Fréttablaðið - 17.03.2010, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 17.03.2010, Blaðsíða 24
 17. MARS 2010 MIÐVIKUDAGUR4 ● fréttablaðið ● fjármál heimilanna Kemur út laugardaginn 20. mars Ferðir Sérblað Fréttablaðsins Auglýsendur vinsamlegast hafið samband: Benedikt • benediktj@365.is • sími 512 5411 Rekstur bifreiðar vegur þungt í heimilisbókhaldinu. Því er forvitni- legt að rýna í tölur og bera sama kostnað við rekstur bíls á ársgrund- velli miðað við strætóferðir. Samkvæmt upplýsingum á vef Félags íslenskra bifreiðaeigenda var heildarrekstarkostnaður árið 2009 við nýja bifreið sem kostar 2,2 milljónir og eyðir 8 lítrum á hundr- aðið, 916.750 krónur á ári. Þar er innifalinn kostnaður við trygging- ar, viðhald og viðgerðir, ný dekk, skatta og skoðun, bílastæði og fleira. Bensínkostnaður var þá áætlaður 172.800 krónur miðað við 15.000 kílómetra akstur á ári. Miðað var við 144 krónur á lítr- ann en nú kostar lítrinn á 95 okt- ana bensíni 199 krónur á höfuðborg- arsvæðinu. Þennan kostnaðarlið má því hækka upp í 238.800 krónur á ári og verður því heildarrekstrar- kostnaður 67.000 krónum hærri eða 983.750 krónur. Stök ferð með strætó kostar 280 krónur. Ef keyptar væru tvær ferð- ir á dag alla daga ársins í eitt ár hljóðaði kostnaðurinn upp á 204.400 krónur alls. Strætó býður svo upp á ódýrari fargjöld ef keypt eru kort, sem gilda í ótakmarkaðan fjölda ferða innan ákveðins tímaramma. Gula kortið gildir í tvær vikur og kostar 3.500 krónur og það græna í mánuð á 5.600 krónur. Eins má kaupa 9 mán- aða kort á 30.500 krónur og miðað við það kostar mánuðurinn 3.390 krónur. Ótakmarkaðar ferðir með strætó allt árið kosta þá 40.680 krónur. Þannig má spara 198.120 krónur á ári með því að taka strætó og sleppa bensíni á bílinn. Eins má losna við tryggingar, viðhald og annan kostnað vegna bílsins. Sparn- aðurinn yrði rétt tæp milljón á ári því ef árskostnaður við strætó er dreginn frá heildarrekstrarkostn- aði við bílinn eru 943.070 krónur í afgang. Sjá: fib.is og straeto.is - rat Strætóferðirnar borga sig Hægt er að spara hátt í milljón á ári með því að nota strætó. Brynhildur Pétursdóttir, ritstjóri Neytendablaðsins, kann góð og gild ráð til að gæta hófs við matarinnkaup heimilisins. „Mikilvægast er að skoða mæli- einingaverð matvöru, því ekki er sjálfgefið að stærri pakkningar séu ódýrari en þær minni. Þannig kaupi ég frekar eitt kíló af sykri í stað tveggja kílóa poka þar sem sparast á því nokkrar krónur,“ segir Brynhildur, spurð um góð ráð til sparnaðar í matarinnkaupum heimilanna. Hún útskýrir að mæli- einingaverð birtist ýmist sem lítra- verð, kílóverð eða stykkjaverð. „Lögum samkvæmt á mæliein- ingaverð alls staðar að sjást og það á við um flestalla matvöru. Það sparar kaupandanum dýrmætan tíma við óþarfa útreikning stykkja- verðs, til dæmis uppþvottavélat- aflna eða bleia, sem er eðlilegt að kaupendur vilji vita þegar horft er á verð pakkninga. Því er mæliein- ingaverðið mjög mikilvægt.“ Brynhildur segir rannsóknir sýna að fólk hendi mat í miklum mæli. „Margir kaupa inn hrein- an óþarfa því þeim finnst þeir þurfa að eiga ýmsa matvöru til vara, en best er að versla inn eftir fyrirfram ákveðnum mat- seðli og kaupa aðeins það sem vantar. Dýrmætar skinkusneið- ar sem ekki náðu að klárast, vín- berjaklasi sem skemmdist, brauð sem myglaði og ýmislegt aftast í ísskápnum lendir í ruslinu, svo gæta þarf þess að kaupa færra svo varan renni ekki út áður en hægt sé að nota hana.“ Að sögn Brynhildar ættu allir að gefa sér tíma til að fara yfir innkaupastrimilinn eftir matar- innkaup þar sem verð á tilboðs- vöru skili sér ekki alltaf í búðar- kassann, ýmist vegna þess að til- boðið er búið og gleymdist að taka miða af vörunni, eða ekki sé búið að setja tilboðsverð í kassann. „Slíkar villur muna miklu fyrir budduna, rétt eins og þegar dýr- ari grænmetistegund er slegin inn vitlaust.“ Brynhildur segir flestum lær- dómsríkt að halda heimilisbókhald um tíma. „Ef fólk miklar fyrir sér að halda heimilisbókhald í heilt ár er nóg að taka fyrst fyrir einn mánuð. Yfirleitt kemur ýmislegt á óvart úr þeirri vinnu, eins og hvað kókflaskan á borðinu kostar yfir mánuðinn, kaffibollinn á ferðinni og fleira sem virðist lítið en verð- ur stórt þegar allt er tekið. Auðvelt er að fá aðgang að góðu heimilis- bókhaldi hjá Neytendasamtökun- um, sem og í heimabönkunum, og virkilega hollt að sjá í hvað maður raunverulega eyðir og hverju maður er þá tilbúinn að breyta til að létta aðeins á matarkörfunni.“ Brynhildur segir að lokum að auðvelt sé að eiga fleiri krónur eftir, ef tími vinnst til að gera sinn eigin skyndibita heima, í stað þess að panta pitsur eða hamborgara utan úr bæ, láta af þeim ávana að drekka gos eða ávaxtadrykki með mat og spara mjólkina út á morg- unkornið því oft sé afgangurinn efni í heilt mjólkurglas eða meira þegar morgunverði lýkur. - þlg Hendum of miklum mat Fokdýrir ávanar Þessar upphæðir sparast á mánuði ef lagður er niður eftirfarandi ávani: Hálfs lítra gosflaska á dag. Algengt verð um 200 krónur. Á mánuði 6.000 krónur. Einn sígarettupakki á dag. Algengt verð um 900 krónur. Á mánuði 27.000 krónur. Einn kaffi í götumáli á dag. Algengt verð um 400 krónur. Á mánuði 12.000 krónur. Eitt súkkulaðistykki á dag. Algengt verð um 200 krónur. Á mánuði 6.000 krónur. ● TILBOÐIN Á NETINU Matarkarfan vegur þungt í útgjöldum heimilanna og miklu getur skipt að fylgj- ast með tilboðum og nýta sér þau. Matvöru- búðir bjóða upp á svokölluð helgartilboð þar sem ákveðnar vörur eru á góðu verði frá fimmtudegi til sunnudags eða mánudags í hverri viku. Gott er að bera saman tilboðin en í stað þess að þurfa að fylgjast með auglýsing- um í dagblöðum og sjónvarpi er hægt að skoða velflestar matvörubúðir og tilboð þeirra á heima- síðunni www.matarkarfan.is. Á síðunni er einnig yfirlit yfir opnunartíma verslanna, ýmis sparnaðarráð, uppskriftir sem og góður tenglabanki sem vísar á ýmislegt er viðkemur heimilishaldi. ● BJÓDDU BETUR! Tryggingafélögin eru í harðri samkeppni og keppast við að laða að sér viðskiptavini. Egndu þeim árlega saman með því að leita eftir tilboðum í allar tryggingarnar og þú getur ef til vill lækk- að tryggingarnar um tugi þúsunda á ári. Heimild: www.meninga.is „Mikilvægast er að skoða mælieiningaverð matvöru, því ekki er sjálfgefið að stærri pakkningar séu ódýrari en þær minni. Þannig kaupi ég frekar eitt kíló af sykri í stað tveggja kílóa poka þar sem sparast á því nokkrar krónur,“ segir Brynhildur. FRÉTTA BLA Ð IÐ /VILH ELM ● VAXTABÆTUR Vaxtabætur er styrkur frá ríkinu sem fólk getur átt rétt á samkvæmt ákveðnum reglum ef það borgar háa vexti af húsnæðislánum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.