Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.04.2010, Qupperneq 23

Fréttablaðið - 14.04.2010, Qupperneq 23
MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 2010 BKT AGRIMAX 657 Einstök gæði, frábært verð, bestu kaupin. Roadstone Roadian AT2 Jeppadekk fyrir allan akstur og verð við allra hæfi. Wanli S1088 Frábær kaup í ódýrum góðum dekkjum. Hanksugi HS38 Ódýr en sterk og góð vörubíladekk, rásföst, í allan akstur. Rauðhellu 11, Hfj. ( 568 2035 Hjallahrauni 4, Hfj. ( 565 2121 Dugguvogi 10 ( 568 2020 www.pitstop.is Gildir til 31. maí 2 010 GOTT VERÐ OG FRÁBÆR GREIÐSLUKJÖR fyrir þá fjölmörgu sem þurfa að kaupa ný dekk fyrir sumarið. Rauðhellu 11, Hfj. ( 568 2035 Hjallahrauni 4, Hfj. ( 565 2121 Dugguvogi 10 ( 568 2020 www.pitstop.is MIKIÐ ÚRVAL GOTT VERÐ Dekk undir:■ Fólksbíla ■ Jeppa ■ Mótorhjól ■ Sendibíla ■ Vörubíla ■ Rútur ■ Vinnuvélar ■ Traktora ■ Hjólhýsi ■ Kerrur o.s.frv., o.s.frv. ÞRJÁR FULLKOMNAR ÞJÓNUSTUSTÖÐVAR VAXT ALAU ST VISA & MAS TE RC A R DGildir til 3 1. m aí 20 10 VA X TA LA US T Í AL LT AÐ 6 MÁNUÐI Pitstop rekur þrjú hjólbarða- verkstæði á höfuðborgar- svæðinu sem bjóða að auki upp á smurningu, smávið- gerðir og fleira. „Þegar ég var að rúlla dekkjum á verkstæðinu hjá pabba þegar ég var strákur voru nokkrar stærðir af dekkjum allsráðandi en nú eru þær mun fleiri og flóknara að af- greiða dekk. Aðallega er það bíla- úrvalið, fleiri týpur og öflugri vélar, sem kalla á aukninguna,“ segir Sigurður Ísleifsson, inn- kaupa- og sölustjóri hjá Pitstop, sem rekur þrjú hjólbarðaverkstæði á höfuðborgarsvæðinu. Þau eru við Rauðhellu 11 og í Hjallahrauni 4 í Hafnarfirði og Dugguvogi 10 í Reykjavík. Verkstæðin bjóða líka fjölbreyttari þjónustu, svo sem smurningu og smáviðgerðir. „Sérstaða okkar felst í miklu og breiðu vöruúrvali hjólbarða og við bjóðum nú til dæmis nýja tegund vinnuvéladekkja frá BKT sem er stór aðili í Indlandi með allt frá smæstu hjólbörudekkjum upp í stærstu hjólaskófludekk,“ segir Sigurður. Starfsaðstaða Sigurðar er í Rauðhellu þar sem höfuðstöðvar Pitstop eru. Þar er hjólbarðalag- er sem stækkar óðum vegna auk- innar sölu til annarra verkstæða, smurstöð í samvinnu við Skeljung og dekkjaverkstæði með vélakosti fyrir allar gerðir dekkja og bíla. „Við getum tekið stærstu vöru- bíla og vinnuvélar inn og erum að útbúa jeppalínu þar sem stærstu jeppunum verður sinnt,“ segir Sigurður. „Í Hjallahrauni er að- staða til smáviðgerða, smurstöð og hjólastillingar ásamt dekkja- lager,“ segir hann. Sigurður tekur fram að í Dugguvoginum sé lager af dekkjum í öllum verðflokk- um og til standi að setja þar upp smurstöð og þjónustuverkstæði. „Hjá Pitstop reynum við stöðugt að mæta kröfum og væntingum við- skiptavinanna. Við höfum undan- farin ár byggt traust langtímasam- band við ört stækkandi kúnnahóp sem meðal annars sést á aukningu í geymsludekkjum en það er þjón- usta sem við leggjum mikið upp úr. Einn af helstu þáttunum í starf- seminni er að veita viðskiptavin- um okkar óaðfinnanlega þjónustu og við erum með öfluga vegaað- stoð sem þeir kunna að meta. Það er þjónustubíl sem veitir vegaað- stoð og dælir upp úr bensíntönk- um þegar menn hafa dælt röngu eldsneyti á bílinn og fleira. Bíll- inn sinnir svæðinu frá Hvalfjarð- argöngum til Suðurnesja.“ Bílaúrval og öflugar vélar kalla á fjölbreytt framboð „Hjá Pitstop reynum við stöðugt að mæta kröfum og væntingum viðskiptavina okkar,“ segir Sigurður Ísleifsson, innkaupa- og sölustjóri hjá Pitstop. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ● SPARNAÐUR Miklu máli skiptir að loftþrýstingur í dekkjum sé réttur. Dekkin endast betur og eldsneytisnotkun verður minni ef ökumenn passa að hafa loftið um tíu prósentum yfir uppgefnum kjörloftþrýstingi. Upplýsingar um kjörloft- þrýsting í dekkjum má yfirleitt nálgast í leiðbeiningabók bílsins. Einnig er dýpt mynsturs- ins á dekkjunum mikilvæg. Dýptin verður að vera minnst 1,6 millimetrar en helst þrír millimetr- ar. Sé gripið grynnra ógnar það akstursöryggi. Sumir segja gott ráð að rótera dekkjunum á bílnum með reglulegu millibili en það er vissara að leita ráða hjá fagfólki hvaða dekkjum á þá að skipta og á hversu margra kílómetra millibili.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.