Fréttablaðið - 14.04.2010, Blaðsíða 17
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Áður en við lögðum af stað hafði
ég ekki hugmynd um hvað ég hafði
látið plata mig út í. Eitt er að fara
til útlanda og annað að spila á tón-
leikum og hvað þá að spila í nýrri
borg kvöld eftir kvöld,“ segir Ólaf-
ur Jónsson, gítarleikari hljóm-
sveitarinnar Hudson Wayne sem
hélt í tónleikaferð til Þýskalands
og Austurríkis í byrjun marsmán-
aðar ásamt Seabear. Ólafur hefur
verið í fríi frá tónlistarbransanum
í þónokkurn tíma, en hóf nýlega að
leika með Hudson Wayne sem held-
ur fyrstu tónleikana eftir Þýska-
landsferðina í Þjóðleikhúskjallar-
anum annað kvöld.
Alls léku Hudson Wayne og Sea-
bear átta tónleika í jafnmörgum
borgum í ferðinni. Í Þýskalandi
var troðið upp í Hannover, Duis-
burg, Hamborg, Leipzig, Berlín,
Dresden og München, en síðustu
hljómleikarnir í ferðinni fóru fram
í Vín í Austurríki. Að sögn Ólafs
var vel mætt á alla tónleikana,
enda eigi Seabear dyggan aðdá-
endahóp á þessum slóðum.
Ólafur segir mikilvægt að
drekka bjór sem er framleiddur í
borginni sem fólk er statt í hverju
sinni. „Að drekka „lókal“ bæði
stækkar bjórdeildarhringinn og
veitir nauðsynlega jarðtengingu
við þann stað sem maður er á á
hverjum tíma.“
Spurður um eftirminnilegt atvik
úr ferðinni nefnir Ólafur mikla
hústökufólks- og pönkaraveislu
sem meðlimir Hudson Wayne
sóttu í Berlín. „Partíið var haldið
í risastóru fjölbýlishúsi sem gest-
gjafarnir höfðu tekið yfir. Það var
mjög sérstakt að rölta níðþröng-
an stiga niður í kjallara, þar sem
á móti okkur tóku mörg þúsund
pönkarar, allir með hundrað göt í
andlitinu og hanakamb, að hlusta á
tónlist og drekka. Ég hugsa að það
væri ómögulegt að lenda í svona
teiti hérna á Íslandi nema 3.000
nýir pönkarar yrðu til á einni
nóttu,“ segir Ólafur Jónsson.
kjartan@frettabladid.is
Í pönkaraveislu í Berlín
Ólafur Jónsson, gítarleikari hljómsveitarinnar Hudson Wayne, þurfti að búa sig vel undir tónleikaferð
sem sveitin hélt í til Þýskalands og Austurríkis í byrjun mars. Hann segir mikilvægast að drekka „lókal“.
„Eitt er að fara til útlanda og annað að spila á tónleikum og hvað þá að spila í nýrri borg kvöld eftir kvöld,“ segir Ólafur Jónsson,
gítarleikari Hudson Wayne. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
JARÐHITAFÉLAG ÍSLANDS heldur tíu ára
afmælisþing sitt í dag klukkan 14.30 í Víðgelmi, Grens-
ásvegi 9. Umhverfisráðherra mun meðal annars
ávarpa þingið sem er öllum opið. jardhitafelag.is
Vesturhrauni 1-210 Garðabæ Sími 535 5850-www.framtak.is
E F N A V Ö R U R
ÖRHREINSIR
- með náttúruna á hreinu -
SKAÐ
LAUS
UMHV
ERFIN
U
Örhreinsir er lífrænt efni sem
flýtir fyrir eðlilegri rotnun.
Bestur árangur næst með
reglubundinni notkun þessa
undraefnis.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki