Fréttablaðið - 17.03.2010, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 17. mars 2010 13
gangandi
Laugavegi 172-174 · 590 5000 · hekla.is · hekla@hekla.is
Ókeypis forgreining
Þú getur treyst því að við gerum betur við Volkswagen atvinnubíla
Úlfar og félagar sinna þjónustu við Volkswagen atvinnubíla. Þeir hafa samtals meira en 20 ára
starfsreynslu og vita að allar tafir koma viðskiptavinum okkar illa. Þeir hjálpa þér að halda flot-
anum gangandi svo þú getir einbeitt þér að því að keyra kostnaðinn niður og framlegðina upp.
Virðing
Réttlæti
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
verður haldinn í Veisluturninum,
20. hæð, Smáratorgi 3, Kópavogi,
í dag 17. mars kl. 19.30.
Dagskrá:
1. Kynning frambjóðenda til trúnaðarstarfa fyrir VR.
2. Fyrirspurnir og umræður.
Félagsmenn hvattir til að mæta.
Fyrsta fólksfækkunin frá lokum 19. aldar:
Íslendingum fækk-
ar töluvert milli ára
MANNFJÖLDI Fólksfækkun
varð hér á landi í fyrra,
í fyrsta sinn frá lokum
19. aldar. Hinn 1. jan-
úar 2010 voru 317.630
íbúar með fasta búsetu
á landinu, en 319.368
árið áður.
Þetta kemur fram í
nýjum tölum frá Hag-
stofu Íslands. Þar segir
að fækkunin milli ára
nemi hálfu prósenti,
þótt síðustu fimm árin
hafi verið fjölgun um 1,6
prósent að jafnaði.
Ómar Harðarson á
mannfjölda- og mann-
talsdeild Hagstofunnar
segir þessar tölur í sam-
ræmi við spá sem gerð
var í árslok 2008.
„Þetta eru búferla-
flutningar fyrst og
fremst, en á sama tíma
er náttúruleg fjölgun
um eitt prósent,“ segir
Ómar.
Árið 2009 fækkaði
fólki á öllum landsvæðum, mest
á Austurlandi. Þar fækkaði um
390 manns, eða þrjú prósent.
Ómar rekur þessa fækkun fyrst
og fremst til Fljótsdalshéraðs,
en erlendir verkamenn streyma
þaðan að stíflu- og álversfram-
kvæmdum loknum.
Með brotthvarfi verkamann-
anna jafnast kynjahlutföll í
landinu einnig. Nú eru 990
karlar á hverjar þúsund konur
á höfuðborgarsvæðinu. Tíðni
karla eykst hins vegar eftir því
sem byggðin verður strjálbýlli
og fer allt upp í 1.151 karl á móti
þúsund konum.
Frá árinu 2005 hefur íbúum
í strjálbýli fækkað árlega um
1,2 prósent og búa nú 6,4 pró-
sent íbúa landsins í strjálbýli.
Um 63 prósent þjóðarinnar búa
á höfuðborgarsvæðinu. - kóþ
LANDIÐ KVATT Í LEIFSSTÖÐ Árið 2009
fluttu til útlanda 4.835 manns umfram
aðflutta. Á sama tíma jókst náttúruleg
fjölgun eilítið og var um eitt prósent, en
hafði verið 0,8 til 0,9 prósent allar götur frá
1994. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN