Fréttablaðið - 14.04.2010, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 14.04.2010, Blaðsíða 14
 14. apríl 2010 MIÐVIKUDAGUR FRÉTTASKÝRING: Xxxxxxx 14 Reynsluleysi starfsmanna Fjármálaeftirlitsins hafði mikil áhrif á samskipti stofnunarinnar við fjár- málafyrirtæki. Eftirlitinu hélst ekki á fólki vegna hærri launa annars staðar. Bankarnir keyptu til sín bestu bitana og litu á Fjár- málaeftirlitið sem óvin. Starfsfólk Fjármálaeftirlitsins (FME) hafði ekki þá reynslu, og í sumum tilvikum menntun, sem störf þeirra kröfðust á þeim tíma sem bankakerfið þandist út hér á landi. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu rannsóknarnefnd- ar Alþingis og vinnuhóps um sið- ferði og starfshætti. Meginniður- staða rannsóknarinnar er að FME hafi, líkt og Seðlabanki Íslands (SÍ) brugðist hlutverki sínu til að gegna ytra eftirliti með fjármála- stofnunum. Bæði í skýrslu rannsóknar- nefndarinnar og vinnuhóps- ins kemur ítrekað fram að FME hafi verið alltof fámenn stofnun; starfsmönnum hafi ekki fjölg- að samhliða aukinni ábyrgð og nýjum verkefnum með útþenslu íslenska bankakerfisins. Starfs- mannavelta var mikil og „óvenju- skaðleg að því leyti að stofnuninni hélst ekki á reynslumeira fólki og fólki með tiltekna menntun“. Jónas Fr. Jónsson, forstjóri FME, vitnar um það fyrir www.sff.is -tryggjum öryggi í viðskiptum Ert þú örugglega þú? Til að auka öryggi í viðskiptum þurfa allir viðskiptavinir banka, sparisjóða og eignarleigufyrirtækja að sanna á sér deili með því að framvísa gildu skilríki. Gild skilríki eru vegabréf, ökuskírteini og nafnskírteini. Samkvæmt lögum um peningaþvætti er skylt að framvísa gildum persónuskilríkjum Hafi r þú ekki sannað á þér deili er mikilvægt að þú gerir það. 800 700 600 500 400 300 200 100 0 Risnukostnaður stóru bankanna þriggja 2004 2005 2006 2007 2008 Tölur eru í milljónum króna. Engar upplýsingar fengust frá Glitni um risnukostnað áranna 2004 til 2006. Kostnaður við ýmiss konar risnu, boðsferðir, veisluhöld og veiði, var margfalt hærri í Landsbank- anum þegar mest var en í hinum stóru bönkunum. Árið 2007, þegar lengst var gengið í slíkum kostnaði, varði Landsbankinn 751 milljón í risnu, Glitnir 336 millj- ónum og Kaupþing 200 milljón- um. Risnukostnaður Landsbank- ans á tímabilinu 2004 til 2008 nam 2.054 milljónum. Árið 2004 var hann 94,3 milljónir en eins og fyrr segir 751 milljón árið 2007, og hafði því áttfaldast. Fram kemur í skýrslunni að upplýsingarnar sem fengust frá Glitni hafi reyndar verið ófull- komnar. Þannig vantar til dæmis allar upplýsingar um risnukostn- að Glitnis árin 2004 til 2006. Miðað við þær upplýsingar sem fyrir liggja var skipting risnu- kostnaðarins milli útgjaldaliða ólík milli bankanna. Þannig varði Landsbankinn mestu fé í boðs- ferðir, næstmestu í gestamót- tökur og því næst veiði og íþrótta- viðburði. Kaupþing varði mestu í gestamóttökur og veiði, og Glitn- ir mestu í veiði og viðburði. - sh Landsbankinn varði langmestu í risnu af bönkunum: Risna bankans áttfald- aðist á fjórum árum Mest í móttökur og boðsferðir hjá Landsbankanum Landsbankinn eyddi langmestum fjármunum í risnu af bönkunum þrem- ur árin 2004 til 2008. Hér til hliðar má sjá hvernig upphæðirnar skiptust á milli kostnaðarliða hjá bankanum. Boðsferðir 576,3 Gestamóttaka 532,3 Veiði 351,7 Íþróttaviðburðir 311,1 Ýmsir viðburðir 162,8 Gjafir 85,1 Annað 35 Samtals: 2054,3 Tölur eru í milljónum króna. FME mannað af krökkum án reynslu VORU STÓRIR OG STERKIR Starfsmenn stóru viðskiptabankanna þriggja eru sagðir hafa litið á Fjármálaeftirlitið sem óvin. Þeir gengu afar hart fram og neyttu aflsmunar í samskiptum sínum við reynslulítið starfsfólks FME. Sjálfstæði eftirlitsstofnunar eins og FME gagnvart valdi fjármálastofnana og hugsanlegum afskriftum stjórn- málamanna er afar mikilvægt og er skilgreint af skýrslu- höfundum í tvennu lagi. Annars vegar persónulegum þáttum, svo sem hugrekki til þess að sinna ströngu eftirliti og færni til að greina stöðu banka. Hins vegar út frá stofnanabundnum þáttum og starfsskilyrðum, svo sem valdheimildum, mannafla og fjárhag. „Eigi eftirlits- stofnun að geta rækt hlutverk sitt vel þarf hvort tveggja að vera til staðar.“ Skilyrði sjálfstæðis eftirlitsstofnunar nefndinni að ástæður mikillar starfsmannaveltu var óánægja starfsmanna með launakjör og starfsumhverfi. Bankarnir buðu jafnframt reynslumesta starfs- fólki FME gull og græna skóga sem þynnti út starfsmannahóp FME. Bankarnir nutu því starfs- krafta reynsluboltanna sem ýkti bilið á milli starfsmanna bank- anna og FME í samskiptum þeirra á milli. „Þetta leiddi til þess að starfsreynsla safnaðist ekki nægilega vel upp hjá eftirlit- inu sem var að miklu leyti mann- að af ungu fólki sem hafði ekki næga innsýn í hvernig fjármála- fyrirtæki virka,“ segir í skýrslu vinnuhópsins. Einn viðmælandi fyrir rann- sóknarnefndinni, Kristinn Arnar Stefánsson, regluvörður Glitnis, sem vann áður hjá FME, sagði að þar „voru bara krakkar sem voru allt of reynslulaus og voru nýút- skrifuð, … Og það sem við höfð- um fram yfir þau í hruninu var að við vorum kannski með fimm til tíu ára starfsreynslu, … meiri hlutinn af lögfræðingunum var kannski með ár frá útskrift. Það er ekki gott sko.“ Í skýrslunni kemur fram að starfsmenn bankanna litu á FME sem óvin og öllum aðgerðum stofn- unarinnar var mætt af mikilli hörku. Þessu viðmóti átti reynslulít- ið fólk erfitt með að mæta af nauð- synlegri festu og bankarnir fóru því oft sínu fram. svavar@frettabladid.is „Í lögum er kveðið á um að forstjóri Fjármálaeftirlitsins skuli búa yfir „víðtækri þekkingu og starfsreynslu á fjármagnsmarkaði“. Þegar Jónas Fr. Jónsson var ráðinn hafði hann fimm ára reynslu sem framkvæmdastjóri innra markaðssviðs Eftirlitsstofnunar EFTA í Brussel. Hann hafði aftur á móti ekki beina reynslu af störfum í bönkum eða fjármálafyrirtækjum og þar með ekki þá þekkingu og starfs- reynslu sem slík störf hefðu skilað. Vissulega takmarkar smæð íslensks samfélags þann hóp sem hægt er að velja úr en gagnrýna má stjórn Fjármálaeftirlitsins fyrir að hafa ekki gefið þessu sjónarmiði meira vægi við ráðninguna. Gera má ráð fyrir að farsælla hefði verið að hafa sem forstjóra Fjár- málaeftirlitsins á þessum afdrifaríku tímum reyndari þungavigtarmann með sterkari stöðu gagnvart hinni nýju kynslóð bankamanna en jafn- aldri þeirra gat haft.“ Skýrsluhöfundar um Jónas Fr. Jónsson

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.