Fréttablaðið - 17.03.2010, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 17.03.2010, Blaðsíða 27
fjármál heimilanna ● fréttablaðið ●MIÐVIKUDAGUR 17. MARS 2010 7 „Við veitum barnafjölskyldum sem glíma við einhvers konar erfiðleika, svo sem fötlun barna, þroskafrá- vik eða illvíga sjúkdóma, stuðning, bæði með ráðgjöf og fjárhagslegri aðstoð,“ segir Sverrir Óskarsson, fé- lagsráðgjafi hjá Tryggingastofnun ríkisins. Hann kveðst vera í þéttri samvinnu við spítalana, barna- og unglingageðdeild, greiningar- stöð og aðra aðila um allt land sem sinna barnafjölskyldum og er beð- inn að útskýra nánar þá aðstoð sem í boði er. „Ef foreldrar eiga alvarlega veik börn eða fötluð sem eru heima allan daginn, eiga þeir rétt á foreldra- greiðslum upp á 150-160 þúsund á mánuði,“ segir Sverrir. Hann kveðst þar eiga við foreldra sem ekki geta verið á vinnumarkaði en eru búnir með rétt sinn hjá vinnuveitanda og sjúkrasjóði stéttarfélags. Mun fleiri fá umönnunargreiðsl- ur enda fara 1.400 milljónir í þær á hverju ári að sögn Sverris. Þær renna til foreldra tæplega 3.000 barna sem eiga við einhvers konar fötlun eða veikindi að etja. Flest þeirra fá aðra þjónustu líka, svo sem í leikskóla eða skóla. „Umönn- unargreiðslur í hverjum mánuði eru frá 30 þúsundum upp í 120 þús- und eftir alvarleika hverju sinni,“ lýsir hann. „Þær koma til móts við útlagðan kostnað vegna meðferðar og umönnunar.“ Sverrir segir þjónustu Trygg- ingastofnunar við barnafjölskyldur hafa breyst mikið í seinni tíð. „Áður fyrr mátti enga aðstoð veita fyrr en búið var að greina barnið í bak og fyrir og það gat orðið langt ferli. Nú er unnið eftir öðrum hugmyndum. Sjálfsagt þykir að grípa snemma inn í með ráðgjöf og stuðningi og koma þannig jafnvel í veg fyrir þroska- vandamál, kvíða og vanlíðan. Síðan er hægt að draga úr stuðningnum ef vel gengur. Börn á einhverfurófinu fá strax atferlisþjálfun þannig að þeim líði sem best í sínu daglega lífi. Um leið byrjum við að vinna með foreldrum með ráðgjöf og stuðningi, gegnum Bugl, greiningarstöð og spítala.“ - gun Ráðgjöf og stuðningur „Sjálfsagt þykir að grípa snemma inn í og koma þannig í veg fyrir þroskavandamál, kvíða og vanlíðan,“ segir Sverrir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ● STYRKUR SVEITARFÉLAGA Sveitar- félögum er skylt að styrkja fjölskyldur fjárhags- lega sem ekki geta séð sér og sínum far- borða án aðstoðar. Umsækjendur útfylla þá eyðublöð með nákvæmum upplýsingum um lögheimili, fjölskyldustærð, heildartekj- ur og eignir. Einnig á staðfest skattframtal vegna síðasta árs að fylgja með umsókninni. Samkvæmt reglum sveitarfélaganna frá desember síðastliðnum sem finna má á heimasíðu félags- og tryggingaráðuneytisins er grunnfjárhæð fyrir þriggja manna fjölskyldu 225.972 á mánuði, fjögurra manna fjölskyldu 251.080 og fimm manna fjölskyldu 276.188. ● TESKEIÐ ER NÓG Flestir setja alltof mikið þvottaefni í hólf þvottavélarinnar, en í flestum tilfellum verður þvotturinn alveg jafn hreinn þótt bara sé notuð ein teskeið af þvottaefni í hvern þvott. Heimild: meninga.is ● MUNIÐ AFSLÁTTAR- KORTIN! Sjúklingar á aldrin- um 18 til 70 ára eiga rétt á af- sláttarkorti ef þeir hafa greitt meira en 25 þúsund krónur í lækniskostnað á almanaksár- inu. Munar miklu að nýta sér af- sláttarkortin þar sem þau lækka mikið lækniskostnað þar á eftir. Heimild: www.meniga.is 35% viðskiptavina okkar með erlend íbúðalán hafa nýtt sér höfuðstólslækkun. Hafðu samband Hefur þú kynnt þér lausnir Arion banka? Við hjá höfum lagt mikla vinnu og metnað í að koma til móts við þarfir viðskiptavina okkar með íbúðalán. Á annað þúsund viðskiptavinir hafa þegar nýtt sér lausnir bankans til höfuðstólslækkunar. Þar af er ungt fjölskyldufólk með sína fyrstu íbúð í miklum meirihluta. Við hvetjum viðskiptavini að koma til okkar og skoða hvaða lausnir standa þeim til boða. Arion banki vill árétta að fái greiðendur erlendra lána sér dæmdan betri rétt í Hæstarétti, missa þeir ekki þann rétt þó að þeir nýti sér lausnir bankans. Nánari upplýsingar fást hjá þjónusturáðgjöfum í útibúum eða á .

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.