Fréttablaðið - 14.04.2010, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 14.04.2010, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 14. apríl 2010 „Við erum þegar komnir með 25 bústaði skráða inn á vefinn okkar, bungalo.is, og umferð um hann eykst stöðugt svo þetta hefur geng- ið vonum framar,“ segir Haukur hress enda fengu hann og félagi hans, Steinar Ingi Farestveit, viðurkenningu fyrir framtakið í frumkvöðlakeppninni Gulleggið. Bungalo.is skapar ný tækifæri, bæði fyrir þá sem vilja leigja út bústaði sína og hina sem vantar slíkt afdrep tímabundið því sam- eiginlegur vettvangur hefur ekki verið fyrir hendi, að sögn Hauks. „Það er frítt að skrá bústaðina og okkur vantar fleiri því marg- ir þeirra sem við erum komnir með eru þétt bókaðir, bæði gegn- um okkur og aðra,“ lýsir hann og segir flesta þeirra sem komnir eru á skrá hafa verið í leigu áður. Hitt sé líka til að fólk leigi út einkabú- staði sína þegar það sé ekki að nota þá sjálft og bendir á að þannig geti það aukið tekjur sínar verulega. „Við erum milliliðir eins og er og hjálpum fólki að komast í samband en vefurinn er í þróun. Þar erum við að útbúa bókunarkerfi sem kemur til með að verða sjálfvirkt. Þeir eigendur sem hafa áhuga á að leigja út bústaði sína hluta úr árinu geta þá merkt inn í kerfið hvenær þeir sjálfir ætli að nota þá og við sjáum um að leigja þá út afganginn af tímanum.“ Haukur segir þá félaga vera með ákveðna tékklista þar sem fram komi það helsta sem bústaðurinn hefur upp á að bjóða. Þannig geti fólk séð nákvæmlega mun á verði og aðstöðu og hagað vali sínu eftir því. Sumir sækist eftir munaði en aðrir einfaldleika. „Heiti pottur- inn er alltaf sterkur póstur,“ segir hann brosandi. Þótt enn vanti bústaði á vefinn frá sumum landshornum kveðst Haukur sjá fram á að www. bungalo.is verði innan skamms orðinn stærsti gagnagrunnur um bústaði á landinu sem opinn sé almenningi. gun@frettabladid.is Hittu naglann á höfuðið Sumarbústaðavefurinn www.bungalo.is fór í loftið fyrir mánuði og hefur þegar skapað sér vinsældir, að sögn Hauks Guðjónssonar, annars tveggja frumkvöðla sem að honum standa. Hvítahúsið í landi Skjaldar í Helgafellssveit. WWW.BUNGALO.IS Úr bústað Eyjasólar í Biskupstungum. MYND/WWW.BUNGALO.IS Þeir Haukur og Steinar fengu nýlega viðurkenningu frá Innovit fyrir bungalo. is sem var ein af topp 10 viðskipta- hugmyndum í frumkvöðlakeppninni Gulleggið. MYND/ÁLFHEIÐUR EMILSDÓTTIR Úr Nátthaga við Sandgerði. MYND/WWW.BUNGALO.IS Mesta úrval landsins af rafgeymum í allar gerðir farartækja TUDOR Mesta úrval landsins af rafgeymum í allar gerðir farartækja TUDOR Þriðjudaga Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is - sími 512 5473 Henný Árnadóttir henny@365.is - sími 512 5427 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is - sími 512 5447

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.