Fréttablaðið - 14.04.2010, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 14.04.2010, Blaðsíða 41
MIÐVIKUDAGUR 14. apríl 2010 25 Frænka sjónvarpskonunnar Opruh Winfrey sakar hana um að hafa logið til um æsku sína og uppvaxt- arár á bökkum Mississippi-fljóts- ins. Þetta kemur fram í nýrri bók slúðurdrottningarinnar Kitty Kelley um ævi Opruh og æsku. Frænkan segir að Oprah hafi ýkt allar sögurnar um fátæktina sem fjölskylda sjónvarpskonunn- ar hafi þurft að glíma við. „Miðað við það sem Oprah hefur sagt þá var hún í raun og veru ofdekruð,“ segir frænkan sem heitir Kather- ine Carr Esters. Hún vísar því á bug að Oprah hafi þurft að klæð- ast kartöflusekkjum og alið kakka- lakka sem gæludýr. Esters segist hafa átt stuttan fund með Opruh og öðrum fjöl- skyldumeðlimum þar sem þau kröfðu sjónvarpskonuna um skýr- ingar á þessum sögum. „Hún sagði að sannleikurinn væri svo leiðin- legur og að þetta væru þeir hlut- ir sem fólk vildi heyra um,“ segir Esters í bókinni. Rithöfundurinn Kelley segir síðan í viðtali við EW.com að frænkan hefði hald- ið því fram að Oprah hefði í raun verið alin upp sem einbirni og að hún hefði verið ofdekruð í æsku. Oprah sökuð um lygar SÖGÐ LJÚGA Oprah Winfrey er sögð hafa kryddað sögur úr æsku sinni ansi hressilega. Frænka leikarans Roberts Patt- inson, Diana Nutley, segir hann hafa hætt öllum samskiptum við fjölskylduna eftir að hann varð heimsfrægur. Nutley segir Patt- inson ekki hafa mætt í jólaboð, afmælisveislur eða aðrar fjöl- skyldusamkomur frá því að hann sló í gegn í hlutverki sínu sem vampíran Edward Cullen. „Það er skrítið hvernig frægð- in getur breytt fólki. Aldrei bjóst ég við þessu frá honum,“ sagði frænkan í viðtali við Star Magaz- ine. Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem hún tjáir sig um frænda sinn því hún hefur einnig rætt einka- líf hans í fjölmiðlum án hans samþykkis. Vill ekki hitta frænku OF FRÆGUR? Robert Pattinson er hættur að heimsækja frænku sína. NORDICPHOTOS/GETTY Velska söngkonan Charlotte Church hefur trúlofast barns- föður sínum, rugbyleikmannin- um Gavin Henson. Parið hefur verið saman frá árinu 2005 og á saman tvö börn. „Þegar ég kom út úr sturtunni einn morguninn beið mín þyrla úti í garði. Hún flaug með okkur til Cornwall þar sem við snæddum hádegisverð og eftir matinn fórum við í göngutúr meðfram ströndinni. Skyndilega fór hann að verða hálf væminn, sem er mjög ólíkt honum, og það var þá sem hann fór niður á hnén og bað mín,“ útskýrir söngkonan, en þau hafa verið trúlofuð í laumi frá því í febrúar. Charlotte lofuð í laumi TRÚLOFUÐ Söngkonan Charlotte Church hefur trúlofast barnsföður sínum. NORDICPHOTOS/GETTY James Murphy kynnti nýja meðlimi hljómsveit- arinnar LCD Soundsystem á leynitónleikum í New York á mánudag. Kapparnir spiluðu ný lög og Murphy grátbað áhorfendur um að deila þeim ekki með heiminum, væru þeir búnir að fá kynningareintök af nýju plötunni, sem kemur út 17. maí. „Ef þið eruð búin að fá eintak af plötunni og langar að deila henni með heiminum, ekki gera það,“ sagði hann og kraup meira að segja á kné til að undirstrika mál sitt. Áhorfendurnir 1.500 sem mættir voru á svæðið virtust kunna vel að meta bónina og fögnuðu dátt. Grátbað um tappa í tónlistarlekann GRÁTBAÐ ÁHORF- ENDUR James Murphy fór á hnén á leynitónleikum í New York.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.