Fréttablaðið - 17.03.2010, Síða 10
10 17. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR
SVEITARFÉLÖG Sveitarfélögin á höf-
uðborgarsvæðinu hafa mjög mis-
munandi hátt á varðandi það
hvernig þau nýta þjónustu inn-
heimtufyrirtækja til að sækja
vangoldna skatta og gjöld til íbúa
sinna.
Hvorki Mosfellsbær né Hafn-
arfjörður nýta milliinnheimtu hjá
fyrirtækjum á borð við Intrum og
Momentum heldur senda sjálfir
ítrekanir uns vanskilum er vísað í
hefðbundna lögfræðiinnheimtu.
Mosfellsbær sendi mál 492 aðila
í bænum, sem voru með samtals
34,7 milljónir króna í vangold-
in fasteignagjöld, í hefðbundna
lögfræðiinnheimtu.
Mál fjögurra foreldra leikskóla-
barna, sem skulduðu samtals
225.000 krónur fóru í lögfræðiinn-
heimtu frá Mosfellsbæ. Einnig mál
foreldra sex barna vegna vangold-
inna skólamáltíða. Vanskil þeirra
voru samtals 127.000 krónur.
Fram kom í Fréttablaðinu fyrir
skömmu að Reykjavíkurborg hefur
nýtt innheimtufyrirtækin til að
sækja um 11 prósent af fasteigna-
gjöldum borgarbúa og hluta gjalda
fyrir leikskólavist og skólamáltíð-
ir hjá talsverðum hópi foreldra.
Kópavogsbær sendi vangoldin
leikskólagjöld fyrir 20,6 milljón-
ir króna til innheimtufyrirtækis
á árinu 2009. Ekki kemur fram í
svari bæjarins hve stór hópur var
í vanskilum. Ef miðað er við svip-
uð meðalvanskil og í Reykjavík
má áætla að í Kópavogi um sé að
ræða að minnsta kosti 300 foreldra
leikskólabarna.
Kópavogur sendi hvorki fast-
eignagjöld né skólamáltíðir til
milliinnheimtu og ekki ligg-
ur fyrir hve háar fjárhæðir fóru
þar til lögfræðiinnheimtu. Alls
sendi bærinn 32 milljónir króna
til milliinnheimtu, þannig að leik-
skólagjöldin eru um tveir þriðju af
heildarfjárhæðinni.
peturg@frettabladid.is
Ólík viðbrögð
við vanskilum
Hvorki Hafnarfjörður né Mosfellsbær nýta þjónustu
fyrirtækja á borð við Intrum og Momentum. Það
gera Garðabær og Kópavogur, líkt og Reykjavík.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Kópavogur fól milliinnheimtufyrirtæki að sækja um 20,6
milljónir króna í vangoldnum leikskólagjöldum í fyrra. Mosfellsbær sendi mál fjög-
urra foreldra leikskólabarna og sex grunnskólabarna í lögfræðiinnheimtu.
Garðabær hefur gert samning við
fyrirtækið Momentum um milliinn-
heimtu fyrir hönd bæjarins.
Samkvæmt honum tók Mom-
entum til innheimtu á árinu 2009
fasteignagjöld 254 aðila í Garðabæ
sem voru í vanskilum með sam-
tals 57,7 milljónir króna eða um
227.000 krónur að meðaltali hver.
Málum nítján foreldra leikskóla-
barna var einnig vísað til milliinn-
heimtu vegna vanskila upp á um
1,7 milljónir króna.
Samningur Garðabæjar og
Momentum gerir ráð fyrir að
fyrirtækið sendi allt að þrjú inn-
heimtubréf vegna hverrar kröfu.
Innheimtur er á bilinu 400-1.500
króna kostnað hjá greiðandanum
fyrir hvert bréf, eftir fjárhæð van-
skilakröfunnar.
Einnig getur fyrirtækið krafist
4-5 prósenta innheimtuþóknunar
við ítrekaða innheimtu á kröfur á
bilinu 10-100.000 krónur en lagt
2 prósent gjald á kröfur sem fara
yfir 100.000 krónur þurfi að senda
tvö innheimtubréf vegna þeirra en
1 prósent til viðbótar ef send eru
þrjú bréf.
Ef krafa er enn ógreidd eftir
að Momentum hefur sent þrjú
innheimtubréf lætur fyrirtækið
hringja einu sinni í greiðanda þar
sem honum er gefinn kostur á
að gera skil áður en mál er sent
í hefðbundna lögfræðiinnheimtu
með stórauknum kostnaði.
FAST GJALD OG PRÓSENTUR
LANDSAMTÖK FORELDRA EINELTISBARNA OG UPPKOMNNA ÞOLENDA
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
Allt sem þú þarft…
SJÁVARÚTVEGUR Kolmunnaver-
tíðin fer vel af stað og skip HB
Granda, Ingunn AK, er á land-
leið með 1.900 tonna afla eftir
aðeins tvo sólarhringa á mið-
unum.
Þrjú skip fyrirtækisins eru
farin til kolmunnaveiða sem
mikið er fyrir haft því miðin
eru undan vesturströnd Írlands
eða hátt í 700 sjómílna fjarlægð
frá Íslandi.
Loðnuveiðum skipa HB
Granda lauk í síðustu viku en
kvóti félagsins á vertíðinni var
alls 20.500 tonn. Allt bendir til
þess að loðnuvertíðinni sé lokið
að þessu sinni.
Vonir voru helst bundnar við
svokallaða vestangöngu en ekki
hefur orðið vart við neina loðnu
vestur og norður af landinu.
- shá
Loðnuvertíð lokið:
Vel veiðist af
kolmunna
ATVINNUMÁL Guðlaugur G. Sverris-
son, stjórnarformaður OR, hefur
sent frá sér yfirlýsingu þar sem
hann furðar sig á því að lífeyris-
sjóðurinn Gildi hafi ekki tekið þátt
í skuldabréfaútboði fyrirtækisins.
Einnig furðar hann sig á skýring-
um Vilhjálms Egilssonar, fram-
kvæmdastjóra SA og stjórnarfor-
manns Gildis, á þeirri ákvörðun
sjóðsins sem sagt var frá í Frétta-
blaðinu í gær.
„Það kom verulega á óvart að sá
lífeyrissjóður, sem er undir forystu
framkvæmdastjóra SA, skyldi ekki
taka þátt í skuldabréfaútboði OR.
Með því vinnur
hann gegn hags-
munum félaga
sinna og þjóð-
arinnar í heild,“
segir Guðlaugur
í yfirlýsingu.
Gi ld i tók
ákvörðun sína
byggða á því
að gjaldskrár
h efð u ek k i
verið hækkaðar og að arður hefði
verið greiddur þrátt fyrir að staða
fyrirtækisins hefði vart gefið til-
efni til þess. Guðlaugur segir það
vera yfirlýsta stefnu stjórnar OR
og eigenda fyrirtækisins að halda
aftur af verðhækkunum á þeim
þrengingatímum sem neytendur
og atvinnurekstur á Íslandi búa
við. Eins hafi arðgreiðslur OR til
eigenda verið lækkaðar um helm-
ing og renni ekki í vasa eins eða
neins, eins og almennt er hjá fyrir-
tækjum innan SA. „OR er aðili að
SA og skýtur það skökku við að
framkvæmdastjóri samtakanna,
sem jafnframt er stjórnarfor-
maður Gildis, skuli ræða málefni
fyrirtækisins með þeim hætti sem
hann gerir,“ segir Guðlaugur. - shá
Orkuveitan gagnrýnir ákvörðun Gildis um að sniðganga skuldabréfaútboð:
Gildi vinnur gegn þjóðinni
GUÐLAUGUR G.
SVERRISSON