Fréttablaðið - 17.03.2010, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 17.03.2010, Blaðsíða 46
30 17. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 BESTI BITINN Í BÆNUM LÁRÉTT 2. vín, 6. skammstöfun, 8. skammst., 9. skraf, 11. tveir eins, 12. óláns, 14. mont, 16. hvað, 17. stilla, 18. hylli, 20. karlkyn, 21. högg. LÓÐRÉTT 1. tilraunaupptaka, 3. kringum, 4. skáldsaga, 5. taumur, 7. hreyfast, 10. haf, 13. drulla, 15. hita, 16. rámur, 19. í röð. LAUSN LÁRÉTT: 2. must, 6. eh, 8. möo, 9. mas, 11. gg, 12. ógæfu, 14. grobb, 16. ha, 17. róa, 18. ást, 20. kk, 21. stuð. LÓÐRÉTT: 1. demó, 3. um, 4. sögu- bók, 5. tog, 7. haggast, 10. sær, 13. for, 15. baka, 16. hás, 19. tu. „Ég er að skoða verkefnin og er mjög opin fyrir þeim,“ segir fyrirsætan og sjónvarps- konan Ingibjörg Egilsdóttir. Ingibjörgu stendur til boða að taka að sér tvö verkefni í Karíbahafinu í sumar. Annars vegar að sýna kjóla á eyjunni St. Croix í maí og hins vegar að dæma í fegurðarsamkeppni á Bahamaeyjum í ágúst. „Það er stutt síðan ég fékk boð um að sýna á tískusýningu í St. Croix, sem er á Jómfrúareyjunum,“ segir Ingibjörg. „Það er dóminískur tískuhönnuður sem vill fá mig til að sýna kjólana sína. Í seinni ferð- inni myndi ég dæma í fegurðarsamkeppni á Bahama sem heitir Miss Teen Bahama.“ Ingibjörg fer að vera ansi sjóuð í dómara- störfum, en Fréttablaðið greindi frá ferð hennar til Washington á síðasta ári þar sem hún sat í dómnefnd í fegurðar- samkeppninni Miss Sinergy. Hún var einnig í dómarasæti í Ungfrú Reykja- vík á dögunum. „Það er öðruvísi að vera hinum megin við borðið,“ segir Ingibjörg. Hún fór fyrir Íslands hönd í keppnina Miss Uni- verse og hafnaði á meðal fimmt- án efstu. En ætli hún sé strangur dómari? „Já, mjög,“ segir hún og hlær. Spurð hvort hinir dómararnir þurfi að hemja heift hennar segist hún ekki ganga svo langt, en játar þó að vera afar kröfuhörð. „Ég er ekki skoðanalaus.“ - afb TIL BAHAMAEYJA Ingibjörgu stendur til boða að dæma í fegurðarsamkeppni á Bahamaeyjum í ágúst. Ekki leiðinlegt sumarstarf það. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Boðin tvö störf í Karíbahafinu í sumar Tónlistarkonan Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, Lay Low, kom til landsins í gær eftir að hafa hitað upp fyrir hina þekktu bandarísku hljómsveit Dave Matthews Band á tvennum tónleikum í Kaupmannahöfn og Stokkhólmi. Þar spilaði hún fyrir nokkur þúsund manns og gengu tónleikarnir eins og í sögu. Meðlimir Dave Matthews Band gerðu góðan róm að tónlist Lay Low og eftir síðari tónleikana skiptust þeir á geisladiskum við tónlistarkonuna snjöllu. Lay Low lenti reyndar í leiðinlegu atviki á leiðinni frá Kaupmanna- höfn til Stokkhólms þegar taskan hennar týndist. Í henni var meðal annars hljóðnemi og eitthvað af fötum en einnig allt snyrtidótið hennar. Hún lét það ekki á sig fá og steig á sviðið fyrir framan áhorfendafjöldann án nokkurs farða og spilaði með dyggri aðstoð Sigtryggs Baldurs- sonar og Péturs Hallgrímssonar. Tónlistarmaðurinn Bjartmar Guð- laugsson var gestur í útvarps- þættinum Litlu hafmeyjunni á Rás 2 um síðustu helgi. Meistari Bjart- mar gerði sér lítið fyrir og söng nýja og uppfærða útgáfu af sínu þekktasta lagi, Týndu kynslóðinni, sem var allrar athygli vert. Sér í lagi fyrir þær sakir að Bjartmar uppfærði textann um miðbik lagsins. Þá lýsti hann ástandinu á fólkinu sem sungið er um, nú tuttugu árum síðar. Eins og nú er til siðs er pabbinn kominn með hormottu og er duglegur að þukla á sér punginn. - fb, hdm FRÉTTIR AF FÓLKI „Besti bitinn er í Garðinum á Klapparstíg. Þetta er hollustu- staður með rosalega góðum mat. Það er súpa og aðalréttur á hverjum degi og ég kvarta aldrei. Fæ alltaf eitthvað gott.“ Guðbjörg Ingvarsdóttir gullsmiður. „Þetta er bara stutt stopp. Sigmar [Guðmundsson, ritstjóri Kastljóss- ins] bað mig um að taka föstudags- kvöldin fram á vor og ég varð við þeirri bón,“ segir Þórhallur Gunn- arsson, fyrrverandi dagskrárstjóri RÚV og ritstjóri Kastljóssins. Hann snýr aftur á fornar slóðir á föstu- daginn þegar hann verður spyrill í föstudags-Kastljósinu. Þórhallur hefur raunar á uppsagnarfrestinum sínum sinnt nokkrum öðrum verk- efnum fyrir RÚV og föstudagsþætt- ir Kaststljóssins verða bara viðbót við þau. Ár og dagar eru liðnir síðan Þór- hallur var í hlutverki spyrilsins. „Já, það er orðið töluvert langt síðan ég tók viðtöl og það verður gaman að sjá hvort maður hafi gleymt öllu, eflaust þarf ég einhvern tíma til að slípa þetta til, ætli ég verði ekki orðinn fínn þegar ég hætti,“ segir Þórhallur en hann tók sér gott frí eftir að hafa gengið á fund Páls Magnússonar útvarpsstjóra og sagt upp störfum. „Eftir að hafa unnið tvö störf og varla tekið mér sumar- frí þá fannst mér bara kominn tími á góða pásu. Ég nýtti tímann vel, varði honum með fjölskyldunni en það lá alltaf fyrir að ég væri ekk- ert að setjast í helgan stein.“ Þór- hallur hefur ekki setið með hend- ur í skauti því hann hefur verið að undirbúa fjölmiðlakúrs við Háskól- ann í Reykjavík en kennsla í honum hefst í ágúst. Þórhallur segir það koma vel til greina að sinna sjálfur einhverri kennslu. - fgg Þórhallur snýr aftur í Kastljósið VERÐUR SPYRILL Þórhallur Gunnarsson tekur á móti gestum í föstudagsþætti Kastljóssins. HAFNARFJARÐARKIRKJA.IS SKRÁNING ER HAFIN Á SÍÐASTA HJÓNA OG SAMBÚÐARNÁMSKEIÐ VETRARINS Í HAFNARFJARÐARKIRKJU. Námskeiðið verður haldið dagana 13. og 20. apríl en þessi námskeið hafa nú verð haldin samfellt frá árinu 1996. Alls hafa á þrettánda þúsund manns tekið þátt í námskeiðunum frá upphafi . Leiðbeinandi er sr.Þóhallur Heimisson. Á námskeiðunum er nú lögð sérstök áhersla á hvernig hægt er að styrkja innviði fjölskyldunnar og samband hjóna á þeim erfi ðu tímum sem ganga yfi r land og þjóð. Skráning fer fram á thorhallur33@gmail.com. Nánari upplýsingar um námskeiðin er að fi nna á hafnarfjardarkirkja.is Athugið að takmarkaður fjöldi kemst að í hvert skipti. Ólafur Darri Ólafsson leikur aðalhlutverkið í nýjustu kvik- mynd Baltasars Kormáks, Djúp- inu. Handrit myndarinnar er sótt í samnefndan einleik Jóns Atla Jónassonar en það verk var inn- blásið af einstöku björgunarafreki Guðlaugs Friðþórssonar. Guðlaugur synti fimm kílómetra og var sex tíma samfleytt í ísköld- um sjónum þegar bát hans, Hell- isey VE, hvolfdi skammt austur af Heimaey með þeim afleiðing- um að fjórir góðir vinir hans fór- ust. „Í raun er 11. mars sorgardag- ur hjá mér því þá missti ég fjóra skipsfélaga mína en 12. mars er upprisan og þeim degi fylgir viss hamingja þó svo tilfinningarnar séu blendnar,“ sagði Guðlaugur í samtali við Fréttablaðið þegar þess var minnst að 25 ár væru liðin frá þessu björgunarafreki. Ólafur Darri var ansi upptek- inn þegar Fréttablaðið náði tali af honum. Leikarinn viðurkenndi að hann væri ákaflega spenntur fyrir hlutverkinu og sagðist sjálfur vera ágætis sundmaður, þó ekkert eins og Guðlaugur. „Ég held að ég sé alveg slarkfær, allavega góður í marvaða,“ segir Ólafur og bendir á að þetta afrek Guðlaugs sé í raun merkilegur hluti af sögu Íslands. Baltasar sjálfur var hæstánægð- ur með að hafa fengið Ólaf Darra í hlutverkið. „Ég þurfti að fá leikara sem væri harður af sér og ég held að Ólafur sé það. Hann verður alla- vega að vera það,“ segir Baltasar og upplýsir meðal annars að Ólaf- ur verði meira eða minna í vatni allt tökutímabilið. Baltasar kveðst hafa heyrt það á fólkinu í Eyjum að það sé ánægt með Ólaf í hlutverk- ið en Guðlaugur sjálfur hefur lítið viljað tjá sig um gerð myndarinnar við fjölmiðla. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá fékk Djúpið styrk frá Norræna kvikmyndasjóðnum og nýverið bættist við styrkur frá norska kvikmyndasjóðnum. Þá fékk myndin vilyrði fyrir styrk hjá íslenska kvikmyndasjóðnum. „Handritinu hefur verið feikilega vel tekið og ég vonast bara til að komast af stað í tökur sem fyrst,“ segir Baltasar. freyrgigja@frettabladid.is BALTASAR KORMÁKUR: ÉG ÞURFTI HÖRKUTÓL Í ÞETTA HLUTVERK Ólafur Darri leikur Guðlaug sundkappa í kvikmynd LEIKUR GUÐLAUG Ólafur Darri Ólafsson leikur aðalhlutverkið í næstu kvikmynd Baltasars Kormáks, Djúpinu. Ólafur sést hér með spúsu sinni, Lovísu Ósk Gunnarsdóttur dansara. Myndin er innblásin af einstæðu björgunarafreki Guðlaugs Friðþórssonar sem synti fimm kílómetra í ísköldu Atlantshafinu eftir að bát hans, Hellisey VE, hvolfdi austur af Heimaey. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.