Fréttablaðið - 17.03.2010, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 17.03.2010, Blaðsíða 17
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 JARÐMINJAGARÐAR Á ÍSLANDI verða umfjöllunar- efni málþings sem haldið er í Salnum í Kópavogi miðvikudag- inn 24. mars. Aðgangur er ókeypis en þátttöku þarf að tilkynna fyrir 22. mars. www.ferdamalastofa.is „Skemmtilegast af öllu þykir mér að ferðast um landið og Vest- firðirnir eru auðvitað í sérstöku uppáhaldi hjá mér. Ég gleymi því til dæmis aldrei þegar ég sigldi um firðina á vegum ferðafyrir- tækisins Borea Adventures, sem hefur aðsetur á Ísafirði, sumarið 2008,“ segir Jón Þór Þorleifsson kvikmyndagerðarmaður þegar hann er spurður um sérlega eftirminnilegt ferðalag. Jón Þór sigldi á skútunni Auroru ásamt hópi af vinum frá Ísafirði í Jökulfirði og yfir í Grunnavík ásamt kapteininum Búbba. Þar var farið í land og gafst ferðalöngunum tækifæri til að æfa sig á kajökum meðan Búbbi tíndi kræklingana sem síðar urðu forréttur kvöldsins. Í aðalrétt voru þorskhnakkar, sem snæddir voru um borð í skútunni. „Svo kveiktum við varðeld í landi, sungum, spiluðum á gítar og höfð- um það huggulegt. Svo var sofið í skútunni um nóttina. Grunna- vík er mjög sérstakur staður í mínum huga því þar er meðal annars kirkjan sem foreldrar mínir giftu sig í og bróðir minn var skírður þar. Fjölskyldan mín á líka sumarbústað á svæðinu,“ segir Jón Þór. Daginn eftir var siglt yfir að Hesteyri og gengið þaðan yfir í Aðalvík, sem tók dagstund. Þang- að kom svo skútan og sótti hópinn og sigldi aftur á Ísafjörð. „Þetta er tvímælalaust einn fallegasti staður sem til er. Náttúran er stórkostleg og allt svo óspjall- að,“ segir Jón Þór og bætir við að skútusigling sé frábær leið til að ferðast. „Við höfðum hótelið með okkur og ótal margt hægt að gera sér til afþreyingar, meðal annars gátum við synt í sjónum því veðrið var svo gott. Ég get lofað því að ég fæ aldrei leið á svona ferðum.“ Skömmu eftir þessa eftirminni- legu ferð um Vestfirðina fjárfesti Jón Þór í sínum eigin báti, sem hann kallar Stóra-Vísund. „Ég hef bátinn hér í Reykjavík en fer oft með hann vestur og sigli í Jökul- firðinum. Þá fer ég gjarnan inn í Flæðareyri, í Leirufjörð og margt fleira,“ segir Jón Þór Þorleifsson. kjartan@frettabladid.is Vestfirðirnir fallegastir Jón Þór Þorleifsson kvikmyndagerðarmaður ferðast mikið um landið og er sérlega hrifinn af Vest- fjörðum. Skútusigling um firðina fyrir tveimur árum er honum sérstaklega eftirminnileg. Jón Þór fer með með bátinn sinn, Stóra-Vísund, til Vestfjarða til að sigla þar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Viltu breyta mataræðinu til batnaðar? ....en veist ekki hvar þú átt að byrja? Í lok fyrirlestrar fáið þið leiðbeiningar um val á heilsufæði. Innifalið í námskeiði er mappa með uppskriftum og fróðleik. Verð aðeins kr. 4.400.- Inga tekur einnig á móti fólki í einkaráðgjöf alla daga. Nánari upplýsingar og skráning í síma 8995020 eða á eig@heima.is www.heilsuhusid.is 23. mars kl. 19.30 - 22.00 Heilsuhúsinu Lágmúla INGA KRISTJÁNSDÓTTIR næringarþerapisti D.E.T. leiðir ykkur í allan sannleikann um hversu auðvelt það er í raun að breyta mataræðinu til batnaðar. Farið verður með einföldum hætti yfir: • Hvaða óæskilegum mat við getum skipt út. • Hvaða fita er óholl og hver er lífsnauðsynleg. • Hvernig við getum komið jafnvægi á blóðsykurinn og öðlast meiri orku vellíðan og heilbrigði. Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.