt höfuðáherslu á að koma fjármálakerfi landsins aftur í gang þannig að fjármagn geti á ný flætt frá sparifjáreigendum til frumkvöðla. Í þessu sam- bandi er markverðast að stjórn- völd hafa í raun einkavætt tvo af stóru bönkunum þremur hraðar en nokkur hefði þorað að vona fyrstu vikurnar eftir hrun. Þetta er í grunninn mark- aðsvæn stefna sem byggist á því að einkageiranum sé best treystandi til þess að byggja upp atvinnuvegi sem leiðir til hámarksverðmætasköpunar til lengri tíma. Því miður hefur vantraust á markaðsöflin lengi verið land- lægt í stjórnmálum á Íslandi. Og slíkt vantraust virðist vera síst minna á hægri væng stjórn- málanna en þeim vinstri. Eða hvernig samrýmist það yfir- lýstri hugmyndafræði hægri- manna að kalla í sífellu eftir „stefnu stjórnvalda í atvinnu- málum“? Á ekki stefna stjórn- valda í atvinnumálum einungis að vera að skapa sterkan laga- ramma og leyfa síðan einka- framtakinu að sjá um atvinnu- sköpun? Þvert á þessa hugmyndafræði virðist lausnin í huga margra alltaf vera sú sama þegar eitt- hvað bjátar á: Byggjum fleiri álver! Vitaskuld væri ekkert að því að á Íslandi risu fleiri álver á eðlilegum markaðsforsendum. En þá þarf að vera tryggt að arðurinn af orkuframleiðslunni renni til þjóðarinnar og að hann sé nægilega mikill til þess að vega upp þau umhverfisspjöll sem hljótast af. Hingað til hefur þetta alls ekki verið tryggt. Stjórnvöld hafa haldið orkuverði til stóriðju leyndu og því hefur verið engin leið fyrir kjósendur að mynda sér upplýsta skoðun á skynsemi stóriðjuframkvæmda. Við þessar aðstæður er hætt- an sú að óþol stjórnmálamanna gagnvart tímabundnum erfið- leikum sem fylgja aðlögun hag- kerfisins að nýju jafnvægi leiði til þess að þeir veiti afslátt af arðsemiskröfum svo þeir geti keyrt hagkerfið áfram af hand- afli. Það kann ekki góðri lukku að stýra til lengri tíma. Orkuauðlindir þjóðarinnar eru einhver mestu verðmæti sem hún á. Þær eru takmörkuð auð- lind og það væri stórslys ef þær væru seldar á útsölu af skamm- sýnum stjórnmálamönnum sem vantreysta sköpunarmætti þjóðarinnar. Áður en ráðist er í frekari stóriðju er nauðsynlegt að stjórnvöld móti stefnu í auð- lindamálum sem tryggir að arð- urinn af auðlindinni renni til þjóðarinnar. Aðlögunarferlið sem hagkerf- ið gengur í gegnum þessi miss- erin er óumflýjanlega mörgum erfitt. Það er því skiljanlegt að mikillar óþreyju gæti að atvinnuleysi minnki. Varðandi stefnu stjórnvalda vegast hér á tvö sjónar mið. Stjórnvöld gætu keyrt niður atvinnuleysi hratt með því að greiða fyrir upp- byggingu stóriðju. En ef of geyst er farið í því gæti það skaðað hagkerfið til lengri tíma. Hinn kosturinn er að þau einbeiti sér að því að skapa sterka umgjörð fyrir heilbrigt viðskiptalíf og treysti markaðsöflunum og sköpunarkrafti þjóðarinnar til þess að byggja upp nýja atvinnu- vegi sem hámarka verðmæta- sköpun til lengri tíma. Seinni kosturinn kallar á þolinmæði þar sem uppbygging nýrra atvinnuvega tekur tíma. Höfundur er lektor við Columbia- háskóla í Bandaríkjunum. Afréttarinn mikli JÓN STEINSSON Í DAG | Stóriðja Orkuauðlindir þjóðarinnar eru einhver mestu verðmæti sem hún á. Þær eru takmörkuð auðlind og það væri stórslys ef þær væru seldar á útsölu af skammsýnum stjórnmála- mönnum sem vantreysta sköp- unarmætti þjóðarinnar. Tveir menn Í Vilhjálmi Egilssyni blunda tveir menn. Annar er formaður Samtaka atvinnulífsins. Hann hefur gagnrýnt stjórnvöld, sér í lagi umhverfisráð- herra, fyrir að standa í vegi fyrir að Orkuveita Reykjavíkur geti ráðist í mikilvægar framkvæmdir. Hinn er stjórnarformaður Gildis, þriðja stærsta lífeyrissjóðs landsins. Hann vill ekki kaupa skulda- bréf í OR í útboði til að fjármagna framkvæmd- ir. Orkuveitan ætti kannski að klaga stjórn- arformann Gildis til formanns Samtaka atvinnulífsins. Herferð gegn Vilhjálmi? Það ætlaði allt um koll að keyra þegar Svandís Svavarsdóttir umhverf- isráðherra lét Umhverfisstofnun úrskurða aftur hvort meta ætti allar framkvæmdir tengdar Suðvesturlínu. Fyrirtæki og aðrir hagsmunaaðilar á Suðurnesjum gagnrýndu Svandísi harkalega og birtu auglýsingar þar sem Svandís var sögð vinna gegn svæðinu. Ætli þeir sömu séu nú að undirbúa auglýsingaherferð gegn Vilhjálmi? Hænan og eggið Rætt var við Guðjón Arnar Kristjánsson, fráfarandi formann Frjálslynda flokksins, í Fréttablaðinu í gær. Útlendingastefnu flokksins bar á góma. Guðjón sagði að mikill fjöldi erlends verkafólks á Íslandi hefði verið þensluhvetjandi. „Það sýndi sig best í byggingariðnaðinum þar sem útlendingar voru mjög stór hluti af vinnuaflinu og okkur tókst að byggja fimm eða sex þúsund íbúðir sem enginn hefur not fyrir.“ Hér vaknar spurning um orsök og afleið- ingu: Kom erlent verkafólk til Íslands vegna þess að hér var verið að byggja hús eða var byrjað að byggja hús því hér var mikið af erlendu verkafólki? bergsteinn@frettabladid.isF réttablaðið sagði í fyrradag frá hugmyndum um að taka á ný upp kaupaukakerfi eða svokölluð bónuskerfi í bönk- unum, en þau hafa ekki verið við lýði frá því fyrir hrun. Viðbrögðin við þessum fréttum hafa ekki látið á sér standa. Á Alþingi í gær sagðist Lilja Mósesdóttir, for- maður viðskiptanefndar, ætla að kalla forsvarsmenn bankanna á fund nefndarinnar til að ræða málið. Ótímabært væri að innleiða kaupaukakerfi á nýjan leik. Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylk- ingarinnar, vildi láta banna slík kerfi og Róbert Marshall, sam- flokksmaður hans, vildi „skattleggja þau upp í rjáfur“. Þessi viðbrögð eru bergmál af þeim umræðum, sem fram hafa farið bæði austan hafs og vestan um bónuskerfi bankanna eftir að bankakreppan brast á. Stjórnvöld í ýmsum löndum hafa gripið til lagasetningar til að setja þak á bónusana, breyta fyrirkomulagi þeirra og skattleggja þá. Samt eru kaupaukakerfi í grundvallaratriðum ágæt til síns brúks og notuð í mörgum atvinnugreinum. Margir stjórnendur fyrirtækja fá greiddan kaupauka fyrir góða frammistöðu og það sama á iðulega við um almenna starfsmenn þegar vel geng- ur. Bónusgreiðslur í fjármálageiranum hafa hins vegar verið gagnrýndar frá því löngu fyrir hrun, fyrst og fremst af þremur ástæðum. Í fyrsta lagi hafa bónusarnir í bankageiranum einfaldlega verið fáránlega háir og úr takti við allt sem eðlilegt getur talizt á vinnu- markaði. Sú gagnrýni hefur ekki aðeins átt við hér á Íslandi, held- ur líka í öðrum löndum þar sem stjórnendur í fyrirtækjum hafa almennt mun hærri laun en hér á landi. Síðastliðið sumar drógu stjórnendur þrotabús Straums til baka tillögur um himinháa bón- usa, allt að 240 milljónir á mann, sem áttu að greiðast ef vel gengi að hámarka eignasafn bankans. Þá viðurkenndu menn að hafa dottið úr sambandi við íslenzkan raunveruleika. Í öðru lagi hefur verið gagnrýnt harðlega að bankamenn fái greiddan háan bónus þrátt fyrir taprekstur og þrátt fyrir að skatt- greiðendur hafi lagt bönkunum til háar fjárhæðir. Sú gagnrýni á jafnt við hér og í nágrannalöndunum. Síðast en ekki sízt er það nokkuð almenn skoðun að bónuskerfin hafi ýtt undir áhættusækni bankamanna. Þar sem bónusar voru miðaðir við lánasöfn var tilhneigingin sú að lána og lána, án þess að huga nægilega vel að endurgreiðslunum. Þar sem bónusar mið- uðust við afkomu, stuðluðu þeir að sókn eftir skammtímahagnaði, í stað þess að menn hefðu langtímahagsmuni bankans í huga. Í frumvarpi Gylfa Magnússonar viðskipta- og efnahagsráðherra um fjármálafyrirtæki er gert ráð fyrir að böndum verið komið á bónusana. Gert er ráð fyrir að Fjármálaeftirlitið setji reglur um hvatakerfin, sem taki meðal annars mið af væntanlegum reglum Evrópusambandsins. Búizt er við að sett verði þak á bónusana og mælingar á frammistöðu taki til lengri tíma, en ekki aðeins skammtímaárangurs. Hvatakerfi getur komið að gagni í bönkum eins og annars stað- ar. En bankarnir mega sízt af öllu við því að gefa almenningsálit- inu langt nef á nýjan leik með því að búa til launakerfi, sem tekur ekkert mið af raunveruleika hins almenna, íslenzka launþega. Kaupaukakerfi eru ágæt til síns brúks svo lengi sem þau eru í tengslum við raunveruleikann. Bönd á bónusana ÓLAFUR Þ. STEPHENSEN SKRIFAR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.