Fréttablaðið - 17.03.2010, Page 12
12 17. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR
ÍSRAEL, AP Deilur Ísraela og Banda-
ríkjastjórnar harðna dag frá degi.
Í gær ákvað George Mitchell, sér-
legur fulltrúi Bandaríkjanna í
málefnum Mið-Austurlanda, að
fresta ferð sinni til Ísraels.
Bandaríkjamenn hafa krafist
þess að Ísraelar afturkalli leyfi til
að byggja 1.600 íbúðir fyrir gyð-
inga í Austur-Jerúsalem, hinum
arabíska hluta borgarinnar sem
Palestínumenn vilja að verði
höfuðborg Palestínuríkis.
Palestínumenn setja það að
skilyrði fyrir framhaldi friðar-
viðræðna, sem legið hafa niðri í
fjórtán mánuði, að Ísraelar hætti
við þessi áform.
Benjamin Netanjahú, forsætis-
ráðherra Ísraels, sér þó enga
ástæðu til að verða við þeirri
kröfu.
„Bygging þessara íbúða fyrir
gyðinga skaðar á engan hátt
arabana í Austur-Jerúsalem og
hafa ekki kostað þá neitt,“ sagði
Netanjahú á mánudag, en hafði
reyndar beðist afsökunar á því að
tilkynning um leyfið hefði komið
meðan Joe Biden, varaforseti
Bandaríkjanna, var í heimsókn í
síðustu viku.
Átök og skærur hafa verið í
gamla hluta Jerúsalemborgar nær
daglega undanfarið vegna þessa.
- gb
Ísraelsstjórn neitar að hætta við framkvæmdir í Austur-Jerúsalem:
Mitchell frestar för til Ísraels
ÁTÖK VIÐ RAMALLAH Hópur Palestínumanna á hlaupum eftir átök við ísraelska
hermenn norðan við Ramallah. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DANMÖRK Patrick MacManus,
talsmaður dönsku vinstrisam-
takanna Oprør, eða Uppreisn,
hlaut á mánudag hálfs árs skil-
orðsbundinn fangelsisdóm í
Danmörku fyrir að hafa reynt
að safna fé fyrir skæruliðasam-
tökin FARC í Kólumbíu og pal-
estínsku uppreisnarsamtökin
PFLP.
Bæði þessi samtök teljast
hryðjuverkasamtök samkvæmt
skilgreiningu danskra laga, sem
sett voru í kjölfar árásanna á
Bandaríkin haustið 2001. Bæði
samtökin eru einnig á listum
Bandaríkjanna og Evrópu-
sambandsins yfir hryðjuverka-
samtök.
MacManus, sem upphaflega
er frá Írlandi, þarf einnig að
greiða 55 þúsund danskar
krónur í málskostnað. - gb
Safnaði fyrir FARC og PFLP:
Fangelsi fyrir
stuðningssöfnun
STJÓRNMÁL Tuttugu og einn þing-
maður úr öllum flokkum, nema
Sjálfstæðis-
flokknum,
hafa lagt fram
frumvarp um
að landið verði
gert að einu
kjördæmi.
Björgvin G.
Sigurðsson,
Samfylking-
unni, er fyrsti
flutningsmaður.
Kveðið er á um
kjördæmaskiptinguna í stjórnar-
skrá. Frumvarpið er því til breyt-
inga á stjórnskipunarlögum.
Meginröksemd flutningsmanna
fyrir að landið verði eitt
kjördæmi er að með því vega
atkvæði allra kosningabærra
landsmanna jafn þungt. - bþs
Þingmenn úr fjórum flokkum:
Landið verði
eitt kjördæmi
BJÖRGVIN G.
SIGURÐSSON
BUXNALAUSIR Vinstrimenn í borgar-
stjórn Rómar mótmæltu með þessum
hætti borgarstjóranum, Gianni Alem-
anno. NORDICPHOTOS/AFP
EVRÓPUSAMBANDIÐ Framkvæmdastjórn Evr-
ópusambandsins segir að Bretar verði að
standa sig betur við niðurskurð fjárlaga, eigi
þeim að takast að ná nauðsynlegum tökum á
fjárlagahallanum.
Liam Byrne, ráðuneytisstjóri breska fjár-
málaráðuneytisins, ber sig aumlega í við-
tali við breska ríkisútvarpið og segir að það
myndi valda „óbætanlegum skaða“ á efna-
hagslífi landsins ef farið verður að tilmæl-
um Evrópusambandsins.
Búist er við því að fjárlagahalli breska
ríkisins verði kominn upp í 12,6 prósent af
landsframleiðslu, eða 178 milljarða punda.
Niðurskurðarhugmyndir bresku stjórnar-
innar miða að því að ná honum niður í 4,7
prósent árið 2015. Samkvæmt reglum Evr-
ópusambandsins má fjárlagahalli hins vegar
ekki vera meiri en þrjú prósent af lands-
framleiðslu. Bretar fengu á síðasta ári frest
til ársins 2015 til að ná þessu fram.
Grikkir gátu hins vegar andað léttar í bili
í gær þegar þrýstingur minnkaði á fjármála-
mörkuðum, daginn eftir að Evrópusamband-
ið hafði lofað að koma Grikkjum til hjálpar
síðar meir ef í ljós kæmi að þeir réðu ekki
við skuldavanda ríkisins.
Miklu munar þar að matsfyrirtækið
Standard & Poor‘s ákvað að taka Grikkland
af athugunarlista sínum, sem þýðir að láns-
hæfismat landsins verður ekki lækkað í
bráð. - gb
Grikkir anda léttar í bili, en Bretar fá á baukinn frá Evrópusambandinu:
Bretum gert að skera enn meira niður
LIAM BYRNE OG GORDON BROWN Niðurskurðaráform
þeirra fullnægja ekki kröfum framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins. NORDICPHOTOS/AFP
Við höldum hjólum atvinnulífsins
Þjónustuver og þjónustumóttökur: Opið frá 8-17 alla virka daga · Pantanasími 590 5030 · thjonusta@hekla.is. Netspjall á www.hekla.is.
100% þjónustulán án vaxta Val um upprunalega eða ódýrari varahluti Sérstök hraðþjónusta í boði
F
í
t
o
n
/
S
Í
A